Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 98
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar
FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga
og annarra skyldra sjúkdóma heldur fræðslufund fimmtudag-
inn 15. nóvember n.k. Fundurinn sem hefst kl. 20.00 verður
haldinn á Sólvangi– hjúkrunarheimili - Sólvangsvegi 2,
220 Hafnarfirði.
Dagskrá:
• Fréttir af starfi FAAS: Fanney Proppé Eiríksdóttir, formaður.
• Kynning á Sólvangi: Rannveig Þöll Þórsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar
• Steinunn K. Jónsdóttir, félagsráðgjafi heldur erindi sem hún
nefnir „Heilabilun: Tilfinningalegur stuðningur, samskipti
og þjónusta“
• Umræður og fyrirspurnir
Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta. Allir
eru velkomnir. Sólvangur – hjúkrunarheimili býður kaffiveitingar
Bestu kveðjur
Stjórn FAAS
Zero Dark Thirty
(19. desember)
fjallar um hina tíu ára
löngu leit að Osama bin
Laden eftir hryðjuverkaá-
rásirnar ellefta septem-
ber. Leikstjóri er Kathryn
Bigelow, sem síðast bjó til
Óskarsverðlaunamyndina
The Hurt Locker.
Jack Reacher
(21. desember)
er nýjasta mynd Toms
Cruise. Hún er byggð á
vinsælli skáldsögu og
fjallar um lögreglufulltrúa
sem rannsakar handahófs-
kennd morð leyniskyttu úr
hernum á fimm mann-
eskjum.
Django Unchained
(25. desember)
kemur úr herbúðum
leikstjórans Quentins
Tarantino. Myndin er um
fyrrverandi þræl sem
reynir að bjarga eiginkonu
sinni úr höndum ills
plantekrueiganda. Með
helstu hlutverk fara Jamie
Foxx, Leonardo DiCaprio
og Christoph Waltz.
Les Misérables
(25. desember)
er byggð á samnefndum
söngleik sem var gerður
eftir hinni sígildu skáld-
sögu Victors Hugo. Myndin
gerist í Frakklandi á 20.
öld og fjallar um fangann
Jean Valjean sem fær frelsi
og leið hans til betra lífs.
Helstu leikarar eru Hugh
Jackman, Russell Crowe
og Anne Hathaway.
Hobbitar, tígrisdýr og
miklar náttúruhamfarir
Auk Hobbitans verða fjórar kvikmyndir frumsýndar um jólaleytið í Norður-Ameríku.
JÓLAMYNDIRNAR Í BANDARÍKJUNUM
LIFE OF PI
Þrívíddarmynd sem fjallar
um ungan mann, Pi, sem
kemst einn af úr skipsskaða
úti á reginhafi og hafnar í
björgunarbáti ásamt Bengal-
tígrisdýri sem hann nær
óvænt tengslum við. Leikstjóri
er Ang Lee, sem hefur áður
gert Brokeback Mountain
og Crouching Tiger, Hidden
Dragon. Með hlutverk Pi á
mismunandi aldri fara Suraj
Sharma og Irrfan Khan.
Frakkinn Gérard Depardieu
leikur einnig í myndinni.
Frumsýnd 21. desember
Eins og alltaf ríkir töluverð eftirvænting eftir bíómyndunum sem kvikmyndahúsin frum-
sýna um jólin. Í þetta sinn eru fjórar nýjar myndir á boðstólum en athygli vekur að engin
íslensk er þeirra á meðal.
THE HOBBIT
Þetta er fyrsta myndin í
þríleik sem er byggður
á samnefndri bók J.R.R.
Tolkien. Hún gerist á
undan The Lord of the
Rings-þríleiknum sem var
sýndur við miklar vinsældir
á sínum tíma. Hobbitinn
fjallar um ferðalag Bilbo
Baggins til Fjallsins eina
með hópi dverga í leit
að fjársjóði sem drekinn
Smeyginn stal frá þeim.
Myndin er um tvær
klukkustundir og fjörutíu
mínútur og með aðalhlut-
verk fara Martin Freeman
og Ian McKellen. Leikstjóri
er Peter Jackson, maður-
inn á bak við The Lord of
the Rings.
Frumsýnd 26. desember
THE IMPOSSIBLE
Þetta er aðsóknarmesta myndin á Spáni um þessar mundir.
Leikstjóri er Spánverjinn Juan Antonio Bayona sem einnig
gerði draugamyndina El orfanato. The Impossible, sem er
með ensku tali, fjallar um fjölskyldu sem lendir í flóð-
bylgjunni miklu í Indlandshafi árið 2004. Með aðal hlutverk
fara Ewan McGregor og Naomi Watts.
Frumsýnd 21. desember
SAMMY 2
Þessi þrívíddarteiknimynd er framhald af Ævintýrum
Samma sem kom út fyrir tveimur árum. Hún fjallar um
skjaldbökurnar Sammy og Ray sem flýja úr sædýrasafni í
Dubai og lenda að sjálfsögðu í miklum ævintýrum.
Frumsýnd 26. desember