Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 90
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR58
Laugardagur 10. nóvember
➜ Ópera
17.00 Leikfélagið Peðið sýnir óperuna
Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einars-
son. Tónlist og leikstjórn er í höndum
Andreu Gylfadóttur og sýnt er í Kjallar-
anum Laugavegi 73.
➜ Sýningar
10.00 Ljósmyndasýningin Fólkið á
Þórsgötu – Skyndimyndir frá árunum
2004-2012 verður opnuð í Þjóðminfja-
safni Íslands. Höfundur myndanna er
Alda Lóa Leifsdóttir.
10.00 Sýningin Þvert yfir Grænlands-
jökul opnar á Veggnum í Myndasal
Þjóðminjasafnsins.
13.00 Sölusýning verður haldin í Gall-
erý Nútímalist, Skipholti 15, á verkum
Braga Ásgeirssonar.
14.00 Sýning á olíumálverkum Mar-
grétar Zóphóníasdóttur opnar í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýningin
ber yfirskriftina Vængjablak.
14.00 Sýningin Ilmvatnsáin has minni
með verkum eftir myndlistarmanninn
Davíð Örn Halldórsson opnar í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi.
15.00 Ljósmyndasýning David Barreiro
opnar í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg
5. Sýningin ber yfirskriftina Kambódía –
brot af biturri reynslu.
15.00 Björk Bjarkadóttir opnar sýningu
á ljósmyndaverkum í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg. Sýningin ber heitið
Glimpses.
15.00 Hlynur Helgason opnar
sýninguna Patagónía í Mjólkurbúðinni
Listagili á Akureyri. Sýningin saman-
stendur af gvassakvarellum, ljósmynd-
um, ljósmyndaskyggnum og mynd-
bandsverki.
16.00 Opnuð verðru sýning á málverk-
um Önnu Gunnlaugsdóttur í Listasal
Mosfellsbæjar.
17.00 Einkasýning verður haldin á
verkum myndlistarmannsins Sigurðar
Guðjónssonar. Sýningin ber titilinn Fjar-
lægð og opnar í Kling & Bang gallerí við
Hverfisgötu 42.
➜ Umræður
10.30 Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir lögmaður verður gestur á
laugardagsspjalli Framsóknar. Yfirskrift
spjallsins er Skuldin mín og skuldin þín?
Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
10.00 Lokafrestur til að skila inn köss-
um í verkefnið Jól í skókassa er í dag.
Skilastaður í Reykjavík er að Holtavegi
28. Nánari upplýsingar á skokassar.net.
➜ Tónlist
14.00 Síðustu tónleikar 30. starfsárs
Listvinafélags Hallgrímskirkju fara fram
í kirkjunni. Björn Steinar Sólbergsson
leikur vinsælustu orgelverkin. Miðaverð
er kr. 1.500 en kr. 1.000 fyrir listvini.
Ókeypis fyrir börn og nemendur.
21.00 Styrktartónleikar fyrir Sólskins-
börn verða haldnir í Sjallanum á Akur-
eyri. Sólskinsbörn eru samtök sem
berjast gegn einelti og hjálpa eineltis-
þolendum og eru þau starfandi um
allt land. Meðal þeirra sem fram koma
á tónleikunum eru Contalgen Funeral,
Hljómsveitin Mirra og Andri Valur. Miða-
verð er kr. 1.500 og rennur ágóðinn
óskertur til samtakana.
22.00 Biggi Gunn heldur útgáfu-
tónleika nýrrar plötu sinnar, Eldur sem
aldrei dvín, á Café Rosenberg.
22.00 Ljótu hálfvitarnir halda
tónleika á Græna hattinum á Akureyri.
Spiluð verða splunkuný lög í bland við
eldri. Þetta eru þeirra síðustu tónleikar
á Norðurlandi þetta árið. Miðaverð er
kr. 2.500.
22.00 Rokksveit Jonna Ólafs spilar á
Kaffi Rós í Hveragerði.
23.00 Hljómsveitin Homo and the
Sapiens heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da,Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
➜ Útivist
10.00 Hjólreiðaferð verður farin frá
Hlemmi. Hjólað í 1-2 tíma um borgina í
rólegri ferð. Allir velkomnir og þátttaka
ókeypis. Upplýsingar á vef LHM.is.
Sunnudagur 11. nóvember
➜ Ópera
17.00 Leikfélagið Peðið sýnir óperuna
Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einars-
son. Tónlist og leikstjórn er í höndum
Andreu Gylfadóttur og sýnt er í Kjallar-
anum Laugavegi 73.
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð Faxafeni 14. Allir velkomnir.
19.00 Bridge tvímenningur er spilaður
í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
➜ Upplestur
15.00 Gerður Kristný, Kristín Ómars-
dóttir, Bjarni Gunnarsson og Dagur
Hjartarson lesa upp ljóð í Listasafni ASÍ,
Freyjugötu 41.
➜ Sýningarspjall
14.00 Ármann Agnarsson sýningar-
stjóri mun ganga með Gísla B. Björns-
syni um sýninguna á verkum hans í
Hönnunarsafni Íslands.
➜ Kvikmyndir
15.00 Sovéska kvikmyndin Vopnabúrið
(Arsenal) verður sýnd í MÍR-salnum,
Hverfisgötu 105. Myndin er frá árinu
1928 og er eftir Aleksandr Dovzhenko.
Um er að ræða þögla mynd en skýr-
ingatextarnir eru á ensku. Aðgangur er
ókeypis.
➜ Uppákomur
13.00 Gerðuberg býður upp á fjöl-
skyldudagskrá í menningarmiðstöðinni.
Fjölbreytt og lífleg dagskrá þar sem
börn á ýmsum aldri troða upp með
söng, dansi og leiklist. Aðgangur er
ókeypis.
20.00 Gospelmessa verður haldin
í Lágafellskirkju, Mosfellsbæ. Magga
Pálma syngur gospel ásamt kirkjukórn-
um. Aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl
4. Danshljómsveitin Klassík leikur létta
danstónlist. Aðgangseyrir fyrir félaga
FEB í Reykjavík er kr. 1.500 en kr. 1.800
fyrir aðra gesti.
➜ Tónlist
15.15 Kristín Mjög Jakobsdóttir fagott-
leikari og Jón Sigurðsson píanóleikari
halda tónleika í tónleikasyrpunni 15:15
í Norræna húsinu. Almennt miðaverð er
kr. 2.000 og kr. 1.000 fyrir nemendur,
eldri borgara og öryrkja.
16.00 Andrea Jónsdóttir leikur lög
af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-
Da,Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis.
16.00 Kvennakór Háskóla Íslands flytur
fjölbreytta dagskrá í Háteigskirkju undir
yfirskriftinni Lifandi vatnið. Stjórnandi er
Margrét Bóasdóttir.
➜ Leiðsögn
14.00 Höfundar verksins Rek, Anna
Hallin og Olga S. Bergmann, ræða við
gesti á sýningunni sem nú stendur yfir í
Listasafni Íslands við Tjörnina.
15.00 Boðið verður upp á leiðsögn
á pólsku um Þjóðminjasafn Íslands.
Aðgangur er ókeypis.
➜ Markaðir
11.11 Handverksmarkaður verður
haldinn í Víkinni, Sjóminjasafninu í
Reykjavík, Grandagarði 8. Handverk,
jólaföndur, harmonikkutónlist, kaffi og
kökur. Jólaföndur fyrir börnin og safnið
og varðskipið Óðinn verða bæði opin.
Primera Travel Group efnir til sam-
keppni um röð listaverka til að prýða
veggi höfuðstöðva félagsins í Kaup-
mannahöfn. Fyrir verðlaunaverkið
verða greiddar 1.000.000 ISK.
Frestur til að skila tillögum
rennur út þann 10. desember.
Allar nánari upplýsingar, teikningar,
myndir af skrifstofurýminu og sam-
keppnisskilmála má nálgast á
www.primeragroup.com
Primera Travel Group
rekur átta ferðaskrifstofur í
Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og á Íslandi.
Primera Air er einnig hluti
samsteypunnar og hefur
yfir að ráða sjö Boeing
737-800 flugvélum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
2
0
8
ÓPERUFERÐ TIL NEW YORK
20.–25. FEBRÚAR 2013
í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Verdis og Wagners
Farið verður á eftirfarandi sýningar í Metropolitan-óperunni:
Parsifal eftir Richard Wagner. Stjórnandi er Daniele Gatti og í
aðalhlutverkum eru Jonas Kaufmann, Katarina Dalayman, Peter
Mattei, Evgeny Nikitin og René Pape.
Don Carlo eftir Giuseppe Verdi. Stjórnandi er Lorin Maazel og í
aðalhlutverkum eru Ramón Vargas, Barbara Frittoli, Anna Smirnova,
Dmitri Hvorostovsky, Ferruccio Furlanetto og Eric Halfvarson.
Carmen eftir Georges Bizet. Stjórnandi er Michele Mariotti og í
aðalhlutverkum eru Anita Rachvelishvili, Nikolai Schukoff, Ekaterina
Scherbachenko og Teddy Tahu Rhodes.
Enn fremur verður boðið upp á aðra menningartengda viðburði.
Fararstjórar eru Tómas H. Heiðar, formaður Vinafélags Íslensku
óperunnar og Edda Jónasdóttir, leiðsögumaður.
Skráning hefst mánudaginn 12. nóvember en einungis 40
sæti eru í boði. Edda Jónasdóttir veitir nánari upplýsingar og
annast skráningu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á edda@eric.is
eða hringið í síma 848-3890.
Vinafélag Íslensku óperunnar stendur fyrir
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
„Sem listamaður dregst ég að hlutum í
umhverfinu sem ekki endilega teljast fallegir.
Ég vil gera þá áhugaverða og öfluga. Það er
eins og í lífinu. Við ættum alltaf að reyna að
snúa slæmum hlutum í góða. Það er það sem
lífið snýst um,“ segir Björk Bjarkadóttir, sem
opnar sýningu á ljósmyndaverkum í Galleríi
Fold við Rauðarárstíg í dag klukkan 15.
Björk kveðst oft vera á flandri því fjöl-
skylda hennar og vinir búi víða um heiminn.
„Ég ferðaðist samt óvenju mikið veturinn 2011
til 2012 og fyrsta myndin varð til í septem-
ber í Barcelona. Þar á eftir var ég í New York,
Marseille, Montpellier og svo Reykjavík. Ég
tek myndir úti um allt, af skiltum, plakötum,
rafmagnsstaurum, vélum, veggjum, dósum og
öðru sem verður á vegi mínum.“
- gun
Vil gera hlutina áhugaverða
BJÖRK „Við ættum alltaf að reyna að snúa slæmum hlutum í góða,“
segir hún.