Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 78
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR46
Krossgáta
Lárétt
1. Skömm í stað erfðaefnis (12)
7. Höldum á tólum (7)
12. Má rekja fljótfærni forsetans til dulspekings
keisaraynjunnar? (9)
13. Sá ringlaði að sunnan skilar ást (9)
14. „Óháð“ kjánahjal um tungu frumbyggja (10)
15. Knúsviljugt og alltumlykjandi blóm (11)
16. Gerviefnamatur innanklæða (10)
17. Grjót komi niður á brunagrund (10)
21. Brothægt er óstöðugt (8)
22. Hafði gaman af þótt vitlaus væri (10)
28. Baðhús fyrir rolur og Finna? (12)
29. Reglur kjafta um dropann (7)
30. Skorpuskaksstrikapési sýnir titring (19)
32. Set listapóst á skrá yfir þá sem eiga að fá
hann (9)
33. Bóka lokunarbúnað (4)
35. Mætti með huga við greinarmerkið (7)
36. Keyrði á mjólkurafurðina
og fann gallann (8)
38. Minnka mjúka (4)
39. En sinu á sundraðri tánni? (6)
40. Skjót eltast við slæma (8)
41. Furðið ykkur á sári og grind (7)
42. Meðal annarra ófreskja er þessi fallni
einræðisherra (3)
43. Sjá ekki eftir að hafa tekið tímann (14)
Lóðrétt
1. Æði í gamla daga, þessi asni (7)
2. Sjómaður tignar Haile Selassie (9)
3. Löngu dauðar tröllaskepnur heilla enn (9)
4. Býst sjálfkrafa við að vera vont inn við beinið (9)
5. Kemur hér maturinn græni inn? (8)
6. Nóvurnar sem voru að slá í gegn (9)
8. Af hverju nesið, þetta er fljótið? (7)
9. Þunglamaleg bytta, þessi sífulli fýr (9)
10. Yfirhafnir í miðstærð eins og
hverjir aðrir Gaulverjar (12)
11. Gef skít í beljubull (8)
17. Segir matvöndu íþróttamennina bara vilja rauða
gúmmíbirni (13)
18. Stríð og stoðir vísa til þess sem gerðist (12)
19. Hljómur drekans (12)
20. Sessan og tárið eru uppistaða ruglaðs og
valdalauss embættismannsins (11)
23. Siða frjálsar og óstýrilátar (9)
24. Maltækjaskipulag tryggir fjarskipti (12)
25. Nuddum brún sem við æstum (8)
26. Stærra málið ræður úrslitum (12)
27. Aur andvana fíkla (11)
31. Ef askja 51 er ráðin og afrugluð birtist rándýr (7)
33. Klæðum dekk með stjörnum (5)
34. Besti vinur Potters lést er þessi
útvarpsstöð hóf útsendingar (5)
37. Svolítið frítt (4)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist
einhverskonar árstíð. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 14. nóvember
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „10. nóvember“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Kantata frá Forlaginu. Vinnings-
hafi síðustu viku var Guðný H.
Ragnarsdóttir, Reykjavík og
getur hún vitjað vinningsins í
afgreiðslu 365, Skaftahlíð 24.
S K R I Ð U K L A U S T U R
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11
12
13
14
15
16
17 18 19 20
21 22 23 24 25 26
27
28 29
30
31
32
33 34 35
36 37
38 39 40
41
42 43
M Æ H S G R Á T B R O S L E G
H A U S V E R K U R F E R E E
N K I O E Y J A R S K E G G I
E N D U R M E T I N Á G U Í S
Æ D I R J A Ð A R Í Þ R Ó T T
S T I R Ð L E I K A U I Y N L
U A I S T R Á S Y K R I E
H R A U N S T R Ó K A K N G
N M F A Y B R Á N I N N I
H A R A R E B Í T I L L I I R
R R S B T Á Á S V
G S Ó T T A F U L L Á S Á T T I R
R U M S K I B R E T Á Ð
Á Á Á A N E I S T A F L U G I
S P A R T V E R J A T R T E
L T Í A R Ú A N D A A F R Ó
E Y R A R Ó S S Ð L U Ð
P I L V A A N D A G A S
P Ð U M F E R Ð I R I A
A L I D Ý R R A A R N A R N E S
L
Þennan dag fyrir réttum 30 árum, hinn 10. nóvember árið 1982, lést Leoníd Brésnéff, aðalritari Kommúnistaflokksins í Sovétríkjunum,
eftir átján ár við völdin.
Dauði hans markaði endalok tímabils í sögu Sovétríkjanna sem ein-
kenndist öðru frekar af stöðnun og skoðanakúgun.
Brésnéff komst til valda árið 1964 eftir að hafa, með fulltingi Alexei
Kósigíns, velt Níkíta Krúsjoff úr sessi.
Á valdatíð sinni lagði Brésnéff mikið upp úr stöðugleika, sem vart
hafði verið til staðar frá tíma Stalíns. Um leið boðaði hann harða and-
stöðu gegn hvers konar andstöðu meðal eigin flokksmanna og meðal
almennings.
Rithöfundarnir og andófsmennirnir Alexander Solsénitsín og Andrei
Sakarov máttu báðir búa við mikla kúgun og voru á tímabili vistaðir í
þrælkunarbúðum í Síberíu.
Þá olli áhersla hans í vígbúnaðarkapphlaupinu við Bandaríkin því að
efnahagur ríkisins fór í rúst. Stöðnun var nær alger þegar komið var
fram á lok áttunda áratugarins.
Þá þótti utanríkisstefna Brésnéffs oft og tíðum ruglingsleg. Hann
beitti annars vegar fyrir sig hugmyndum um að Sovétríkin og Banda-
ríkin héldu friðinn og skiptu sér ekki hvort af öðru, og tók þátt í
afvopnunarviðræðum um kjarnorkuvopn. Hins vegar lögðu hersveitir
Sovétríkjanna, undir stjórn Brésnéffs, til atlögu við Tékkóslóvakíu í
uppreisninni árið 1968 og blönduðu sér í átök um allan heim.
Undir lok valdatíðar sinnar var Brésnéff orðinn heilsuveill, en eftir
að hann lést tók Júrí Andropov við. Hann varð ekki langlífur í embætti
og lést rúmu árið síðar.
Ekki fór betur með eftirmann hans, Konstantín Tsjernenkó, sem
lifði einnig í rétt rúmt ár.
Mikaíl Gorbatsjoff tók svo við völdum 1985 og lagði með umbótum
sínum grunninn að endalokum Sovétríkjanna árið 1991. - þj
Heimild: History.com
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1982
Brésnéff lést í embætti
Leoníd Brésnéff, leiðtogi Sovétríkjanna lést eftir 18 ár í embætti. Valdatíð hans
einkenndist af stöðnun og skoðanakúgun.