Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 44
FÓLK|HELGIN
vantar upp á að fjölmiðlafólk hafi
verkfærin í lagi, kunni að byggja
upp texta, noti íslenskuna betur
og kynni sér þau daglegu lögmál
sem gilda á fjölmiðlum.“
STRÁKASTELPA AÐ NORÐAN
Í tímans rás hefur Sigrún gegnt
mörgum áhrifastöðum, meðal
annars sem rektor Norræna blaða-
mannaháskólans í Árósum og
yfirmaður upplýsingaskrifstofu
Norrænu ráðherranefndarinnar og
Norðurlandaráðs.
„Mér finnst gaman að standa
mig. Ég er strákastelpa og næst-
elst í systkinahópnum. Ég fékk að
veiða og vera í flokki með eldri
bróður mínum í fótbolta á meðan
hinar stelpurnar fengu það ekki.
Þegar ég flutti alein til Árósa seldi
ég hús mitt og bíla og kvaddi syni
mína. Það þótti mér rosalega erfitt
og sat á tröppunum grenjandi yfir
því hversu ægilegur vitleysingur
ég væri að hafa ákveðið þetta. Ég
og minn maður löbbuðum líka yfir
England og þegar ég hafði misst
þrjár táneglur og var algjörlega ör-
magna lagðist ég í rúmið grenjandi
af uppgjöf. Daginn eftir sagðist
ég ekki geta sagt sonum mínum
að ég hefði gefist upp. Ég held að
sá strengur hjálpi mér. Ég á líka
óskaplega flottar ömmustelpur
sem ég vil að sjái í mér góða fyrir-
mynd.“
ELSKAR AÐ VERA AMMA
Sigrún á tvo syni og brátt níu
barnabörn. „Ég elska að vera
amma. Ég er af kynslóð kvenna
sem reyndu að sanna sig með
því að vera mæður ungbarna og
útivinnandi á sama tíma. Mér
fannst eðlilegt að fá sex vikur í
fæðingarorlof með eldri syninum
og tíu daga með þeim yngri. Það
segir sína sögu. Nú finnst mér ég
bæta þeim og sjálfri mér það upp
og reyni að vera eins oft og ég get
með barnabörnunum.“
Sigrún var ritstjóri Íslendings
þegar hún ól yngri son sinn. „Það
var einyrkjavinna og því kláraði
ég jólablaðið, fæddi soninn 15.
desember og mætti aftur til vinnu
2. janúar. Í þá daga kostaði jafn-
réttisbaráttan þessar fórnir af
hálfu kvenna en í dag áttar fólk
sig betur á mikilvægi þess að vera
með börnum sínum. Ég var einnig
ráðin á Moggann gegn því að ætla
ekki að leggjast í barneignir en
það loforð sveik ég að sjálfsögðu,“
segir Sigrún og hlær.
HOLLT AÐ KUNNA EKKI AÐ BAKA
Um helgina ætlaði Sigrún til Akur-
eyrar en veður hefti för. Þar er
hún fædd og uppalin og þar eiga
hjónin lögheimili í fallegu húsi í
gamla innbænum.
„Við notum helgarnar til úti-
vistar, förum á flandur og búum
til ævintýri. Mér þykir ganga í
náttúrunni heilsubót fyrir líkama
og sál og gott að leysa málin á
göngu. Ég skil ekki fólk sem fer á
bíl í líkamsræktarstöð til að púla
í svitalykt og svo aftur á bílnum
heim,“ segir Sigrún sem vegna
mikillar hreyfingar getur borðað
eins og hana lystir.
„En ég get átt súkkulaði og kök-
ur án þess að það freisti mín. Ég
ákvað um þrítugt að tileinka mér
viðhorf vinkonu sem afþakkaði
konfekt því hún vildi eiga hitaein-
ingaskammt dagsins fyrir góðan
mat. Ég ákvað líka að ég kynni ekki
að baka, sem er óskaplega hollur
eiginleiki.“ ■ thordis@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
15-50%
AFMÆLISHÁTÍÐ
fögnum 8 ára afmæli
með nýrri vörulínu
afsláttur
af öllum vörum
Opið laugardag
11-16
Breakbeat
laugardagskvöld kl. 22r skvöld l.
FÓRNIR FORTÍÐAR
„Mér fannst eðlilegt að fá sex
vikur í fæðingarorlof með eldri
syninum og tíu daga með þeim
yngri.“
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING!
AF VINSÆLU KULDASKÓNUM
MEÐ MANNBRODDUNUM
FYRI
R DÖ
MUR
OG H
ERRA
Verð
:24.0
00.-
Í uppáhaldi hjá mér núna í Oasis
Þessa get ég notað við öll fínni tækifæri...
must að eiga nýja glam tösku.. Verð kr. 5.990
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir
Jólakjóllinn fundinn...
Verð kr. 11.990
Skvísulegir þessir..
Verð kr. 2.990
Verð kr. 16.990
Elska þetta peplum snið,
flott og töff hversdags..
Verð kr. 8.990
Fíla þessar vaxbuxur
ótrúlega vel, þær
passa við allt og eru
ótrúlega þægilegar...
Verð kr. 13.990