Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 10. nóvember 2012 21
Ég heiti Joanna og ég er pólsk. Ég flutti til Íslands fyrir níu árum.
Þegar ég kom hingað þurfti ég fyrst
að læra íslensku og setja mig inn í
íslenskt samfélag. Ég þurfti að
afla mér upplýsinga um réttindi
mín sem innflytjandi. Hvar, hve-
nær og hvernig átti ég að nálgast
slíkar upplýsingar? Það var oft erf-
itt því ég talaði litla íslensku og ég
vissi ekki hvert ég átti að leita. Oft
mátti ég ganga á milli stofnana og
fara erindisleysu því ég vissi ekki
hvar þjónustuna var að finna. Þetta
þekkja flestir sem hafa tekið sig
upp og flust á milli landa.
Fólk sem flytur til Reykjavíkur á
að geta sótt allar upplýsingar á einn
stað, hvort sem það kemur frá Pól-
landi eða Dalvík. Góð upplýsinga-
gjöf er frumforsenda þess að nýjum
íbúum finnist þeir vera öruggir og
vilji setjast að í borginni. Reykjavík
er í fararbroddi sveitarfélaga þegar
kemur að þjónustu við innflytjend-
ur og heldur m.a. úti pólskum og
enskum þjónustuvef. Á mannrétt-
indaskrifstofu Reykjavíkurborgar
er líka unnið mikilvægt starf í þjón-
ustu við innflytjendur. En alltaf má
bæta þjónustuna og þá þarf að taka
tillit til þeirra sem nota hana því
þeir vita best hvað má gera betur.
Á Fjölmenningarþingi Reykja-
víkur borgar sem nú er haldið í
annað sinn er yfirskriftin „Tölum
saman!“ Þingið er mikilvægur vett-
vangur fyrir innflytjendur því þar
gefst þeim tækifæri til að koma
skoðunum sínum á framfæri og
ræða hvernig miðla megi betur upp-
lýsingum til og á milli inn flytjenda.
Enn fremur geta þingfulltrúar tekið
þátt í að móta fjölmenningarstefnu
til framtíðar og leggja sitt af mörk-
um til að einfalda hlutina fyrir nýja
íbúa og hjálpa þeim að aðlagast
íslensku samfélagi. Mér finnst
mikilvægt að við tölum saman,
miðlum reynslu okkar og komum
með ábendingar um það sem betur
má fara. Þannig getum við hjálpast
að og gert gagn í nýju samfélagi –
öllum til hagsbóta.
Tölum saman! Let‘s talk! Poroz-
mawiajmy!
Tölum saman! Let‘s
talk! Porozmawiajmy!
Málefni Hjúkrunarheimilis-ins Eirar hafa verið mikið
til umfjöllunar síðustu daga. Í því
sambandi ber að halda ákveðnum
staðreyndum til haga.
Í fyrsta lagi er rétt að undir-
strika að rekstur Eirar er í dag
tryggur, skilar jákvæðum niður-
stöðum og vel að honum staðið.
Í öðru lagi er sá vandi sem um
hefur verið fjallað að undanförnu
úr fortíðinni kominn á ábyrgð
þeirra sem þá ráku heimilið. Á
þeim málum hefur nú þegar verið
tekið og gripið til viðeigandi ráð-
stafana.
Í þriðja lagi hefur Hjúkrunar-
heimilið Eir verið að hluta til fjár-
magnað með opinberum fjármun-
um í gegnum framkvæmdasjóð
aldraðra, með daggjöldum og með
lánum frá Íbúðalánasjóði. Á fjár-
lögum yfirstandandi árs er gert
ráð fyrir útgjöldum til Eirar upp á
u.þ.b. 1,5 milljarða króna.
Fjárlaganefnd Alþingis ber
skylda til að hafa eftirlit með fjár-
málum ríkisins og mun sinna því
hlutverki sínu varðandi málefni
Eirar.
Verst er þó sú staða sem fjöldi
eldri borgara hefur verið settur í
vegna fjárhagsstöðu Eirar. Þeir
einstaklingar sem þar eiga í hlut
eiga allan okkar stuðning. Það eru
skýr skilaboð til þeirra frá fulltrú-
um allra flokka í fjárlaganefnd,
þvert á flokka, að þeirra hagsmunir
verði tryggðir eins og mögulegt er
að gera. Það er sömuleiðis nauðsyn-
legt að undirstrika að séð verður til
þess að Hjúkrunarheimilið Eir mun
áfram hér eftir sem hingað til veita
alla þá þjónustu sem veitt er í dag.
Það er síðan brýnt að unnið
verði hratt og vel að lausn fjár-
hagsvanda Eirar í samstarfi allra
hlutað eigandi aðila. Fjárlaganefnd
Alþingis mun koma að þeirri vinnu
eins og þörf er á hverju sinni.
Staðreyndir um Eir
Fjölmenning
Joanna
Marcinkowska
innflytjandi
Fjármál
Björn Valur
Gíslason
formaður
fjárlaganefndar Alþingis
www.volkswagen.is
Volkswagen Jetta Highline
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Jetta
Fullkominn
fjölskyldubíll
Jetta Highline er ríkulega búinn staðalbúnaði
á hagstæðu verði. Má þar meðal annars
nefna 16” álfelgur, leðurklætt fjölrofa stýri,
nálgunarvara í stuðurum, ESP stöðugleika-
stýringu, þokuljós, hita í sætum, rafstýrða
upphitaða spegla og margt fleira.
Volkswagen Jetta Highline
kostar aðeins frá
3.850.000 kr.
Save the Children á Íslandi