Fréttatíminn - 18.11.2011, Blaðsíða 68
Helgin 18.-20. nóvember 201168 tíska
Vanmat á afrískri
útlitsdýrkun
Það vakti með mér mikla undrun þegar
allt fallega hár úgönsku móður minnar var
skyndilega horfið yfir nóttu. Stuttklipptur
drengjakollur var kominn í staðinn og lét
hún eins og ekkert væri sjálfsagðara. Um
kvöldið fékk ég athyglisverða útskýringu.
Þegar ég kom heim
þennan sama dag sat
hún í stofunni með
hárgreiðslukonu
yfir sér sem fléttaði
í hana nýtt hár. Þær
höfðu verið að síðan
um morguninn og
við það að klára. Ég
spurði hana hvort
að þetta hafi verið
hennar alvöru hár
sem ég sá í morgun
og játaði hún því.
Hún bætti svo við
að hárið hennar vex
ekki meira en nokkra
sentímetra. ,,Konur frá Úganda og víðar
geta ekki safnað hári. Ekki nema að þær séu
með blandað blóð.” Ég rak upp stór augu og
spurði hana hvort að allar þær konur með sítt
hár hér í Úganda séu þá með hárlengingar?
Aftur fékk ég jákvætt svar og sagði hún að
þær þyrftu að gera þetta einu sinni í mánuði
– og kostar hálf mánaðarlaun.
Ég hafði greinilega vanmetið afrískar konur.
Við megum ekki halda að útlitsdýrkun ríki
aðeins í vestrænum heimi. Það er í eðli okkar
að vilja líta vel út og auðvitað er þessi dýrkun
sterk í Afríkulöndum líka. Hér gengur fólk
kannski ekki eins langt og við þekkjum
heima en er engu að síður staðreynd.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Blandar saman áratugum
Mánudagur
Skór: Nostalgía
Samfestingur: Spúútnik
Belti: Gamalt frá mömmu
Peysa: Aftur
Þriðjudagur
Skór: Sonja Rikkel, Kron Kron
Buxur: Zara
Skyrta: Nostalgia
Vesti: Rauða Kross búðin
Kolla með úganskri
fósturmóður sinni.
Ljósmynd/Haakon Broder
Lund
Föstudagur
Skór: Marc Jacobs
Pils: Cheap Monday
Peysa: Zara
Kápa: Kolaportið
Fimmtudagur
Skór: Rauða kross búðin
Kjóll: Spúúntik
Úr: Meba
Miðvikudagur
Skór: Rauða kross búðin
Buxur: Nostalgía
Bolur: H&M
Hálsmen: Spúútnik og Oasis
Hanna Soffía Formar fagnar 22 ára
afmæli sínu í dag, 18. nóvember. Hún stund-
ar nám á öðru ári á viðskiptafræðibraut í
Háskóla Íslands og vinnur samhliða því í
versluninni Spúútnik.
„Stundum er ég rosalega venjuleg til fara
en það kemur fyrir að ég klæði mig í mynstr-
aðar og litaðar flíkur. Ég elska að blanda
áratugum saman þegar kemur að klæðnaði
og nýt ég mín einstaklega vel í vinnunni
minni þar sem ég get gramsað eftir allskon-
ar skemmtilegum og einstökum fatnaði. Ég
er mest fyrir þessi „vintage“ föt, þá veit ég
að enginn á eins og versla þau helst hérna
heima. En þegar ég fer til útlanda kemur að
því að ég versla alla þessar „beisik“ flíkur
eins og hlýraboli, gallabuxur eða sokka.
Innblástur í tísku fæ ég mikið frá bloggum
um götutísku. Einnig finnst mér Olsen syst-
urnar alltaf flottar og einnig hin breska
Alexa Chung sem er með mjög afslappaðan
en öðruvísi stíl.“
Reynir að höfða
til sem flestra
Raunveruleikaþáttastjarnan
og tískugyðjan Nicole Richie
hefur stjórnað tískuhúsinu
House of Harlow af miklum
krafti síðustu ár og tilkynnti
hún í vikunni að ný lína væri
væntanleg í febrúar á næsta
ári. Hún hefur fengið heitið
QVC Collection og mun höfða
til beggja kynja á öllum aldri
og kemur í fjölbreytilegum
stæðum. Línan verður seld víða
um Bandaríkin og Evrópu og er
stefnt að því að verðlagningin
verði þannig að flestir ættu að
hafa efni á. -kp
Tímarit frumkvöðla
Á þriðjudaginn síðasta gaf
tímaritið Vogue út sérstakt
tölublað tileinkað best klæddu
einstaklingum heims, en þetta
er í annað skipti sem slíkt
eintak er gefið út. Þetta árið
Louboutin bjargaði ferlinum
Victoria’s Secret
engillinn og nú
leikkonan Rosie
Huntington-White-
ley tjáði sig á dög-
unum við tímaritið
People að hún eigi
feril sinn að þakka
skóhönnuðinum
Christian Loubo-
utin. „Ég komst
ekki í snertingu við
mitt kvennlega eðli
fyrr en ég eignaðist
mitt fyrsta par af
Louboutin skóm. Þá
tók jörðin að snúast
og mér fannst ég vera
kynþokkafull í fyrsta
skipti. Það var þá
sem mér fór að vegna
vel sem fyrirsæta.
Allar konur ættu að
eiga eitt par. Þeir eru
dýrir, en þess virði
að eignast. Byrjið
snemma að safna
fyrir Louboutin.” -kp
er þemað áhrifamiklar
systur í tískuheiminum
og hlutu Olsen-syst-
urnar þann heiður að
prýða forsíðunna. Einnig
er að finna í blaðinu
ítarlega umfjöllun um stíl
þeirra Middleton-systra
ásamt þeim Beyonce og
Solange Knowels.
Ekki vantar þó hefð-
bundnu dálka tímaritsins
eins og best klæddu
einstaklinganna og þá
áhrifamestu árið 2011 auk
þess sem finna greinar
um nýja hönnuði og
rísandi stjörnur innan
tískuheimsins. -kp
Rosie ásamt skóhönnuð-
inum Louboutin. Ljósmynd/
Nordicphotos Getty-Images
Dásamlega þægilegir
og
vandaðir skór!