Bændablaðið - 15.11.2012, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012 7
Hinn 8. október var hin árlega
hrútasýning Fjárræktarfélags
Öngulsstaðahrepps haldin í
fjárhúsunum á Svertingsstöðum.
Að venju var keppt í flokki
lambhrúta og flokki veturgamalla
hrúta. Nokkuð góð mæting var
af hrútum og tölverður fjöldi
sauðfjáráhugamanna mættu
á svæðið til að fylgjast með
herlegheitunum.
Dómarar voru sem fyrr þeir
félagar Sigurður Þór Guðmunds-
son, ráðunautur hjá Búgarði
ráðgjafarþjónustu á Norðausturlandi,
og Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi
á Grýtubakka og formaður Lands-
sambands sauðfjár bænda.
Stubbur fremsti veturgamli
hrúturinn
Úrslitin voru þau að í flokki
veturgamalla hrúta var Stubbur
11-626 frá Svertingsstöðum 2 efstur.
Stubbur er undan Hlekk frá Árbæ en
Stubbur er fæddur á Heydalsá hjá
Guðjóni bónda þar á bæ.
Annar var Örvar 11-022 frá
Svertingsstöðum 1 undan Boga
04-814 og þriðji var Röskur 11-622
frá Svertingsstöðum 2 undan
Boga 04-814. Það má því segja að
Bogi sé að skila góðum árangri í
ræktunarstarfinu, sé tekið mið af
þessum dómum.
Lambhrútur undan Sigurfara frá
Smáhömrum efstur
Í flokki lambhrúta var efstur lamb
nr. 1 frá Svertingsstöðum 2 undan
Sigurfara 09-860 frá Smáhömrum.
Annar var lamb nr. 139 frá
Svertings stöðum 2 undan Ljúf
08-859 frá Árbæ og þriðji var lamb
nr. 31 frá Svertingsstöðum 2 sem er
í eigu Einars Gíslasonar á Brúnum.
Sá lambhrútur er undan Svala 10-862
frá Melum.
ó að sláturtíð sé að baki
ber svo við að naumt er
um „nýmeti“ í þessum
þætti. Illviðri genginna
daga hefur ekki fært mér neitt í
símann og svo er Pétur Ingvi
Pétursson erlendis og tímir ekki
að senda mér vísur. Því verður
kafað í koffort fyrri ára. Jón K.
Jóhannesson vökumaður á Nýja
Kleppi orti næstu þrjár vísur til
samverkakonu:
Ef ég horfi á hana,
ég finn þá mér stendur
ekki á sama um hana
einkum sé ég kenndur.
Hvað hún er æst og kossaheit,
hvergi fann ég slíka.
Ég hef reynt þær austur í sveit
og fyrir vestan líka.
Ég bið Guð að gæt‘ennar
gjálífis við pyttlu.
Þær verða sumar vanfærar
af voðalega litlu.
Stundum hafa vísnagátur hreyft
við lesendum. Birti hér eina eftir
Einar Guttormsson:
Á ýmsum leiðum borgast best,
á bæi nokkra er það fest,
í skiptum manna hrósið hlaut,
handarstyrks og vana naut.
Sigurður Breiðfjörð orti næstu
tvær vísur eftir því sem heimildir
herma, en meira hefur hann þó lagt
í seinni vísuna, sem er hringhend
sléttubandavísa:
Ég fór inn í Innstabæ,
og upp á loft hjá konum.
Þar ég stundum felur fæ
fyrir stórviðronum.
Lætur hlýna manni mær,
mætur sýnist friður.
Nætur dvína þannig þær
þrætur týnast niður.
Guðrún Þórðardóttir frá Vals-
hamri orti næstu vísu. Svipað
hefur mörgum bóndanum verið
farið við leitir nýliðinna daga:
Þegar ég er mædd og móð
mínum yfir kindum,
oft til hægðar yrki ég ljóð
ein á fjallatindum.
Guðmundur Jónsson skósmiður
á Selfossi orti næstu þrjár vísur um
þeirrar tíðar tískudrósir:
Nælonsokka niftin fríð,
nætur þokkagyðja,
á lofnarbrokki, ljúf og þýð,
lætur í rokk sig styðja.
Flott ef klæðist faldagná,
fínan smekk svo næri,
oftast pilsin eru þá
uppi á miðju læri.
Ofar færist faldurinn
á frökenunum glöðum.
Óðum styttist áfanginn
upp að Helgastöðum.
Næstu tvær snilldarvísur eru eftir
Guðrúnu K. Benónýsdóttur
búsetta á Hvammstanga:
Oft ég sveina fer á fund,
frá því greina sögur.
Veitir einatt unaðsstund
ástin hrein og fögur.
Sífellt mætir sorgin mér,
samt ei græt né kvarta,
henni sæti ætlað er
innst við rætur hjarta.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Þ
Hrútasýning Fjárræktarfélags Öngulsstaðahrepps:
Svertingsstaðahrútarnir röðuðu sér
í öll efstu sætin í báðum flokkum
Nýstárlegar sultur og prjónagraff
Árleg sultukeppni sem fór fram
á Safnahelginni 2.-4. nóvember
í Bjarkarhóli í Reykholti fór vel
fram. Dómarar voru Hallgrímur
Magnússon læknir, Ragnhildur
Þórarinsdóttir, garðyrkjumeistari
á Flúðum, og Sölvi Hilmarsson,
matreiðslumeistari á Sólheimum.
Verðlaun fyrir bestu sultuna
fékk Sigurlaug Jónsdóttir fyrir
hollustusultuna Sigurjón Sæland
og fyrir nýstárlegustu sultuna fékk
Bergþór G. Úlfarsson verðlaun. Sulta
Sigurlaugar var úr berjum úr garð-
inum; sólberjum, hindberjum, jarðar-
berjum og rifsberjum. Sigurjóns
sulta var gerð úr aðalbláberjum og
Bergþórs var úr stikkilsberjum og
rósanýpum úr garðinum.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir
þátttöku í prjónagraffverkefninu sem
byrjaði í mars síðastliðnum þegar
prjónað var utan um ljósastaurana
í Reykholti.
Verðlaun fyrir frumlegasta
graffið fékk Sigurlaug Jónsdóttir en
hún prjónaði utan um ljósastaurana
sitt hvoru megin við húsið þeirra
Hallgríms á Bjarkarbraut karl og
konu sem tákna þau hjónin, hann
með hlustunarpípuna og hún með
prjónana. Sú langafkastamesta var
Inga Ósk Jóhannsdóttir í Kistuholti
en hún prjónaði og heklaði utan um
hvorki meira né minna 72 staura.
/ehg
Sigurvegararnir í sultu- og prjóna-
graffkeppninni. Sitjandi, frá vinstri,
eru Hallgrímur, Ragnhildur og Sölvi
en aftan við þau eru Bergþór, Sigur-
laug, Inga Ósk og Sigurjón.
Efstu veturgömlu hrútarnir; lengst til vinstri er Stubbur
sem Hörður Guðmundsson heldur í, þá kemur Örvar
sem Gunnar Haraldsson heldur í og loks Röskur og Ingvi
Guðmundsson. Til hliðar má sjá húskarlinn á Höfða og
Guðmund á Fagrabæ.
Efstu lambhrútar; frá vinstri Hörður Guðmundsson með
lamb nr. 1, Hákon B Harðarson með lamb nr. 139 og Einar
Gíslason með lamb nr. 31. Á milli Harðar og Hákonar má
sjá Svein á Vatnsenda.
Kátt var á hjalla í fjárhúsunum þetta kvöld.Mikið var þuklað og fólk fylgdist spennt með.
Sveinn á Vatnsenda og Þröstur á Gilsbakka fara yfir málin.
Hermann í Klauf útskýrir fyrir Sigfúsi á Ytra-Hóli og Ingólfi
á Uppsölum hvað verið sé að mæla með ómsjánni.
Mikil ásókn hefur verið í að koma
hrossum til slátrunar hjá SS á
Selfossi að undanförnu og langur
biðlisti. „Það er rétt að það eru
æði mörg hross á biðlista eins og
er, þrátt fyrir að við höfum undan-
farnar vikur og mánuði slegið öll
okkar fyrri met í slátrun hrossa,“
sagði Guðmundur Svavarsson,
framleiðslustjóri á skrifstofu SS
á Hvolsvelli.
„Við munum bæta enn frekar
í hrossaslátrun nú þegar sauðfjár-
slátrun er afstaðin og ég á ekki von á
að biðlistinn endist okkur mikið fram
yfir áramót. Mest eftirspurn er eftir
kjöti af feitum og stórum hrossum, en
við erum með viðskiptavini í Sviss,
Rússlandi og Japan, auk innanlands-
markaðsins. SS greiðir bændum
(HRIA-flokkur) 145 kr./kg staðgreitt
á föstudegi eftir innleggsviku.“
/MHH
Hundruð hrossa bíða slátrunar hjá SS á Selfossi:
Búið að slá öll fyrri met í hrossaslátrun
– mest eftirspurn eftir kjöti af feitum og stórum hrossum segir framleiðslustjóri hjá SS