Freyr

Volume

Freyr - 01.02.2004, Page 33

Freyr - 01.02.2004, Page 33
spumingunni að ofan. Tilgangur- inn með því að kafa dýpra er æv- inlega sá að auka skilning og lýsa betur þeim raunveruleika sem til umfjöllunar er hverju sinni. Hins vegar em takmörk fýrir öllu, og eftirfarandi atriði er gott að hafa í huga í þessu sambandi: * Greina þarf þær breytur, sem mest áhrif hafa á útkomu líka- nútreikninga. Þetta er gert með sk. næmisgreiningum. * Samræmi þarf að vera innan líkansins í því hversu djúpt er kafað. DÆMI UM REIKNILÍKÖN í ÍS- LENSKUM LANDBÚNAÐI Unnið hefur verið að verkefni á RALA undanfarin ár í samvinnu við hinar Norðurlandaþjóðimar sem felst í því að gera “kvikt gangverkslíkan” af mjólkurkú, sem lýsir meltingu og efnaskipt- um kýrinnar, og gefúr út mjólkur- ffamleiðsluspá út ffá upplýsing- um um magn, efnasamsetningu og aðra eiginleika fóðurs, ásamt upp- lýsingum um þunga kýrinnar og stöðu á mjaltaskeiði. Því líkani er ætlað að auka nákvæmni í fóðmn mjólkurkúa, eins og gerð var grein fyrir í nautgriparæktarblaði Freys sl. haust (Jóhannes Svein- bjömsson, 2003) og ítarlegar á Fræðaþingi landbúnaðarins nú í vetur (Jóhannes Sveinbjömsson og Bragi L. Ólafsson, 2004). Nokkur önnur dæmi em um viðamikil reiknilíkön sem þróuð hafa verið með tilliti til íslensks landbúnaðar. Hermilíkan fyrir heyskap var þróað með það fýrir augum að herma eftir vinnu við heyskap og fylgjast með heyfeng og tilkostnaði (Gísli Sverrisson, 1999). Reiknilíkan af kúabúi, sem unnið var að fyrir tæpum aldar- fjórðungi, (Gunnar Sigurðsson o.fl., 1980; Hólmgeir Bjömsson, 1985) hafði það að markmiði að kanna áhrif ýmissa þátta á afkomu kúabús, t.d. heygæða, túnstærðar og afurðagetu gripa við mismun- andi verðhlutföll áburðar og kjamfóðurs. Niðurstöður líkantil- rauna beindu mjög sjónum manna að sláttutíma sem mikilli lykil- stærð í hagkvæmni kúabúa og má fullyrða að rannsókna- og leið- beiningastarf síðan hefur tekið mjög mið af þessum niðurstöðum. Nýlegt verkefni (fngvar Bjöms- son, 2001) þar sem hannað var reiknilíkan til að skoða hag- kvæmni mismunandi jarðræktar- skipulags á kúabúum gefur mögu- leika á að skoða nokkuð fjöl- breyttar leiðir í fóðuröflun m.t.t. afurðastigs, endurræktunartíðni, burðartíma o.fl. þátta er áhrif hafa á hagkvæmni. Síðast en ekki síst er rétt að nefna að þau kynbótakerfi, sem notuð em í dag í nautgripa- sauð- fjár- og hrossarækt, byggja á all- flóknum reiknilíkönum sem þó em töluvert annars eðlis en þau sem nefnd vom á undan. Öll eiga þessi reiknilíkön þó sameiginlegt að þau byggja á afli tölva og hef- ur gríðarhröð þróun í tölvumálum á undanfömum 2-3 áratugum ger- breytt möguleikum manna á að nýta sér slík líkön. Heimildir: AFRC. 1990. Nutrient require- ments of ruminant animals: en- ergy. Nutrition Abstracts and Reviews (Series B), 60: 729-804. Czerkawski, J. W. 1986. An introduction to mmen studies. Pergamon press. Gísli Sverrisson, 1999. Hermi- líkan fyrir heyskap. Ráðunauta- fundur, 1999: 145-150. Gunnar Sigurðsson, Helgi Sig- valdason, Hólmgeir Bjömsson, Ketill A. Hannesson, Páll Jensson og Sigfús Ólafsson, 1980. Reiknilíkan af mjólkurframleiðslu kúabúa. Fjölrit Rala nr. 56, 80 bls. Hólmgeir Bjömsson, 1985. Reiknilíkan af kúabúi. Freyr, 81, 710-715. Ingvar Bjömsson, 2001. Gróf- fóður á kúabúum. Rit búvísinda- deildar nr. 25., 40 bls. Landbúnað- arháskólinn á Hvanneyri. Jóhannes Sveinbjömsson, 2003. Fóðurmatskerfí fyrir mjólkurkýr byggt á hermilíkönum af meltingu og efnaskiptum. Freyr, 9, 23-27. Jóhannes Sveinbjörnsson og Bragi L. Ólafsson, 2004. Karól- ína- hermilíkan fyrir fóðurmat. Ráðunautafundur, 2004: 143-155. Thomley, J.H.M. & Johnson, I.R., 1990. Plant and crop model- ling. A mathematical approach to plant and crop physiology. Clar- endon Press, Oxford, 669 bls. Freyr 1/2004 - 29 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.