Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 45
| FÓLK | 3 Bio-Kult Pro-Cyan er nýjung á markaði sem vinnur gegn þvagfærasýkingu. Varan er háþróuð en hún inniheldur þrívirka formúlu, sem hefur verið vísindalega þróuð og staðfest. Trönuber hindra að E. coli- bakterían nái fótfestu við slímhúð þvagrásar og skolar bakteríunni út með þvaginu. Hlutverk gerlanna og A-vítamíns í Bio-Kult Pro-Cyan er að hjálpa líkamanum að við- halda eðlilegu bakteríumagni í þörmum, einnig að viðhalda eðli- legri starfsemi í þvagrásarkerfinu. Hylkin innihalda trönuberja- þykkni (Cranberry extract), mjólkursýrugerla (Lacto bacillus acidophilus og Lactobacillus plantarum) og A-vítamín. Fjörutíu prósent af ráðlögðum dagskammti af A-vítamíni eru í dagskammtinum af Bio-Kult Pro-Cyan-hylkjunum en þau á að taka, tvö hylki í senn, einu sinni til tvisvar á dag til að minnka líkur á þvagfærasýkingu. Bio-Kult Pro-Cyan er sérstaklega hannað fyrir barnshafandi konur en þær ættu þó alltaf að ráðfæra sig við fagfólk áður en inntaka hylkjanna hefst. Hylkin henta líka fyrir börn en mælt er með hálfum skammti af ráðlagðri skammta- stærð fyrir fullorðna fyrir börn undir tólf ára. Skoðið heimasíðuna, icecare.is VINNUR GEGN ÞVAGFÆRASÝKINGU ICECARE KYNNIR Bio-Kult Pro-Cyan er ný vara sem vinnur gegn þvagfærasýkingu. Varan hentar bæði börnum og fullorðnum. BIO-KULT PRO-CYAN Nýjung frá Bio-Kult sem minnkar líkur á þvag- færasýkingum. TRÖNUBER Trönuber hindra að E. coli-bakterían nái fótfestu við slím- húð þvagrásar og skolar bakteríunni út með þvaginu. Bio-Kult Candéa er öflug blanda af vinveittum gerlum, hvítlauk og þrúgukjarnaþykkni (e. grape seed extract). Það virkar sem öflug vörn gegn Candida-sveppasýkingu í meltingar- vegi kvenna og karla. Sveppasýking getur lýst sér á mismunandi hátt og komið fram með ólíkum hætti. Einkenni sveppasýkingar geta meðal ann- ars verið munnangur, fæðuóþol, pirringur, skap- sveiflur, þreyta, meltingartruflanir, brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni og alls kyns húðvandamál. Sigríður Gísladóttir þjáist af vefjagigt ásamt því að vera með hjartagalla og þarf þar af leiðandi að taka mikið af lyfjum. Afleiðingar þess eru að Candida-sveppurinn er sífellt að angra hana og veldur henni bæði slæmum húðsýkingum og innvortis óróleika. „Eftir að ég kynntist Bio-Kult Candéa og hóf inntöku þess reglulega þá hef ég lagast mjög mikið og sveppasýkingin lætur aðeins á sér kræla ef ég gleymi að taka hylkin,“ segir Sig- ríður. „Ég tek tvö hylki á dag og reyni að taka þau um miðjan daginn því þá er ég ekki að taka nein lyf samhliða. Læknirinn minn er mjög ánægður með að ég skuli taka Bio-Kult Candéa fyrst það virkar svona vel. Ég hef breytt matarræðinu og tekið mikið til út sykur og ger en það dugar ekki til hjá mér þar sem ristillinn minn er ofvirkur. Bio- Kult Candéa heldur öllu í jafnvægi og ég gef því mín bestu meðmæli.“ Bára Árný Sigþórsdóttir hefur einnig góða reynslu af notkun Bio-Kult Candéa-hylkjanna en hún hefur tekið þau í nokkra mánuði og finnur mikinn mun á sér. „Ég var alltaf með sprungna hæla og exem á fótunum. Ég hafði reynt að ná því niður með ýmsum kremum en eftir tvo mánuði á Bio-Kult Candéa fór exemið að minnka og er í dag alveg horfið. Ég þakka þann góða árangur hylkj- unum frá Bio-Kult Candéa. Einnig hef ég fundið mikinn mun á mér hve þörf mín fyrir sætindi hefur minnkað sem mér finnst alveg frábært,“ segir Bára Árný. Bio-Kult Candéa-hylkin henta vel fyrir alla, einnig fyrir barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. Þau fást í öllum apótekum, heilsuversl- unum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast ýtarlegar upplýsingar í ís- lenskum bæklingi á heimasíðu Icecare, Icecare.is og heimsækið Facebook-síðu Bio-Kult Candéa til að taka þátt í léttum leik. ÖFLUG VÖRN GEGN SVEPPASÝKINGUM Sigríður Gísladóttir hefur lagast af sveppasýkingum og Bára Árný Sig- þórsdóttir er betri af exemi eftir að þær fóru að taka Bio-Kult Candéa hylki. SIGRÍÐUR „Eftir að ég kynntist Bio-Kult Candéa og hóf inn- töku þess reglulega hef ég lagast mjög mikið og sveppa- sýkingin lætur að- eins á sér kræla ef ég gleymi að taka hylkin.“ HELGIN BÁRA ÁRNÝ „Ég var alltaf með sprungna hæla og exem á fótunum. Ég hafði reynt að ná því niður með ýmsum kremum en eftir tvo mánuði á Bio-Kult Candéa fór exemið að minnka og er í dag alveg horfið.“ MEÐ VEFJAGIGT Sigríður Gísladóttir hefur þurft að taka inn mikið af lyfjum vegna veikinda. GÓÐAR VÖRUR Birna Gísladóttir, sölu- og markaðs- stjóri hjá Icecare. GÓÐ REYNSLA Bára Árný Sigþórsdóttir hefur notað Bio- Kult með góðum árangri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.