Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 97

Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 97
LAUGARDAGUR 10. nóvember 2012 65 Dream Central Station hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu og er hún samnefnd sveitinni. Hún er skipuð Hallbergi Daða Hall- bergssyni, fyrrum liðsmanni Jak- obínarínu, og Elsu Maríu Blöndal, sem hefur starfað með hljóm- sveitinni The Go Go Darkness. Dream Central Station er tíu laga plata þar sem hægt rokk er leyst úr læðingi, rokk sem er iðulega líkt við tónlistarstefnuna Shoegaze. Öll lög og textar eru eftir Hallberg Daða fyrir utan ábreiðu af laginu Feel So Good með Brian Jonestown Massacre. Hljómsveitin hyggur á útgáfu- tónleika um miðjan desember. Fyrsta platan frá Dream FYRSTA PLATAN Dream Central Station hefur gefið út sína fyrstu plötu. Leikkonan Ariel Winter verður tímabundið í forsjá systur sinnar eftir að móðir hennar var dæmd fyrir að beita leikkonuna andlegu og líkamlegu ofbeldi. Winter leik- ur Alex Dunphy í gamanþáttunum Modern Family. Mál Winter hófst fyrir mán- uði síðan þegar leikkonan sóttist eftir sjálfræði og sagði móður sína beita sig líkamlegu og andlegu ofbeldi. Dómari dæmdi Winter í vil og skipaði móður hennar jafn- framt að halda sig fjarri Winter þar til málið verður tekið aftur upp síðar í mánuðinum. Winter er fjórtán ára gömul og samkvæmt frétt Tmz.com beitti móðir hennar eldri börn sín einn- ig ofbeldi, þar á meðal Shanelle Workman, sem nú hefur forræði yfir Winter. Kærir of- beldi móður Í MÁL Ariel Winter fór fram á sjálfræði frá ofbeldisfullri móður. NORDICPHOTOS/GETTY Bíó ★★★★ ★ Argo Leikstjórn: Ben Affleck. Leik- arar: Ben Affleck, Bryan Cran- ston, Alan Arkin, John Goodman, Clea DuVall, Victor Garber, Tate Donovan. Hin sannsögulega Argo segir frá fífldjörfum leiðangri árið 1980 þar sem leyniþjónustumaðurinn Tony Mendez dulbjó sig sem kvikmynda- gerðarmann í þeim tilgangi að smygla sex starfsmönnum banda- ríska sendiráðsins í Teheran út úr borginni. Byltingarsinnar höfðu tekið yfir sendiráðið og haldið rúm- lega 50 manns þar í gíslingu í meira en tvo mánuði. Kæmist upp um hina sex sem náðu að flýja biði þeirra bráður bani. Búin var til platbíó- mynd, hallærisleg vísindaskáld- saga sem framleiðendur vildu gera í Íran, og sexmenningarnir áttu að vera hluti af þeirri kvikmyndagerð. Þessi lygilega saga á meira skylt við skáldskap á borð við Arnar- borgina og Inglourious Basterds en raunveruleikann. Atburðarásin er hrollvekjandi og hlægileg til skipt- is, og þrátt fyrir að Affleck taki sér ýmis skáldaleyfi hér og þar eru ótrúlegustu hlutar myndar- innar dagsannir. Það er helst enda- spretturinn sem dregur aðeins úr áhrifamættinum, en þar leyfir myndin sér einmitt að fara frjáls- legar með staðreyndir en áður, og verður fyrir vikið eilítið klisju- kennd. Tíðarandi ársins 1980 er endur- skapaður af mikilli nákvæmni og fyrir fólk með fortíðarblæti er Argo sannkallaður hvalreki. Tónninn er sleginn strax í byrjun þar sem eld- gamalt Warner-lógó er sótt upp í hillu og splæst framan við mynd- ina. Yfirskeggin flæða af tjaldinu við ljúfa tóna Dire Straits og seinni tíma Led Zeppelin. Í lokin sjáum við síðan alvöru ljósmyndir teknar af sexmenningunum og sjálfri gísla- tökunni. Þjónar svo sem litlum til- gangi öðrum en þeim að monta sig af nákvæmnisvinnunni. Það er líka bara allt í lagi. Affleck er þó enn jafn stirður sem leikari og synd að hann fékk ekki einhvern flinkari í aðalhlut- verkið. Nú þegar hann hefur sannað sig sem frábær leikstjóri ætti hann að halda sig þeim megin vélar. Argo er hins vegar það spennandi og vel gerð að við fyrirgefum leikaranum Ben Affleck. Svei mér ef manni er ekki bara farið að þykja eilítið vænt um hann. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Enn ein rós í hnappagat leikstjórans Afflecks. Vönduð og hörkuspennandi. Fífldirfska og fortíðarþrá ARGO „Þessi lygilega saga á meira skylt við skáldskap á borð við Arnarborgina og Inglourious Basterds en raunveru- leikann.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.