Bændablaðið - 15.11.2012, Page 54
55Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Fjölgun refa
og fjárframlög
til refaveiða
er dæmi um
það mikla
skilningsleysi
sem ríkir hjá
u m h v e r f i s -
ráðherra fyrir
hönd Vinstri
grænna þegar
kemur að
mál efnum lands byggðar og land-
búnaðar. Það er staðreynd að ref
hefur fjölgað gríðarlega á landinu
með tilheyrandi neikvæðum
áhrifum. Víða er orðið lítið
mófugla líf og dýr bítum fjölgar,
líkt og óveðrið í haust sýndi okkur.
Þrátt fyrir stefnu ríkis stjórnarinnar
virðist skilningur einstakra
stjórnar liða vera að aukast á
mikilvægi þess að efla refaveiðar
og endur skipuleggja þær.
Vilja friða ref
Fátt bendir til annars en að
ríkisstjórnin með umhverfisráðherra
í stafni vilji friða refi. Í umræðum
um refaveiðar á Alþingi nýlega sagði
umhverfisráðherra að ekkert lægi
fyrir um áhrif refaveiða á fuglalíf og
dýrbitið fé og rannsaka þyrfti málið
frekar. Í ljósi mikillar umræðu um
fjölgun refa væri hins vegar búið að
skipa sérstaka nefnd til að fara yfir
hvort bregðast þyrfti við.
Í fjárlagafrumvarpi sem lagt var
fram á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar
hafði umhverfisráðherra tekið
út fjárveitingar til refaveiða.
Fjárlaganefnd ákvað hins vegar
að setja aftur inn fjárveitingu til
refaveiða. Rökin voru m.a. að
virðisaukaskattur af refaveiðum
hefði, vegna mótframlags frá
sveitarfélögum, verið hærri en
fjárframlag ríkisins. Fjárlaganefnd
beindi þeim tilmælum jafnframt til
ríkis stjórnarinnar að endurskipuleggja
refaveiðar á landsvísu og leggja fram
tillögur við næstu fjárlagagerð. Ári
síðar var umhverfisráðherra aftur
búinn að strika þennan lið út úr
fjárlögum og hafði þá fengið nægilega
marga þingmenn í lið með sér.
Skynsemin sigrar að lokum
Eftir því sem fjallað er meira um
málið og fréttum af dýrbitnu fé og
fækkun fugla fjölgar hafa einstakir
stjórnarliðar lýst vilja til að endurskoða
ákvörðun umhverfisráðherra. Sem
dæmi eru nokkrir stjórnar liðar
meðflutningsmenn þingsályktunar-
tillögu sem undirritaður hefur lagt
fram og snýst um að endurskoða
skipulag refaveiða. Í mjög mörgum
umsögnum landsbyggðar sveitarfélaga
um fjárlagafrumvarp 2013 er
fjárlaganefnd hvött til þess að setja
inn fjármagn til refaveiða. Formaður
fjárlaganefndar lét hafa eftir sér
nýverið á Alþingi að þetta mál væri
til skoðunar í fjárlaganefnd og hans
vilji stæði til að endurskoða málið við
afgreiðslu fjárlaga 2013. Á meðan
öfgarnar ráða för fjölgar refnum
áfram, fugli fækkar og dýrbitið fé
verður algengari sjón. Skynsemin
mun sigra öfgarnar í þessu líkt og
öðru, það er spurning hvort það gerist
við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2013
eða með alþingiskosningum í apríl á
næsta ári.
Ásmundur Einar Daðason
Alþingismaður
Framsóknarflokksins
Refaveiðar – Fleiri vilja breytingar
Ásmundur Einar
Daðason
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Dreift í 25 þúsund eintökum á 340 dreifingarstaði