Bændablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 52
53Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 29. nóvember
Bækur
Sögufélag Ísfirðinga hefur gefið
út bókina Flogið til Ísafjarðar
eftir Jón Pál Halldórsson. Þarna
er á ferðinni afar áhugavert
rit sem lýsir hinum stórstígu
framförum í samgöngumálum
Ísfirðinga og reyndar Íslendinga
allra á öldinni sem leið með
tilkomu farþegaflugsins.
Rakin er í stórum dráttum saga
flugsins hér á landi eftir stofnun
Flugfélags Íslands 1919 og
flugsamgangna út frá Reykjavík
og ekki síst hvað varðar sjúkraflug.
Flugfélag Ísalnds stundaði einmitt
farþegaflug til Ísafjarðar, fyrst
á flugbátum og síðar á öðrum
flugvélum eftir opnun flugvallarins
á Ísafirði árið 1963. Félagið hóf
reglubundið farþega- og póstflug
til Ísafjarðar árið 1928 og var fyrsta
ferðin undir stjórn Alexanders
Jóhannessonar á Súlunni hinn 4.
júní það ár. Var lent á Pollinum
og var Alexander og félögum
fagnað mjög af Ísfirðingum, sem
skáluðu við þá í kampavíni. Þess
má til gamans geta að höfundur
bókarinnar var afgreiðslumaður
Flugfélags Íslands á Ísafirði
þegar félagið opnaði afgreiðslu á
staðnum árið 1949.
Flugfélag Íslands og um tíma
Flugfélag Akureyrar voru þó
ekki ein um hituna í flugmálum
hér á landi nema til 1944 þegar
flugfélagið Loftleiðir var stofnað.
Þann 6. apríl 1944 hófu Alfreð
Elíasson og Kristinn Olsen fyrsta
farþegaflug Loftleiða til Ísafjarðar
á Stinson-flugvél á flotholtum og
tók flugið fram og til baka milli
Reykjavíkur og Ísafjarðar nærri
þrjár klukkustundir. Í framhaldinu
var einnig flogið á Grumman-
flugbátum Loftleiða.
Jón sagði athyglisvert að skoða
þessa flugsögu í ljósi þess hvað
hún væri í raun stutt. „Þetta byrjaði
í raun ekki af krafti fyrr en um
1950 svo þetta eru ekki nema um
60 ár.“
Þessi bók Jóns Páls er full
af fróðleik og er skemmtileg
samantekt heimilda úr sögu
flugsamgangna á Íslandi. Höfundur
hefur áður skrifað bækur um
ísfirskt atvinnulíf á fyrstu áratugum
lýðveldistímabilsins sem innihalda
afar merkilegar heimildir frá þeim
tíma. Þær heita Frá línuveiðum til
togveiða, Fiskvinnsla í sextíu ár
og Kaupmaður á hverju horni. Eru
allar þessar bækur athyglisvert
framtak sem áhugafólk um
atvinnu sögu og mannlíf á Ísafirði
ætti ekki að láta framhjá sér
fara. Reyndar sagði Jón Páll í
samtali við blaðamann að bókin
Frá línuveiðum til togveiða væri
algjörlega uppseld. Það er því enn
meiri ástæða fyrir fólk til að drífa
sig að nálgast nýju bókina og hinar
tvær áður en þær seljast upp.
„Þetta eru orðnar þúsund
blaðsíður í það heila og nú er ég
hættur,“ segir Jón Páll Halldórsson.
„Ég gerist gamall eins og Marteinn
vinur minn Davíðsson sagði.“
/HKr.
Flogið til Ísafjarðar
Junkkari sturtuvagnar
Til afgreiðslu af lager
10 tonna sturtuvagn á kr. 1.190.000,- án vsk. ( kr. 1.493.450,- m/vsk.)
13 tonn asturtuvagn á kr. 1.490.000,- án vsk. (kr. 1.869.950,- m/vsk.)
Aukabúnaður: Upphækkanir á skjólborð.
Dalvegur 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2
Úr hugarheimi er safn
hugleiðinga Bjarna
E. Guðleifssonar,
náttúrufræðings á
Möðruvöllum.
Hugleiðingarnar eru
um margvís leg efni,
svo sem tímann, frelsið,
m e ð a l m e n n s k u n a ,
fegurð, erfðir, menn-
ingu og girðingar.
Sumar þeirra eru
alvarlegar, aðrar
í léttari kantinum,
og vafalítið finnur
margur þarna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Ritið er jafnframt
afmælisrit Bjarna, en
hann varð sjötugur í
sumar.
Úr hugarheimi