Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 10
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR10
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn
13. nóvember næstkomandi, kl. 17.00 á
Stórhöfða 31, gengið inn Grafarvogsmeginn.
MATVÍS félagar
Hvað er klukkan þarna? e. Tsai Ming-Liang (2001)
Nýr konfúsíanismi og umboð himinsins
Oddi 101, þriðjudaginn 13. nóv. kl. 17
Pólitískir leiðtogar Kína hafa lagt aukna áherslu á
endurmat konfúsísku hefðarinnar að undanförnu.
Hvernig endurspeglast konfúsíska hugtakið „umboð
himinsins“ (tianming) í stjórnmálum Kína nútímans?
Bart Dessein er prófessor í kínverskum fræðum við
Háskólann í Ghent. Erindið verður flutt á ensku.
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós kynnir fyrirlestur Bart Dessein
Kvikmynd vikunnar:
Gimli 102, mánudaginn 12. nóv. kl. 12:00-13:20
Námskeið í reikningsskilum
IFRS 101 21. nóv. 16.500 kr.
Nýir staðlar og breytingar 23. nóv. 16.500 kr.
á stöðlum (IFRS Update)
Fjármálagerningar – 27. nóv. 16.500 kr.
helstu reglur IFRS
Framsetning reikningsskila 29. nóv. 12.000 kr.
samkvæmt IFRS
Ársreikningalög 5. des. 16.500 kr.
Hlutdeildaraðferð og 14. des. 16.500 kr.
samstæðureikningsskil
Námskeið í endurskoðun
Fagleg dómgreind og 16. nóv. 16.500 kr.
matsliðir í reikningsskilum
Endurskoðun 101 20./22. nóv. 30.000 kr.
(tveggja daga námskeið)
Innra eftirlit og sviksemi 11. des. 16.500 kr.
Kennarar eru sérfræðingar KPMG í reiknings skil um
og endur skoðun. Námskeiðsgögn á ensku fylgja
og veita námskeiðin löggiltum endur skoð end um
endur mennt unar einingar hjá FLE.
Skráning og allar nánari upplýsingar um
einstök námskeið er að finna á kpmg.is
Námskeið í
reiknings skilum
og endur skoðun
Röð nám skeiða um alþjóðlega
reikn ings skila staðla, lög nr. 3/2006
um ársreikninga og um endur skoð un.
Námskeiðin eru öllum opin.
kpmg.is
Skattahækkanir milli 2008 og 2013*
Bensíngjald
Tóbaksgjald
Erfðafjárskattur
Veiðigjöld
Kolefnisgjald og orkuskattur
Bankaskattur og fjársýslusk.
Vörugjöld á tiltekin matvæli
Virðisaukaskattur
Tryggingagjald
Auðlegðarskattur
Fjármagnstekjuskattur
Tekjuskattur hlutafélaga
Afnám sjómannaafsláttar
Tekjuskattur einstaklinga
0,0 5,0 10,0 15,0 20,0 25,0
* Á verðlagi 2013 í milljörðum
króna – þá má geta þess að olíu-
gjald hefur lækkað um 1,1 milljarð.
EFNAHAGSMÁL Samtök atvinnulífs-
ins (SA) leggja til að skattar verði
á næstu árum lækkaðir um sem
nemur 2,5% af landsframleiðslu.
Telja samtökin að þær breyting-
ar sem gerðar hafa verið á skatt-
kerfinu frá bankahruni hafi verið
skaðlegar bæði skattstofnum og
efnahagslífinu og að tímabært sé
að vinda ofan af þeim.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri skýrslu SA sem
nefnist Skattstofnar atvinnu-
lífsins – ræktun eða rányrkja?
Skýrslan var kynnt á fundi í
Hörpu í gær.
„Skattamál eru eitt helst
áhyggjuefni félagsmanna í Sam-
tökum atvinnulífsins. Sífelldar
breytingar á sköttum koma illa
við fyrirtækin og kalla stöðugt
fram viðbrögð,“ sagði Vilmundur
Jósefsson, formaður SA, á fund-
inum í gær og bætti við: „Ólíkt
því sem stjórnvöld virðast trúa
þá breyta skattar hegðun þeirra
sem þá greiða. Skattstofnar
breytast því og geta rýrnað ef
óskynsamlega er að þeim stað-
ið eða ef skattahækkanir verða
óhóflegar.“
Fram kemur í skýrslu SA að
skattar hafi frá árinu 2008 hækk-
að um 87 milljarða króna á verð-
lagi ársins 2013. Samsvarar það
4,5% af landsframleiðslu eða
um 270 þúsundum króna á hvern
landsmann á ársgrundvelli. Þá er
í skýrslunni sett fram gagnrýni á
ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki
virt samninga við atvinnulífið og
forðast að hafa samráð við það
vegna skattbreytinga.
Í skýrslunni eru einnig kynnt-
ar tillögur um breytingar á skatt-
kerfinu. Telja SA tillögurnar til
þess fallnar að bæta samkeppnis-
hæfni atvinnulífsins og örva fjár-
festingar, atvinnusköpun og þar
með hagvöxt.
Leggur SA til að skattar verði
á næstu árum lækkaðir um 47
milljarða króna. Vonast SA þó
Skattar lækki til að
örva efnahagslífið
Samtök atvinnulífsins kynntu í gær nýja skýrslu um skattamál. Telja samtökin
að skattahækkanir síðustu ára hafi valdið efnahagslífinu skaða og leggja til að
skattar verði á næstu árum lækkaðir um sem nemur 2,5% af landsframleiðslu.
HEIMILD: SA
Helstu tillögur Samtaka atvinnulífsins um breytingar á skattkerfinu
eru eftirfarandi en alls leggur SA til að skattar verði lækkaðir um sem
nemur 2,5% af landsframleiðslu á næstu árum:
■ Atvinnutryggingagjald lækki árið 2013 úr 2,45% í 1,7% og tryggingagjald í
heild úr 7,79% í 7,04%. Lækkun tryggingagjalds haldi áfram eftir það eins
og minnkandi atvinnuleysi gefur tilefni til.
■ Sú hækkun veiðigjalds sem Alþingi samþykkti í vor verði afnumin.
■ Tekjuskattur fyrirtækja verði lækkaður úr 20% í 15% eins og hann var til
ársins 2009.
■ Fjármagnstekjuskattur verði lækkaður í áföngum úr 20% og aftur í 10%.
■ Vörugjöld verði afnumin með öllu og stimpilgjöld í áföngum.
■ Fallið frá flutningi gistiþjónustu úr lægra virðisaukaskattsþrepi í hærra
þrepið. Þá verði lægra þrepið hækkað í áföngum næstu árin til að fjár-
magna lækkun á hærra þrepinu og á vörugjöldum.
■ Skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa í nýsköpunarfyrirtækjum verði
tekinn upp á ný.
Tillögur Samtaka atvinnulífsins
eftir því að verði tillögunum
framfylgt stuðli þær að örari
hagvexti og hafi þar með jákvæð
áhrif á skattstofna. Þá vill SA
mæta tekjutapi ríkissjóðs með
endurbótum á vissum skatt-
stofnum.
magnusl@frettabladid.is