Fréttablaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 26
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR26
Enn eru þúsundir heimila og fyrirtækja án rafmagns í New York, hálfri annarri
viku eftir að fellibylurinn Sandy skall á. Starfsmenn rafveitunnar stefna að því
að um helgina verði búið að koma rafmagni til allra á ný eftir hamfarirnar.
Í New Jersey eru 250 þúsund heimili og fyrirtæki enn án rafmagns og
nærri 200 þúsund á Long Island.
Alls urðu meira en 5,5 milljónir heimila og fyrirtækja rafmagnslaus, þar af
meira en milljón í New York. Yfir hundrað heimili urðu eldi að bráð og allar
almenningssamgöngur lömuðust í borginni.
Eldsneytisskortur hefur verið viðvarandi með löngum biðröðum við elds-
neytisstöðvar, og hafa borgaryfirvöld í New York nú gripið til þess ráðs að
takmarka eldsneytissölu, viku eftir að gripið var til sams konar skömmtunar-
aðgerða í New Jersey.
Hamfarirnar kostuðu meira en hundrað manns lífið, þar af að minnsta
kosti 48 manns í New York.
Þ
etta er nú allt að kom-
ast í þokkalega norm-
alt horf, allavega hér
á Manhattan,“ segir
Erla Skúladóttir, íbúi
í New York, spurð
hvernig ástandið sé í borginni tíu
dögum eftir að fárviðrið Sandy
gekk þar yfir. „Hlutar af Staten
Island, Queens og New Jersey eru
þó enn án rafmagns og hita sem er
náttúrulega alveg hræðilegt, sér-
staklega eftir að lægð númer tvö
gekk hér yfir í
fyrradag með
snjókomu og
kulda. Snjórinn
er sem betur
fer mikið til
farinn og svo
á að hlýna um
helgina þannig
að þetta fer von-
andi skánandi.“
Erla segir enn
mikið starf unnið til að hjálpa þeim
sem misstu heimili sín í storminum
og brunanum í Queens, en það sem
aðallega hrjái New York-búa þessa
stundina sé bensínskortur. „Nú er
svo komið að bensín er skammt-
að þannig að fólk sem á bíla með
númerum sem enda á oddatölum
má bara kaupa bensín á oddatölu-
dögum og sama gildir um eigendur
bíla með númer sem enda á jafnri
tölu, þeir fá bensín á dögum með
jafnri tölu. Víða er orðið bensín-
laust og sumar bensínstöðvar geta
ekki pumpað vegna rafmagnsleys-
is og hafa ekki getað síðan Sandy
gekk yfir.“
Í hverju felst hjálparstarfið
helst? „Það eru sjálfboðaliðar sem
senda út boð og gangast fyrir söfn-
un á fötum, mat og öðrum nauð-
synjum fyrir þá sem misstu allt í
storminum. Margar kirkjur hafa
veitt húsnæði fyrir sjálfboðalið-
ana til að flokka það sem safnast og
koma því á rétta staði og eins eru
safnaðarheimili og skólar notuð til
að veita þeim húsaskjól sem þurfa.“
Erla segir þó töluverðan misbrest
á því að upplýsingaflæðið sé nóg
til að fólk viti hvert það geti snúið
sér ef það vill rétta fram hjálpar-
hönd. „Ég eyddi til dæmis allri síð-
ustu helgi í að koma fötum og ýmsu
smáræði sem mér fannst mest þörf
fyrir til skila. Það var mjög erfitt
að finna staðina þar sem tekið var
á móti framlögum, sem mér finnst
mjög skrítið á þessum tímum sam-
félagsmiðlanna. En það tókst þó að
lokum.“
Erla býr í vesturhluta Manhatt-
an og segir þann borgarhluta nán-
ast hafa sloppið við afleiðingar
óveðurs ins. „Vesturhliðin, fyrir ofan
14. stræti, slapp eiginlega alveg. Við
höfðum rafmagn, internet og sjón-
varp allan tímann þannig að Sandy
hafði ekki bein áhrif á okkar dag-
lega líf. Við reyndum bara að hjálpa
eins og við gátum og höfðum opið
fyrir fólk sem átti ekki í nein hús að
venda. Baðherbergið okkar var til
dæmis opið fyrir gesti og gangandi
sem þurftu að fara í sturtu og höfðu
ekkert vatn. Auðvitað reynir maður
að hjálpa eins mikið og maður getur.
Ég er búin að búa hérna í 22 ár en
hef aldrei upplifað svona veður.
Maður heyrir oft um flóð þegar
mikil óveður ganga yfir, sérstaklega
í New Jersey, en ég hef aldrei séð
svona ástand á Manhattan.“
Erla segir mikinn samhug meðal
borgarbúa, allir séu boðnir og búnir
að hjálpa, en þó sé aðeins farið að
bera á því að fólk sé orðið pirrað
á ástandinu. „Það er að byrja smá
ólga, núna þegar mesta sjokkið er
liðið hjá. Það blossar upp reiði og
fólk spyr af hverju þessi fái hjálp
en ekki það, af hverju öll Manhatt-
an sé komin með rafmagn en ekki
úthverfin og svo framvegis. En
það er samt fyrst og fremst sam-
hugurinn sem ríkir og nú er aftur
að koma helgi þannig að nú brett-
ir maður upp ermarnar og reynir
að finna út hvar mest þörf er fyrir
hjálp. Ég ætla að taka vel á því og
fara og hjálpa til við að rýma hús
og svoleiðis. Það allra minnsta sem
maður getur gert er að gefa nokkra
klukkutíma af lífi sínu þegar fólk
þarf á hjálp að halda.“
Samhugur
hjá íbúum
New York
Erla Skúladóttir hefur búið í New York í 22 ár en
aldrei upplifað ástand eins og það sem fárviðrið
Sandy olli þar í lok október. Hún sagði Friðriku
Benónýsdóttur frá ástandinu í borginni, hjálpar-
starfinu og samhuginum sem ríkir hjá íbúunum.
EKKI Í FENEYJUM Neðarlega á Manhattan. Í fjarska er Woolworth-byggingin, sem var fyrsti skýjakljúfur sem byggður var á Manhattan.
MANHATTAN Það flæddi inn í bílageymslur borgarbúa. MYNDIR/ERLA SKÚLADÓTTIR
HJÁLPARHENDUR Allir reyndu að hjálpast að og gefa þeim
að borða sem ekki höfðu tök á að búa til mat sjálfir sökum
rafmagnsleysis.
FRÍTT RAFMAGN Þetta var algeng sjón. Versl-
anir buðu vegfarendum að nota rafmagn.
FLÓÐ Neðri hluti Manhattan varð fyrir
mestum skaða í þeim borgarhluta.
QUEENS Staten Island, New Jersey og Queens urðu verst úti í
fárviðrinu.
ALLT Í GRÆNUM SJÓ Lower East Side.
ERLA SKÚLADÓTTIR
■ LANGVINN ÁHRIF
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY