Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 4
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR4
Kjörstjórn KFSV auglýsir eftir framboðum á framboðslista
Framsóknarflokksins í suðvestur kjördæmi fyrir
alþingiskosningar 2013.
Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslistum
Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar 2013
skulu senda kjörnefnd skriflega kynningu þar sem frambjóðendur
kynna sig og gera grein fyrir helstu baráttumálum auk þess að
tilgreina hvaða sætum á lista sóst er eftir.
Kynningunni skal fylgja ljósmynd.
Sjá reglur á vef Framsóknar, www.framsokn.is
Tilnefningar skulu sendar sem fyrst og fyrir kl. 12.00
þann 16. nóvember n.k.
Mosfellsbær 9. nóvember 2012
Kjörstjórn KFSV
Auglýsing vegna framboða
í Suðvestur kjördæmi
DÓMSTÓLAR Handknattleikssam-
band Íslands (HSÍ) má skulda-
jafna 12 milljóna kröfu á hendur
þrotabúi Kaupþings banka vegna
yfirdráttarskuldar við bankann.
Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur í gær telst krafa HSÍ
almenn krafa og skuldajöfnun
heimil.
Slitastjórn Kaupþings viður-
kenndi kröfu HSÍ að hluta, eða
tvær milljónir af tólf. Tíu millj-
ónir hafi hins vegar verið vilyrði
fyrir gjöf og sem HSÍ gæti ekki
krafist greiðslu á.
Í dómsorði segir að með gjöf
sé átt við einhliða örlætisgerning
gefanda. Dómurinn komst að
þeirri niðurstöðu að Kaupþing
hafi haft ávinning af samningi
sem gerður var milli bankans
og HSÍ árið 2006. Með honum
hafi Kaupþingi getað tengt sig og
starfsemi sína við HSÍ og íslenska
landsliðið í handknattleik. - óká
HSÍ hafði betur í málarekstri:
Kaupþing hagn-
aðist á samn-
ingi við HSÍ
BANDARÍKIN John Boehner, leiðtogi
repúblikana í öldungadeild Banda-
ríkjaþings, segir að repúblikanar
muni ekki lengur berjast gegn
heilbrigðislöggjöfinni, sem Barack
Obama fékk samþykkta á þingi.
„Ég held að kosninga úrslitin
hafi breytt þessu,“ segir
Boehner, en útilokar þó ekki
að repúblikanar reyni að ná
fram breytingum á lögunum.
Boehner segist einnig telja að
repúblikanar reyni ekki lengur
að koma í veg fyrir breytingar á
innflytjendalöggjöf, sem Obama
hefur reynt að ná í gegn. - gb
Boehner boðar breytingar:
Repúblikanar
draga í land
JOHN BOEHNER Leiðtogi repúblikana á
þingi. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Verslanakeðjan Iceland
Foods Limited hefur keypt 37 pró-
senta hluta í félaginu Ísland-Versl-
un ehf. sem rekur matvörubúð í
Kópavogi undir merkjum Iceland.
Jóhannes Jónsson mun áfram eiga
63 prósent hlut í íslenska fyrirtæk-
inu að því er segir í tilkynningu.
Haft er eftir Malcolm Walker,
aðaleiganda Iceland Foods, að
hann sé afar ánægður með mikinn
árangur Iceland á Íslandi. Ætlunin
sé að stuðla að opnun minnst fjög-
urra Iceland-verslana til viðbótar
á Íslandi. Vísar Walker til langvar-
andi vináttu sinnar við Jóhannes
sem grunn að trú sinni á framtíð
Iceland hérlendis. - gar
Iceland kaupir á Íslandi:
Minnst fjórar
nýjar verslanir
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
11°
11°
9°
12°
13°
8°
8°
24°
9°
18°
12°
24°
6°
13°
13°
7°
Á MORGUN
3-12 m/s.
MÁNUDAGUR
12-20 m/s SV-til,
annars hægari.
-3
-2
-1
-2
-7
0
0
-1
3
0
3 17
12
15
15
15 14
12
20
12
16
12
-2
-6
-5
-4
-3
4
4
2
-2 2
LÆGIR Í DAG
Hvassviðri um allt
land með morgn-
inum í dag. Lægir
að mestu síðdegis,
síðast A-til. Snjó-
koma N- og NA-til
í dag en birtir til
á morgun. Kólnar
heldur í dag en
hlýnar á mánudag
þegar hann hvessir
aftur, einkum SV-
til. Úrkoma um allt
land á mánudag.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNSÝSLA Rekstur hjúkrunar-
heimilisins Eirar kann að kalla á
lögreglurannsókn, að mati Björns
Vals Gíslasonar, formanns fjárlaga-
nefndar Alþingis. Hann hefur
verið skipaður í samráðshóp sem
mun fylgjast náið með samninga-
viðræðum Eirar við kröfuhafa sína.
Framkvæmdastjóri Eirar kom
fyrir fjárlaganefndina í gær og
skýrði stöðuna. Á fundinum var
ákveðið að skipa samráðshópinn.
Auk Björns sitja í honum full trúar
velferðarráðuneytisins, sveitar-
félaga og íbúa.
„Þetta er tengslahópur sem á að
halda upplýstum um gang mála á
meðan reynt er að finna lausn á
vandanum og hann mun þá væntan-
lega, þegar sú lausn liggur fyrir,
koma einhvern veginn að því á
lokastigum til að verja sína hags-
muni,“ segir Björn Valur, sem kveð-
ur fremst á forgangslistanum að
tryggja íbúum á heimilinu áfram-
haldandi vist þar og umsamda þjón-
ustu.
„Við munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að tryggja hag
þessa fólks til framtíðar,“ segir
Björn Valur. „Það þýðir ekki að
hvorki ríki eða einstaklingar tapi
peningum á þessu. Það er fyrst og
fremst hagur íbúanna að þeir fái
að vera þarna áfram en það er ekki
útséð með fjárhagslegu hliðina.“
Björn Valur segir fullt tilefni til
að rannsaka gaumgæfilega hvernig
félagið gat steypt sér í jafn hrika-
legar skuldir og raun ber vitni og
stefnt þannig fjárhag íbúa í hættu.
„Ég lít þannig á að ef ég sel þér eitt-
hvað og þú borgar fyrir það, en ég
á það ekki, þá eru til ákveðin orð
og hugtök yfir það. Það er það sem
þarna hefur gerst.“
Er Björn Valur að segja að þetta
séu svik? „Þetta lítur þannig út fyrir
mér að þarna hafi verið stundaðar
einhvers konar blekkingar, já,“svar-
ar hann og kveður rannsóknar þörf.
„Í kjölfarið ræðst hvert framhaldið
verður, hvort það verður lögreglu-
rannsókn eða eitthvað annað. En
þarna var verið að selja eitthvað
sem menn vissu að þeir áttu ekki.
Það er augljóst þeim sem hafa skoð-
að þetta. Það er hagur allra að þetta
verði rannsakað, ekki síst þeirra
sem búa þarna, og við munum veita
þeim þann stuðning sem við teljum
nauðsynlegan til þess, því að það
þarf sömuleiðis að verja hag ríkis-
ins og skattborgara.“
Ríkisendurskoðun segir í yfir-
lýsingu í gær að samkvæmt lögum
hafi hún átt að endurskoða reikn-
inga vegna hjúkrunarþjónustu Eirar
fyrir aldraða, enda borgi ríkið dag-
gjöld fyrir þá þjónustu. „Endur-
skoðunarumboðið tekur á hinn bóg-
inn ekki til annarra þátta í starfsemi
Eirar, svo sem umsýslu fasteigna.
Engu máli skiptir þótt sú starf-
semi sé á sömu kennitölu og rekstur
hjúkrunarheimilisins,“ undirstrikar
ríkisendurskoðun, sem kveðst ekki
hafa gert athugsemdir við beiðnir
Eirar um veðsetningar á árinu 2010
þar sem umræddar fjárfestingar
hafi verið í þágu starfsemi Eirar
eins og henni sé lýst í skipulagsskrá
stofnunarinnar. - sh, gar
Þingnefndarformaður
telur brögð í tafli á Eir
Menn voru að selja það sem þeir áttu ekki, segir formaður fjárlaganefndar um
Eir og kallar á opinbera rannsókn. Ríkisendurskoðun segir aðeins hjúkrunar-
þjónustu Eirar til endurskoðunar á sínu borði en ekki fasteignaumsýsluna.
SKUGGI YFIR EIR Ekki víst að enginn tapi á Eir segir formaður fjárlaganefndar Alþingis.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það er hagur allra að
þetta verði rannsakað.
BJÖRN VALUR GÍSLASON
FORMAÐUR FJÁRLAGANEFNDAR ALÞINGIS
FJÁRMÁL Skorað hefur verið á Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að
beita sér gegn því að nauðasamningar
við kröfuhafa í þrotabú Kaupþings og
Glitnis verði samþykktir. Fundað var
með forsetanum í gær.
Stærstu kröfuhafarnir í bú Kaup-
þings og Glitnis eru vogunarsjóðir, sem
keyptu kröfur í búin á slikk eftir fall
bankanna, og vilja nú fá greitt úr búun-
um allt laust fé, sem er yfir 700 millj-
arðar, mest í erlendri mynt. Áhyggjur
hóps fjármálafólks snúa öðru fremur að
því að útgreiðsla á þessu fé grafi undan
gjaldeyrisstöðu á viðkvæmum tímum,
ekki síst þar sem opinberar skuldir
Íslands, ríkis og sveitarfélaga, eru nú
um 1.600 milljarðar króna. Til viðbótar
komi síðan miklar skuldir fyrirtækja.
Á næstu árum sé endurfjármögnunar-
áhætta þjóðarbúsins mikil og aðgengi
að erlendum gjaldeyri nauðsynlegt. Þá
þykir einkennilegt að vogunarsjóðirnir
geti fengið þessa peninga þrátt fyrir að
hér séu gjaldeyrishöft.
Í gærkvöldi var tilkynnt að ekki verði
gengið frá nauðasamningum Glitnis í
desember eins og stefnt var að. Þetta
var gert í kjölfar ummæla seðlabanka-
stjóra um nauðsynlegar forsendur þess
að bankinn gefi samþykki fyrir nauða-
samningum.
Undanþágur sem ógna stöðugleika verða ekki samþykktar segir Seðlabanki, en hópur fólks hefur áhyggjur:
Forsetinn beiti sér gegn nauðasamningum
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
Í svari til Fréttablaðsins segir
Seðlabankinn að engar undanþágur
sem geti ógnað stöðugleika í gjald-
eyrismálum, greiðslujafnaðar-
málum eða fjármálastöðugleika verði
veittar. Engar undanþágubeiðnir frá
gjaldeyris höftunum hafa borist frá
þrotabúunum, en þegar þær berast
mun bankinn taka þann tíma sem þarf
til þess að tryggja að gerð nauða-
samnings sé í samræmi við markmið
um stöðugleika í áðurgreindum mála-
flokkum, segir bankinn. Ómögulegt
sé að segja nákvæmlega hvaða tíma
þessi vinna tekur.
- mh / þjs / þeb
Jólaskraut fyrir 35 milljónir
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt
35 milljóna króna aukafjárveitingu til
umhverfis- og skipulagssviðs vegna
jólaskreytinga og viðburðahalds
tengdu komandi jólahátíð.
REYKJAVÍKURBORG
Harma niðurstöðu réttarins
Framkvæmdastjóri Sólheima harmar
dóm Hæstaréttar, sem hefur komist
að þeirri niðurstöðu að ríkið hafi mátt
skerða fjárveitingu til Sólheima árið
2009. „Það er verulegt áhyggjuefni að
velferðarráðuneytið og aðrir opinberir
aðilar geti mismunað þjónustuveit-
endum,“ segir Guðmundur Ármann
framkvæmdastjóri.
DÓMSMÁL
GENGIÐ 09.11.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,0773
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,39 129,01
204,77 205,77
163,24 164,16
21,883 22,011
22,372 22,504
19,074 19,186
1,6195 1,6289
196,05 197,21
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is