Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.11.2011, Síða 29

Fréttatíminn - 18.11.2011, Síða 29
Nú er tími til að gefa ...og líka þiggja. Skráðu þig á americanexpress.is og fáðu tvöfalda Vildarpunkta Icelandair af allri veltu til 15. desember! Jólabónus Icelandair American Express® mætt til leiks í kollinum á mér og hafði lítinn áhuga á þessum bollaleggingum mínum heldur krafðist þess að ég tæki upp pennann og kæmi mér að verki. Það sama átti við um Málverkið. Þær mótuðust sjálfkrafa konurnar tvær sem halda þeirri bók uppi, önnur íslensk og hin bresk, og ég fann aldrei fyrir því að ég þyrfti að hugsa öðruvísi en endranær. Auð- vitað tók það sinn tíma að móta þær; ég held að ég hafi gengið með þær í höfðinu í meira en ár áður en ég byrjaði að skrifa bókina en þá voru þær fullskapaðar og raddir þeirra orðnar mjög skýrar.“ Sækir í reynslu raunverulegs fólks Ólafur Jóhann á það til að sækja fyrirmyndir að persónum sínum til raunverulegs fólks en gætir þess þá að stíga varlega til jarðar og hann segist hafa átt afskaplega fín samskipti við afkomendur Ólafi Jóhanni finnst best að skrifa fyrir hádegi áður en hann fer í vinnuna hjá Time Warner. Hér er hann kominn að pylsuvagni í Central Park þegar degi er tekið að halla. Ljósmyndir Daniel Kazimierski. Framhald á næstu opnu þess fólks sem hefur verið honum innblástur. „Þegar ég vann að Höll minn- inganna naut ég þess að eiga þá að bræðurna Kristján Tómas og Árna Tómas Ragnarssyni en aðalpersóna þeirrar bókar var að nokkru leyti byggð á lífi afa þeirra. En auðvitað er þetta vandmeðfarið og mikilvægt er að hafa í huga að þegar upp er staðið eru þær persónur sem lifna á síð- unum skáldskapur þótt maður hafi kannski stuðst við eitt og annað úr lífi „raunverulegs“ fólks. Það sama á við um Alice Orsini í Málverkinu. Ég færi mér í nyt dagbækur þær sem Íris Origo hélt á stríðsárunum og sumt úr bakgrunni hennar en smíða svo persónu sem á Ólafur Jóhann hefur síðustu tólf ár verið í hópi helstu stjórnenda fjölmiðlarisans Time Warner. Hann er einn fimm aðstoðarfor- stjóra hjá fyrirtækinu og sér um stefnumótun og starfsemi fyrir- tækisins utan Bandaríkjanna. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í New York. Fyrirtækið varð til við sam- runa Warner Communications og Time en undir hatti þess er einnig fjarskiptafyrirtækið AOL (America Online). Umsvif undirfyrirtækja samsteypunnar eru frek til fjörsins við fram- leiðslu kvikmynda og sjónvarps- efnis þar á meðal er eitt stærsta kvikmyndaver Bandaríkjanna, Warner Brothers, sem hefur framleitt Harry Potter-mynd- irnar, The Lord of the Rings, Batman-myndirnar og myndir Clints Eastwood. Þá á fyrirtækið fjölda gamalla perla eins og og til dæmis Casablanca. Fyrirtækið framleiðir einnig vinsæla sjón- varpsþætti og nægir þar að nefna Seinfeld, Friends, West Wing og E.R. Kabalstöðin HBO tilheyrir einnig Time Warner en afurðir þeirrar stöðvar eru Íslendingum vel kunnar en þaðan koma þættir eins og The Sopranos, Sex and the City, Game of Thrones, Boar- dwalk Empire og Six Feet Under. Fyrirtækið á einnig sjónvarps- stöðvarnar TNT, TBS, Cartoon Network og svo fréttastöðina CNN. Fyrirtækið ræður líka yfir stærstu tímaritaútgáfu heims, Time Inc, sem gefur út fjölda tímarita, þar á meðal hið forn- fræga og virta Time. Í fremstu víglínu hjá Time Warner viðtal 29 Helgin 18.-20. nóvember 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.