Fréttablaðið - 10.11.2012, Síða 34
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR34
S
umir segja að þetta sé eins og
Hagkaup nema
bara minna,“ segir
Stefanía Birgis-
dóttir hlæjandi
þegar litið er yfir
vöruúrvalið í Verslun Bjarna
Eiríkssonar í Bolungarvík.
Þar fæst flest milli himins
og jarðar; matur, fatnaður, bækur, ritföng,
gjafavara, leikföng og garn svo nokkuð sé
nefnt. Afgreiðslutíminn vekur líka athygli
því Bjarnabúð er opin alla daga ársins nema
jóla- og nýársdag. Stefanía viðurkennir að
starfið sé bindandi. „Ég er alltaf í vinnunni,
enda er ekki auðvelt að komast frá, en ég
skrepp stundum suður að kaupa inn,“ segir
hún og bendir á nýjan fatnað á hillum og
slám sem dæmi um afrakstur slíkrar ferðar.
Verslun Bjarna Eiríkssonar er í húsi frá
1917. Þar hefur hún verið frá 1927 og heit-
ir eftir stofnandanum. Benedikt sonur hans
tók við búðinni 1958 en hjónin Stefanía og
Olgeir Hávarðarson eru þriðju eigendurnir
og óskyldir frumkvöðlinum. Útgerð og fisk-
vinnsla fylgdi rekstrinum í yfir sex áratugi.
Þeirri hefð viðheldur Olgeir í smáum stíl yfir
sumarið.
„Við erum búin að vera hér frá 1. janúar
1996. Þá var atvinnulífið hér í víkinni öfl-
ugra en nú, fiskvinnsla, rækjuverksmiðja
og togari. Á móti kemur að við höfum fengið
göng, malbik alla leið að sunnan og erum á
Facebook,“ segir Stefanía brosandi. Hún er
Ísfirðingur að uppruna en Olgeir er „original
Víkari“. „Við getum flett upp viðskiptum for-
eldra Olgeirs, afa og langömmu við Verslun
Bjarna Eiríkssonar,“ segir Stefanía og sýnir
gamlar verslunarbækur sem varðveittar eru
á efri hæðinni. Þar sést til dæmis úttekt upp
á hálfan lítra af lampaolíu, tvær Comman-
der-sígarettur og gúmmístígvél og dæmi
eru um að vörur hafi verið greiddar í fiski,
kjöti eða framlagðri vinnu. „Það var stundum
lítið um peninga,“ segir Stefanía. Hún kveðst
stundum leyfa hópum að kíkja upp á loftið að
skoða hluti sem heyra fortíðinni til, ef ein-
hver stendur vakt í búðinni á meðan.
VERSLUNARBÆKURNAR Allt var handskrifað áður fyrr,
bæði úttektir og innlegg.
Í FULLU GILDI Maggísúpustandurinn og kókklukkan hafa átt mörg afmæli.
BYGGT 1917 Verslun Bjarna hefur verið í húsinu frá 1927, kaupmannsfjöl-
skyldan bjó uppi.
Bjarnabúð opin 363 daga á ári
Verslun Bjarna Eiríkssonar í Bolungarvík er 85 ára og meðal elstu krambúða landsins. Þótt þar fáist tískufatnaður og aðrar
ferskar vörur halda eigendurnir í gamlar innréttingar, muni og verslunarbækur. Pjetur Sigurðsson myndaði þessa söguríku búð.
Í FORNMUNADEILDINNI Á loftinu er margt forvitnilegt. Upprúlluð gólfteppi vitna um
þá tíð þegar verslun Bjarna seldi Álafossteppi.
ELSTA BAÐKAR BOLUNGARVÍKUR Baðherbergið í kaupmannsíbúðinni á
efri hæðinni geymir meðal annars hundrað ára baðkar, mjórra í annan
endann til að spara heita vatnið.
GÓÐAR GRÆJUR Reiknivélar og voldugur búðarkassi sem tilheyra síðustu öld.
HLÍFÐARFATNAÐUR Sloppar og svuntur frá ýmsum tímum,
tískusveiflur sjást þar í sniðum og efnum.
EIGENDURNIR „Við reynum að halda í gömlu umgjörðina þó alltaf komi nýjar og nýjar vörur,“ segja hjónin Olgeir Hávarðarson og Stefanía Birgisdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR