Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 72
KYNNING − AUGLÝSINGHeimili & hönnun LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 20124
EINSTÖK
FIÐRILDAKLUKKA
Fiðrildaklukka sem hin þýska
Susanne Philippson hannaði
hefur farið sigurför um allan
heim. Klukkan fæst í mörgum
litum og þykir einstaklega
skemmtilega hönnuð og henta
vel fyrir hvers konar heimili. Um
klukkuna hefur verið fjallað á
helstu hönnunarsíðum. Susanne
er innanhússhönnuður sem
hefur fengið margar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín. Hún þykir
vera nákvæm í smáatriðum og
kunna að nota háþróuð efni.
Susanne hefur rekið eigið fyrir-
tæki í Berlín frá árinu 2005 en
hún hefur hannað fyrir mörg
stórfyrirtæki. Má þar til dæmis
nefna Habitat.
Sumir vilja ekki sætar kökur. Þess vegna er ágætt að raða saman fallegum smákökum
og litlum samlokum á kökudisk.
Hægt er að nota heilhveitibrauð
í samlokurnar en mjög gott er að
nota rúgbrauð, ekki er verra ef það
er heimabakað.
Hægt er að skera brauðið með
piparkökumótum eða hringmót-
um.
Samlokur með rækjusalati
Þetta salat er afar gott og passar vel í
litlar samlokur.
500 g smáar rækjur
100 g gráðaostur, niðurrifinn
120 g rjómaostur
Örlítið sérrí (má sleppa)
5 vorlaukar, smátt saxaðir
½ bolli sellerístöngull, smátt skorinn
½ bolli valhnetur, smátt saxaðar
Smávegis salt og nýmalaður pipar
Ferskt dill til skrauts
Blandið öllu saman og setjið á litl-
ar brauðsneiðar. Önnur brauðsneið
er síðan lögð yfir hverja og eina til að
útbúa samloku.
Samloka með kalkúni og
trönuberjum
Hægt er að fá þurrkuð trönuber í
stórverslunum og heilsubúðum en
þau er afar góð og hægt að nota í
bakstur, í salat eða með hvítu kjöti.
Trönuber eru holl og góð.
Kalkúnaálegg, smátt skorið
¾ bolli þurrkuð trönuber
1 búnt vætukarsi (watercress)
200 g rjómaostur
Salt og nýmalaður pipar
Hrærið allt saman og setjið um það bil
matskeið á litla rúgbrauðssneið. Leggið
síðan aðra brauðsneið yfir.
Grænmetissalat
150 g rjómaostur
Graslaukur
3 msk. sýrður rjómi
Dill
Hvítlaukssalt og hvítur pipar
Til að setja ofan á brauðið má nota
mjög þunnt skorna agúrku, kúrbít, radís-
ur, gulrætur og kirsuberjatómata. Skreytt
með ferskri steinselju eða dilli.
Hrærið rjómaostinn með sýrðum rjóma
og bætið síðan graslauk og kryddi
saman við. Setjið um það bil matskeið
af ostblöndunni ofan á lítið brauð og
skreytið með þunnt skornu grænmeti .
Samloka með ostakremi
Rífið niður tvo bragðsterka osta
1 ½ bolli majónes
Niðursoðin paprika, smátt skorin
½ laukur, saxaður
Pipar
Blandið öllu vel saman og setjið um
það bil matskeið á litla ferkantaða hvíta
brauðsneið og setjið síðan aðra yfir.
Raðið litlu samlokunum á kökudisk á
standi ásamt fallegum jólasmákökum.
Mjög einfalt og gott með kaffinu.
Fallegar og góðar
mini-samlokur
Kökubakkar á fæti eru fallegir og punta kaffiborðið. Í dömulegum teboðum í Bretlandi eru diskarnir
oftast á nokkrum hæðum og á þeim er blanda af sætum kökum, skonsum og litlum samlokum. Hér eru
nokkrar hugmyndir að öðruvísi smásamlokum sem henta vel á fallegan margra hæða kökudisk.
Rúgbrauð er gott í litlar samlokur, sér-
staklega sé það heimabakað.
Kósí andrúmsloft með léttvíni og litlum samlokum.
JÓLAHANDVERK OG
GLEÐI Á GRANDA
Jólagleði og eftirvænting
fylla andrúmsloftið í Víkinni
Sjóminjasafni þegar þar verður
haldinn handverksmarkaður á
sunnudag.
Á boðstólum verður íðilfagurt,
íslenskt handverk sem er spenn-
andi í jólapakkana eða bara til
að kæta sjálfan sig og skreyta
með heima.
Heitt verður á könnunni í
Víkinni og heimabakað bakkelsi
að vanda og yfir öllu einstök
notalegheit og lifandi harmón-
íkutónlist.
Þá verður ævintýri fyrir fjöl-
skyldufólk að setjast niður yfir
jólaföndri með börnunum og
allt efni verður á staðnum.
Að sjálfsögðu verður safnið
opið og leiðsögn um varðskipið
Óðin.
Handverksmarkaðurinn verður
opinn frá klukkan 11 til 17 og allir
velkomnir.
Víkin Sjóminjasafn er að
Grandagarði 8.
Meðal handverksfólks í Víkinni verða
Guðrúnardætur og Ævintýrasteinar.
Guðrún Benediktsdóttir
Innanhússarkitekt FHI
hefur áratuga reynslu
í eldhúshönnun og
teiknar draumaeldhúsið
fyrir þig....vönduð...stílhrein...falleg...
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. Sunnudaginn 21. október opið 13-17
Eldhús