Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201212
Fréttir
Vefsíða Fálkaseturs Íslands formlega opnuð:
Aukið framboð á náttúru-
tengdri afþreyingu
Vefsíða Fálkaseturs Íslands var
opnuð formlega á dögunum með
athöfn í Gljúfurstofu, sem er
gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs
í Ásbyrgi, en fálkasetrið sjálft
var stofnað á sama stað í mars á
síðastliðnu ári. Á vefsíðunni er
margvíslegar upplýsingar að finna,
fróðleiksmolar um fálkann og
rjúpuna og rannsóknir á þessum
tveimur fuglum. Þá er fjallað
um verndun fálka auk þess sem
upplýsingar eru um Theodór
Gunnlaugssonar í Bjarmalandi, en
Fálkasetrið er tileinkað minningu
hans.
Viljum auka þekkingu og virðingu
fyrir fálkanum
Hjörleifur Finnsson, for maður
stjórnar Fálkaseturs Íslands og
þjóðgarðsvörður Vatnajökuls þjóðgarðs
á Norðursvæði, segir að Fálkasetrið
hafi sett sér metnaðarfull markmið til
framtíðar, en stefnt sé að því að setrið
verði helsti miðlari vísindalegrar
þekkingar og vöktunar á fálka- og
rjúpnastofninum til almennings hér
á landi „Við höfum einnig hug á að
auka þekkingu og virðingu almennings
á fálkanum, lifnaðarháttum hans,
vistfræði og tengslum hans við aðrar
fuglategundir,“ segir Hjörleifur og
bætir við að eins sé ætlunin að halda
uppi lifandi starfsemi þar sem tengsl
vísindalegrar þekkingar og menningar
séu í hávegum höfð. „Við höfum
einnig sett okkur það markmið að
skapa atvinnu í kringum þetta og hafa
jákvæð áhrif á samfélagið,“ segir hann.
Fálkasetrið var formlega stofnað
í Ásbyrgi í byrjun mars í fyrra og
byggir það á fjórum meginþáttum
að sögn Hjörleifs. Fyrir það fyrsta á
að nýta einstakar aðstæður í Ásbyrgi
og Jökulsárgljúfrum til að fræða
almenning um íslenska fálkann,
lifnaðarhætti hans og tengsl við aðrar
tegundir og þá sérstaklega rjúpuna.
„Með stofnun setursins aukum
við einnig framboð á náttúrutengdri
afþreyingu og komum til móts
við vaxandi áhuga almennings á
fuglaskoðun,“ segir Hjörleifur,
en samtökin Fuglastígur á Norð-
austurlandi tóku ásamt fleirum
þátt í undirbúningi að stofnun
Fálkasetursins. Setrinu er einnig
ætlað að stuðla að verndun íslenska
fálkastofnsins með aukinni fræðslu
og miðlun vísindalegrar þekkingar á
tegundinni.
Kjöraðstæður í Jökulsárgljúfrum til
að fræða um fálka
Hjörleifur segir að í Gljúfurstofu,
gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs í
Ásbyrgi, sé aðstaða til að koma upp
fræðslu um fálkann og tengja hana
við aðra fræðslu sem þjóðgarðurinn
veiti. Þá nefnir hann að unnt sé að
nýta kjöraðstæður Jökulsárgljúfra til
að fræða gesti um fálka og sýna hann
í náttúrulegu umhverfi, en slíkt sé gert
með öflugum sjónaukum, undir eftirliti
sérfræðinga, án þess að trufla fuglana.
Fuglaskoðarar og fuglaáhugamenn
hafa í auknum mæli sóst eftir að sjá
fálkann í náttúrulegu umhverfi og
segir Hjörleifur aðstæður hvergi betri
til slíks en í Jökulsárgljúfrum.
„Eitt af markmiðum Fálkaseturs-
ins er einmitt að hagnýta náttúrulega
sérstöðu Norðausturlands varðandi
þessar fuglategundir, fálkann og
rjúpuna, og lengja þar með dvöl
ferðamanna á svæðinu, en það kemur
samfélaginu hér um slóðir öllu til góða.
Við vonumst til þess að með tilkomu
Fálkasetursins muni ferðamönnum í
Norður-Þingeyjarsýslu fjölga, sem
aftur hefur jákvæð áhrif á ferðaþjónustu
á svæðinu,“ segir Hjörleifur.
Næstu skref
Fálkasetur Íslands er alfarið rekið
af styrkjum og því háð velvilja
stofnana, fyrirtækja og almennings.
Að sögn Hjörleifs komu fjölmargir
að uppsetningu vefsíðunnar, gáfu
myndir og vinnu. Stærst var þó framlag
Vina Vatnajökuls, hollvinasamtaka
Vatnajökulsþjóðgarðs, sem styrktu
samtökin til vefsíðugerðarinnar með
1.400.000 króna framlagi. „Vil ég nota
tækifærið og þakka þeim öllum,“ segir
hann.
Um næstu skref í starfi fálka-
setursins segir Hjörleifur: „Við
munum halda áfram að byggja upp
það fræðslustarf sem þegar er hafið,
fara í göngur um fálkaslóðir og
betrumbæta heimasíðuna. En næsta
stóra verkefni er uppsetning sýningar
í vannýttu rými Gljúfrastofu og erum
við þegar byrjuð að sækja um styrki
til þess.“ Styrkjaumhverfi á Íslandi
segir hann þó ekkert allsnægtaborð „og
því verðum við að líta á uppbyggingu
Fálkasetursins sem langtímaverkefni
meðan Alladín kemur ekki með
lampann sinn“.
Theodór frá Bjarmalandi
Fálkasetrið er sem fyrr segir tileinkað
minningu Theodórs Gunnlaugssonar
frá Bjarmalandi í Öxarfirði, en hann
var náttúruskoðari, veiðimaður og
rithöfundur. Um hann má lesa á
vefsíðu Fálkaseturs. Theodór fæddist á
heiðarbýlinu Hafurstöðum í Öxarfirði
hinn 27. mars 1901, en Hafurstaðir eru
í næsta nágrenni við Jökulsárgljúfur.
Theodór var mikið náttúrubarn
og beindist áhugi hans einkum að
öllu því sem tengdist náttúrunni og
verndun hennar. Frá gljúfrum Jökulsár
aflaði hann sér ómældrar þekkingar
á náttúru landsins, en enginn þekkti
svæðið meðfram Jökulsá eins vel og
hann. Hann fylgdist glöggt með atferli
dýra og voru fálkinn og rjúpan honum
afar hugleikin. Einnig þekkti hann vel
til refa, en hann stundaði refaveiðar
um árabil. Theodór var sískrifandi og
var honum mikið í mun að miðla af
þekkingu sinni um náttúruna. Eftir
hann liggja þrjár bækur, fjöldi greina
sem birtar voru í ýmsum tímaritum,
óbirt efni og sendibréf. „Til gamans
má geta þess að Theodór skrifaðist á
við yfir 800 einstaklinga í yfir 3.000
bréfum og að hann tók afrit af því
sem hann sendi frá sér. Þarna liggur
því sannkallaður fjársjóður fyrir
verkefnalausa sagnfræðinga,“ segir
Hjörleifur.
/MÞÞ
Útilegukindur úr Eyjafjarðardölum með
mestan fallþunga haustsins hjá SAH
– Fullorðin ær vóg 50,4 kg og tveir lambhrútar hennar voru 33 og 29,4 kg
Bændur í Eyjafirði fóru í
leiðangur á dögunum til að
handsama útilegukindur sem
hafst hafa við í nokkur ár inni
í Eyjafjarðardölum. Höfðu þeir
níu kindur upp úr krafsinu, þar af
þrjá rígfullorðna hrúta og einnig
fullorðnar ær með lömbum.
Leiðangursmenn voru þrír, þeir
Birgir Arason bóndi í Gullbrekku
í Eyjafjarðarsveit, Hákon Bjarki
Harðarson á Svertingsstöðum
og Jónas Vigfússon, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveitar, sem fylgir
greinilega vel eftir hlutverki sínu
hvað varðar fjallskilamál í sinni
sveit. Ekki þurfti því þyrlu með
vopnuðum mannskap til að ná þessu
fé eins og villifénu í Tálkna fyrir
nokkrum árum.
Allt féð var ómarkað
Allar kindurnar sem þeir náðu voru
ómarkaðar, bæði þær fullorðnu og
lömbin. Það bendir til þess að féð
hafi verið búið að hafast þarna við
í þó nokkur ár.
Afurðamesta féð hjá SAH
Var féð sent til förgunar eins og
reglur kveða á um varðandi ómarkað
fé. Þar á meðal var tvílembd ær,
sem samkvæmt Birgi Arasyni
í Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit
reyndist skila mestum afurðum
haustsins í sláturhúsi SAH
afurða á Blönduósi. Skrokkurinn
af ánni sjálfri vóg 50,4 kg en
tvílembingshrútarnir undan henni
skiluðu annars vegar 33,0 kg skrokk
sem flokkaðist í U5 og hins vegar
29,4 kg skrokk sem flokkaðist í U4.
Til samanburðar hefur Bænda-
blaðið birt fréttir á liðnum vikum
af sérlega vænu fé víða af landinu.
Þar má nefna tvö lömb frá Fossi í
Arnarfirði, annað vóg 30,4 kg og
hitt 30,6 kg.
Þá var einnig sagt frá Ými,
konungi lambanna í Stykkishólmi,
sem vóg 74 kg þegar hann kom af
fjalli í haust.
Indriði Aðalsteinsson, bóndi
á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp,
upplýsti blaðið svo um tvo
lambhrúta sem hvor um sig vógu 72
kg við komuna af fjalli og reyndust
svo hafa 29 og 29,6 kg fallþunga í
sláturhúsinu á Blönduósi í haust. Þá
var meðalfallþungi á lömbum frá
Indriða bónda á Skjaldfönn 20,8 kg.
/GEH/HKr.
Útilegufé í Eyjafjarðardölum. Kindin fremst á myndinni er ekki dauð eins og halda mætti, heldur þverskallaðist hún
bara við að verða rekin heim og lagðist fyrir þarna. Fjær sést Jónas Vigfússon, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, með
sannkallað þungaviktarfé fyrir neðan sig. Þessar kindur voru líklega að komast í návígi við menn í fyrsta skipti á
ævinni og hafa því lítinn áhuga haft á að láta reka sig eins og einhverjar ómerkilegar rollur í rétt.
Myndir / Hákon Bjarki Harðarson
draga sig mótþróalaust til byggða.
Birgir Arason að leita að útilegufé í Hraunárdal. Ef myndin prentast vel má
sjá þrjár kindur ofarlega í gilinu.
Fálki gefur ungum að éta. Mynd / Daníel Bergman