Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 102
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR
KRAFTLYFTINGAR Kópavogs tröllið
Auðunn Jónsson gerði sér lítið
fyrir og varð heimsmeistari í rétt-
stöðulyftu á HM sem fram fór í
Púertó Ríkó. Auðunn lyfti 365,2
kílóum, sem dugði til sigurs. Frá-
bær árangur hjá Kópavogs búanum,
sem er nýorðinn fertugur.
„Ég fór með þær væntingar í
mótið að vinna réttstöðulyftuna
en ég vissi að þetta yrði gríðar-
lega hörð keppni,“ sagði Auðunn
og glotti við tönn. Þegar hann var
að æfa í sumar með hinum 19 ára
gamla Júlían Jóhannssyni settu
þeir sér báðir háleit markmið.
„Þá ákváðum við báðir að taka
gull í réttstöðulyftu í ár. Júlían fer
svo út á HM unglinga og vinnur
gull. Þá var kominn pressa á kall-
inn. Það var því virkilega sætt að
ná að landa þessu.“
Var ekki á neinum lyfjum er ég féll
á lyfjaprófi
Auðunn varð heimsmeistari árið
2006 en missti titilinn eftir að
hafa fallið á lyfjaprófi. Hann var
í kjölfarið dæmdur í tveggja ára
bann. Auðunn var aldrei sáttur
við hvernig prófið var framkvæmt
og ekki síður ósáttur við niður-
stöðuna. Hann náði þó ekki að
hnika henni.
„Ég var ekki á neinum ólög-
legum lyfjum á þessu móti. Ég var
mjög ósáttur við allt þetta ferli.
Ég var ósáttur við hvernig ég var
tekinn í lyfjapróf. Mér leið strax
eftir prófið eins og ég hefði gert
eitthvað af mér. Mér leið eins og
ég væri glæpamaður,“ sagði Auð-
unn. Hvernig fór þetta umdeilda
próf fram?
„Ég er nýkominn til Noregs
á HM. Kem seint um kvöld og
fer beint að sofa. Fyrir átta um
morgun inn er bankað á hurðina.
Félagi minn fer til dyra og þeir
koma hlaupandi inn í herbergi að
mér.
Ég er svo tekinn upp í eitthvað
herbergi. Ekki á einhvern ákveð-
inn stað þar sem lyfjapróf fara
fram. Mér var svo brugðið að það
lá við að mig langaði heim aftur.
Þetta var ömurleg framkoma við
íþróttafólkið,“ sagði Auðunn, sem
kvartaði yfir meðferðinni og móts-
haldarar fengu skömm í hattinn.
Hefur slík uppákoma ekki átt sér
stað síðan á þessum mótum.
Það breytti samt ekki niður-
stöðunni. Auðunn var dæmdur
fyrir að falla á lyfjaprófinu og
þurfti að taka út tveggja ára bann.
„Í lyfjaprófinu var ekki hægt
að sýna fram á beina lyfja notkun
heldur vildu þeir meina að það
hefðu verið einhver niðurbrotsefni
í sýninu sem ég er dæmdur fyrir.
Ég hafði ekki tekið ólögleg lyf og
fór með málið eins langt og ég gat,
alla leið í íþróttadómstólinn í Sviss,
en hafði ekki erindi sem erfiði. Ég
efast um að nokkur íþrótta maður
hafi farið með sitt mál svona langt.
Ég hef alltaf verið ósáttur við
þessa niðurstöðu.“
Held að margir trúi því að ég neyti
ekki ólöglegra lyfja
Auðunn segist gera sér grein fyrir
því að fullt af fólki líti á hann sem
manninn sem féll á lyfjaprófi og
telji að hann noti stera. Heldur
hann að fólk trúi því að hann hafi
aldrei neytt ólöglegra lyfja?
„Ég veit það ekki. Ég held að
margir trúi því samt. Margir halda
að þetta snúist bara um lyf en ekki
að æfa vel, borða vel, sofa vel, lifa
heilbrigðu lífi og vera náttúrulega
sterkur. Ég hef alltaf lagt gríðar-
lega mikið á mig og jafnvel meira
en margur heldur. Það er ástæðan
fyrir því að ég skara fram úr en ég
veit að það trúa því ekki endilega
allir. Ég get ekkert gert við því.“
Þar sem K raft lyft inga -
sambandið er komið inn í ÍSÍ þarf
Auðunn að gangast undir lyfjapróf
á vegum ÍSÍ eins og aðrir íslenskir
íþróttamenn. Hann er líka í lyfja-
prófunarhópi ÍSÍ og þarf því alltaf
að láta vita hvar hann er. Það þarf
alltaf að vera hægt að ná í hann
í próf.
„Ég þarf að gefa upp hvern
klukkutíma á hverjum degi hvað
ég sé að gera. Ef það breytist þarf
ég að láta vita af því. Á þessu ári
er ég búinn að fara í þrjú lyfja próf.
Tvö á vegum ÍSÍ og svo úti á heims-
meistaramótinu. Ég hef staðist þau
öll. Ég hef líklega farið í tíu eða tólf
próf hjá ÍSÍ á síðustu árum og allt-
af staðist,“ sagði Auðunn en hefur
hann aldrei neytt ólöglegra lyfja á
ferlinum?
„Nei, það hef ég aldrei gert. Ég
hef alltaf verið hreinn og get sagt
það blákalt. Það var því ekki gott
að fá þennan stimpil. Ég get ekki
neitað því. Nú hef ég öll þessi lyfja-
próf og þennan árangur á bak við
mig núna. Það talar sínu máli og
gott að geta sýnt fram á að það er
hægt að vera stór og sterkur án
þess að nota ólögleg lyf.“
Vil hafa allt uppi á borðum
Auðunn segist hafa fagnað því
manna mest er Kraftlyftinga-
sambandið fór inn í ÍSÍ og hann
væri því samþykktur íþrótta maður
og gjaldgengur í öll kjör.
„Það er rosalega sætt að ná
þessu eftir það sem á undan er
gengið. Sérstaklega þar sem nú
erum við inni í ÍSÍ. Ég vildi óska
þess að þannig hefði það alltaf
verið. Ég væri líklega ekki enn að
lyfta ef við hefðum ekki farið inn
í ÍSÍ.
Ég vil styðja það góða starf sem
Kraftlyftingasambandið er með.
Ég hef oft svekkt mig á því að
vera ekki gjaldgengur í nein kjör
eins og til að mynda íþróttamaður
Kópavogs þar sem ég bý. Þetta er
sem betur fer allt annað og betra
umhverfi í dag og ég er þakklát-
ur fyrir það. Það skiptir mig miklu
máli að geta haft allt upp á borði
og fólk sjái að ég er að ná þessum
árangri á heiðarlegan hátt.“
henry@frettabladid.is
sport@frettabladid.is
ENGUM STJÓRNMÁLAMÖNNUM var boðið á fund Kraftlyftinga-
sambandsins í gær þar sem tveimur heimsmeisturum var hampað. „Við viljum
ekki að stjórnmálamenn séu að skreyta sig með fjöðrum afreksmanna okkar á
meðan við fáum litla styrki,” sagði Sigurjón Pétursson, formaður sambandsins.
Það er gott að geta
sýnt fram á að það sé
hægt að vera stór og sterkur
án þess að nota ólögleg lyf.
AUÐUNN JÓNSSON
KRAFTLYFTINGAMAÐUR
Hef alltaf verið hreinn
Auðunn Jónsson varð á dögunum heimsmeistari í réttstöðulyftu. Hann hlaut
því uppreisn æru eftir að hafa fallið á lyfjaprófi á HM árið 2006. Hann er enn
ósáttur við þá niðurstöðu og segist aldrei hafa neytt ólöglegra lyfja.
HRIKALEGUR Kópavogströllið Auðunn Jónsson er á hátindi ferilsins fertugur að aldri og hefur gengið í gegnum margt á ferlinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bílabúð Benna dekkjaþjónusta
Dekkið
sem kemur
þér lengra