Fréttatíminn - 18.11.2011, Blaðsíða 58
58 bækur Helgin 18.-20. nóvember 2011
Bókaútgáfan Hólar holabok.is/holar@holabok.is
FJÖR OG MANNDÓMUR
Einstakir
þjóðlífsþættir
Vilhjálms
Hjálmarssonar
og þá ekki síst kaflinn
um Guðrúnu
Hjálmarsdóttur
konu sem ekki mátti
sín mikils en lifði
þó lengi
og allir ættu að lesa.
Ferð í Eymundsson
er hluti jólahalds
Verslanir Eymundsson hafa verið hornsteinn bókmennta í tæp 140 ár.
Frá í byrjun september hafa selst fleiri rafbækur en pappírsbækur.
V erslanir Eymundsson rekja sögu starfsemi sinnar allt aftur til ársins 1872. Ey-
mundsson er því elsta bóksala
landsins. „Það má segja með sanni,“
segir Ingibjörg Ásta Halldórsdótt-
ir, markaðsstjóri Eymundsson, „að
verslanir Eymundsson hafi í tæp 140
ár verið hornsteinn íslenskra og er-
lendra bókmennta. Verslanirnar eru
á landsvísu og í þeim er margvíslegt
úrval; bóka, tímarita, gjafavara, tón-
listar og fleira mætti nefna.“
Allt árið um kring er boðið upp á
mikið úrval bókmennta og árlega er
tekið á móti tæplega 1000 nýjum ís-
lenskum barna-, unglinga- og fullorð-
insbókatitlum. Verslanir Eymunds-
son eru þannig samkomustaður
bókaútgefanda, rithöfunda og bóka-
unnenda.
Nú fyrir jólin er sérlega blómleg
jólabókaútgáfa en einkum mikill
vöxtur í útgáfu skáldsagna, mat-
reiðslubóka og handbóka. „Við tök-
um á móti nánast öllu útgefnu ís-
lensku efni og viljum með því leggja
okkar að mörkum við að styðja við
íslenska tungu og lestur þjóðarinnar.
Það eru engin jól án bóka, stendur
einhvers staðar, og má til sanns veg-
ar færa þegar bókaþjóðin sjálf er ann-
ars vegar. Það eru margar fjölskyldur
sem lesa sér til gagns og gaman yfir
jólin, það stór partur þess að slappa
af á aðventunni og þá gefast fleiri
gæðastundir til lestrar. Hjá sumum
er það síðan sérstakur jólasiður að
geyma gersamarnar þangað til seint
á aðfangadagskvöld. Aðrir eru síðan
bókelskir allt árið um kring. Starfs-
fólk Eymundsson er boðið og búið til
að veita viðskiptavinum ráðgjöf og
þjónustu varðandi val á lesefni. Við
bjóðum upp á innpökkun og síðan er
auðvitað hægt að fá skiptimiða á þær
vörur sem keyptar eru hjá okkur. “
En hvort sem á að dekra sig með
góðu lestrarefni eða finna góða gjöf
handa vinum og ættingjum ættu allir
Kynning eymundsson elsta bóksala landsins
að finna eitthvað við sitt hæfi í versl-
unum Eymundsson. „Fyrir jólin er
síðan haldin ýmis útgáfuboð vegna
jólabóka í verslunum Eymundsson,
þar sem rithöfundarnir mæta á stað-
inn og lesa upp úr og/eða árita nýj-
ustu verk sín. Við auglýsum slíkar
uppákomur inn á Eymundsson-Fa-
cebook síðunni okkar,“ segir Ingi-
björg Ásta.
Sala á rafbókum hafin
Þó svo að Íslendingar séu í senn
íhaldssöm og fastheldin bókaþjóð
erum við aftur á móti fljót að til-
einka okkur nýjungar af öllu tagi.
„Eymundsson hóf sölu á rafbókum í
byrjun september og frá þeim tíma
hafi fleiri rafbækur selst á vef fyrir-
tækisins en hefðbundnar pappírs-
bækur. Sem sætir tíðindum. Fram-
boð erlendra bókatitla er núna um
ríflega 100.000 og þar af um 12.000
titlar sem kosta innan við eitt þús-
und krónur, svo það er ekki að undra
að margur hafi gripið gæsina um
leið og hún gafst. Fyrir jólin verða í
boði á vefnum okkar fyrstu íslensku
rafbókatitlarnir og er markmiðið
sett á að eymundsson.is verði með
mesta úrval heims íslenskra bóka
á rafrænu formi. Nýlegar breyting-
ar á virðisaukaskattslögum gefa
rafrænni bóksölu byr undir báða
vængi,“ segir Ingibjörg Ásta. „Í
haust voru samþykkt lög sem tóku
gildi í byrjun mánaðarins. Með
setningu þeirra lækkaði virðisauka-
skattur á rafrænum bókum úr 25,5
prósentum í 7 prósent, eða sama
skattstig og hefur verið á prentuðum
bókum. Bók er því alltaf fyrirtaks
gjöf, hvort heldur sem hún er lesin
af pappírssíðum eða á lesskjá.“
Málverkið
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson
Hanna María Karlsdóttir les
Komnar í verslanir
og á tónlist.is
Einvígið
Nýjar hljóðbækur
eftir Arnald Indriðason
Ingvar E. Sigurðsson les
Hjarta mannsins
eftir Jón Kalman Stefánsson
Stefán Hallur Stefánsson les
www.skynjun.is
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir markaðsstjóri