Bændablaðið - 27.03.2007, Síða 39
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200739
Bændablaðið frumlegast
Sigríður Magnea Kjartansdóttir
heimasæta í Bræðratungu í Bisk-
upstungum ákvað að vera Bænda-
blaðið á Öskudaginn. Blaðið vakti
mikla athygli og var búningurinn
valinn sá frumlegasti á Öskudags-
skemmtun Reykholtsskóla í Bisk-
upstungum.
FRAMLEIÐNISJÓÐUR
LANDBÚNAÐARINS
AUGLÝSIR NÁMSSTYRKI:
Framleiðnisjóður landbúnaðarins vill efla fagmenntun
á sviði landbúnaðar með stuðningi við framhaldsnám í
landbúnaðarfræðum og endurmenntun
starfandi bænda.
Á árinu 2007 býður Framleiðnisjóður landbúnaðarins
fram tvenns konar styrki í þessu skyni:
1.Til framhaldsnáms að loknu háskólanámi til grunngráðu (BS,
BA): Veittir verða 4-6 styrkir, að upphæð allt að 500 þús. kr. hver
til náms í landbúnaðarfræðum eða öðrum þeim fræðum sem
nýtast beint til atvinnuuppbyggingar í sveitum. Námið skal miða
að framhaldsáfanga (MS, MA, PhD). Forgangs að styrkjum
njóta PhD-nemar og lengra komnir MS/MA-nemar. Með umsókn
þurfa að fylgja yfirlit um námsframvindu og námsárangur svo og
verkefnislýsing fyrir lokaverkefni.
2.Til umfangsmeiri endurmenntunar starfandi bænda: Í boði verða
10 styrkir, að upphæð 50 - 150 þús. kr. hver eftir umfangi náms,
enda sé um að ræða a.m.k. 10 námseiningar (námsvikur).
Umsækjendur skulu hafa landbúnað að aðalatvinnu og hyggjast
nýta námið til þess að byggja upp eða efla atvinnu á bújörðum
sínum.
Umsóknarfrestur um námsstyrkina er til 15. maí nk.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri, 311 Borgarnes, sími
430-4300 og á heimasíðu sjóðsins www.fl.is
Árshátíð Landssambands
kúabænda 2007
Árshátíð LK verður haldin í Sjallanum
laugardagskvöldið 14. apríl n.k.
Húsið opnar kl. 19 með fordrykk.
Matseðill:
Safranlöguð sjávarréttasúpa með smábrauði
Heilsteiktar nautalundir með fylltum tómat, rjómapiparsósu,
kartöfluturni og rótargrænmeti
Súkkulaðifrauðkaka „Truffon“ með ástaraldinsósu,
lime og gin-ís
Kaffi & konfekt
Veislustjóri er Einar Georg Einarsson
Miðaverð er 4.900 kr. Miðapantanir á lk@naut.is
Gisting á Hótel KEA, pantanir í síma 460 2000,
þar er einnig hægt að leggja inn miðapantanir.