Fréttatíminn - 02.12.2011, Page 2
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Sjötíu prósent til framkvæmdastjórans
Gefðu gjöf sem gleður, gjöf sem kítlar bragðlaukana
Gjafakort á Nítjánda veitingastað er alveg tilvalið í jólapakkann
E ndurskoðendarisarnir KPMG, Delo-itte, Ernst & Young og Pricewater-houseCoopers hafa hagnast um 1,9
milljarða eftir hrun samkvæmt ársreikning-
um fyrirtækjanna fjögurra. Þessi félög voru
sum hver gagnrýnd í Rannsóknarskýrslu
alþingis fyrir að sinna ekki skyldum sínum
við endurskoðun reikningsskila bankanna
árið 2007 og árshlutauppgjör fyrri helm-
ing árs 2008 en KPMG var endurskoðandi
Kaupþings og PricewaterhouseCoopers var
endurskoðandi Landsbankans og Glitnis.
KPMG hefur gengið gríðarlega vel eftir
hrun. Félagið skilaði 490 milljóna króna
hagnaði árið 2010 og 498 milljóna króna
hagnaði árið 2009 eða samtals 988 milljón
króna hagnaði á tveimur árum. Alls greiddi
félagið 931 milljón króna í arð á þessum
tveimur árum til hluthafa sinna. Ekki
kemur fram í ársreikningi félagsins hverjir
eru hluthafar og hversu mikið hver og einn
hluthafi á en samkvæmt heimasíðu félags-
ins eru þeir 33 og starfa allir hjá félaginu:
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri
KPMG, er hluthafi sem og allir stjórnar-
menn þess, Jón S. Helgason, stjórnar-
formaður, Anna Þórðardóttir, Benedikt K.
Magnússon, Margrét G. Flóvenz og Símon
Á. Gunnarsson.
Deloitte kemur næst með 529,9 milljóna
króna hagnað á undanförnum tveimur
árum. Þar af var 311 milljóna króna hagn-
aður á síðasta ári. Alls hafa hluthafar í
Deloitte fengið 400 milljónir króna í arð á
undanförnum tveimur árum. Samkvæmt
ársreikningi 2010 er eigandi Deloitte fé-
lagið D&T sf en engar upplýsingar finnast
um félagið í hlutafélagaskrá. Samkvæmt
heimasíðu Deloitte eru eigendurnir tíu.
Þeir eru: Knútur Þórhallsson, stjórnarfor-
maður og fyrrverandi skilanefndarmaður
í Kaupþingi, Þorvarður Gunnarsson for-
stjóri, Margrét Ólöf Sanders fjármálastjóri,
Lárus Finnbogason, sviðsstjóri endurskoð-
unar og fyrrverandi formaður skilanefndar
Landsbankans, Ágúst Heimir Ólafsson,
Vala Valtýsdóttir, Guðmundur Kjartansson,
Sif Einarsdóttir, Þorsteinn Pétur Guðjóns-
son og Pálína Árnadóttir. Ekki liggur neitt
fyrir um skiptingu á milli hluthafanna.
PricewaterhouseCoopers skilaði 186
milljóna króna hagnaði á undanförnum
tveimur árum og greiddi 210 milljónir í arð
til 24 hluthafa sem allir eru starfsmenn.
Þeirra á meðal er Reynir Vignir, sem var
formaður skilanefndar Straums og er nú-
verandi framkvæmdastjóri Pricewater-
houseCoopers.
Ernst & Young skilaði 181,5 milljóna
króna hagnaði á árunum 2009 og 2010.
Árið 2010 var betra hjá félaginu því þá var
hagnaðurinn 114,2 milljónir. Alls greiddi
Ernst & Young 97,7 milljónir í arð til níu
hluthafa sem allir eru starfsmenn félags-
ins.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Laun framkvæmdastjóra Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar
námu í fyrra 69 prósentum af þóknunar- og hlunninda-
kostnaði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Félagið greiddi
honum 16,8 milljónir í árslaun og svo tvær milljón króna
vegna skatta sem hann bar af bifreiðarhlunnindunum.
Stjórnarformaðurinn, sem fær 270 þúsund krónur á
mánuði, fékk 60 þúsund krónur á árinu í ökutækjastyrk.
Aðrir stjórnarmenn fengu samtals fimm milljónir í laun og
ökutækjastyrk, samkvæmt svörum félagsins við fyrirspurn
Fréttatímans. Samtals 27,1 milljónir.
Fréttatíminn greindi frá því að þóknanir og hlunn-
indi stjórnenda Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar hafa
numið 100 milljónum á síðustu fjórum ár. Launakostnaður
félagsins, sem er í eigu ríkisins, hefur hækkað um 75 prósent á fjórum árum.
Starfsmönnum fjölgaði. Laun framkvæmdastjórans lækkuðu þó með úrskurði
kjararáðs. Sjálfur mat hann það svo, samkvæmt úrskurðinum, að laun sín hafi
lækkað um helming. - gag
Kjartan Þór
Eiríksson
framkvæmda-
stjóri.
ÁrsrEikningar EndurskoðEndarisar
1,5 milljarður í arð
Fjögur stærstu endurskoðendafyrirtæki landsins hafa skilað tæplega tveggja milljarða króna hagn-
aði á undanförnum tveimur árum. Eigendur þeirra fengu um áttatíu prósent af hagnaðinum í arð.
Hagnaður í milljónum
Félag 2009 2010 Samtals
Deloitte 218,6 311,3 529,9
Ernst & Young 67,3 114,2 181,5
PwC 123,7 62,6 186,3
KPMG 498,3 490,0 988,3
Samtals 1.886
Þessi félög
voru sum
hver gagn-
rýnd í
Rannsóknar-
skýrslu
alþingis fyrir
að sinna ekki
skyldum
sínum við
endurskoðun
reiknings-
skila bank-
anna árið
2007 og árs-
hlutauppgjör
fyrri helming
árs 2008 ...
Styrkja börn með
Downs-heilkenni
Úra- og skartgripaverslunin Leonard styrkir
börn með Downs-heilkenni með sölu á háls-
meninu smjörgrasi fyrir þessi jól og er þetta
í fjórða sinn sem verslunin gerir svo. Stefán
Hilmarsson söngvari afhenti Downs-börnum
fyrsta menið í verslun Leonard í Kringlunni í
gær, fimmtudaginn 1. desember. Meðal þeirra
sem voru viðstaddir afhendinguna var Jóhann
Fannar, fimleikastrákur úr Gerplu, sem hefur
tvisvar farið á Special Olympics og hreppt
gullverðlaun í bæði skiptin. „Þeir sem eru með
Downs-heilkenni eru fyrst og síðast einstak-
lingar með sömu væntingar og tilfinningar til
lífsins og annað fólk. Stuðningurinn með þessu
verkefni er ómetanlegur fyrir félagið. Styrkinn
mun félagið nýta í tómstundastarf fyrir börn
með Downs-heilkenni,“ segir Jóna María Ás-
mundsdóttir, formaður Félags áhugafólks um
Downs-heilkenni. -óhþ
Íbúðalánasjóður
hefur yfirtekið
meira en 2000
íbúðir
Íbúðalánasjóður hefur frá árinu
2006 yfirtekið 2.038 íbúðir. Flestar
þeirra, eða um fjórðungur, eru á
Suðurnesjum. Langflestar íbúðirnar
yfirtók sjóðurinn á árunum 2010 og
2011, að því er fram kemur í svari
Guðbjarts Hannessonar velferðar-
ráðherra við fyrirspurn Sigmundar
Ernis Rúnarssonar alþingismanns.
Yfirteknar íbúðir á höfuðborgar-
svæðinu eru 392, á Suðurnesjum
470, Vesturlandi 251, Vestfjörðum
96, Norðurlandi 209 og Suðurlandi
330. Heildarverðmæti eigna sem
Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið er
21 milljarður miðað við fasteignamat
en bókfært virði er 19,2 milljarðar.
Íbúðalánasjóður byrjaði að leigja út
íbúðir í mars 2009 en þá voru 34
íbúðir í útleigu. Þann 31. október
síðastliðinn voru 615 eignir í útleigu
hjá sjóðnum. Sjóðurinn hefur
takmarkaðar heimildir til útleigu á
íbúðum en hefur frá árinu 2006 selt
553 íbúðir. - jh
Athafnakonan Guðbjörg Matth-
íasdóttir þarf að greiða rétt tæpa
þrettán milljarða í afborgarnir af
skuldum félaga sinna á næsta ári
samkvæmt ársreikningi móður-
félagsins Fram ehf fyrir síðasta
ár. Fram ehf heldur utan um allar
hennar eignir, meðal annars í Ís-
félagi Vestmanneyja í gegnum
ÍV Fjárfestingafélag og Árvakri í
gegnum félagið Hlyn A sem á aftur
í Þórsmörk, móðurfélagi Árvakurs.
Guðbjörg er þó vel sett. Alls
nema eignir samstæðu hennar
25,9 milljörðum króna. Skuldirn-
ar, 13,7 milljarðar, eru nær allar í
félaginu Kristni ehf , sem heldur
utan um skuldabréfaeign Guð-
bjargar og bankainnistæður. Eigið
fé er rúmir tólf milljarðar.
Guðbjörg fékk rúmar 176 millj-
ónir í arð frá útgerðarfyrirtækinu
Ísfélagi Vestmannaeyja á síðasta
ári en þar á hún 88,4 prósenta
hlut. Eins og Fréttatíminn greindi
frá í byrjun þessa árs fékk Guð-
björg 2,8 milljarða króna arð á
árinu 2009.
FjÁrmÁl grEiðslur til lÁnastoFnanna
Guðbjörg þarf að borga 13 milljarða
Hannes gefur út Gillz og sig sjálfan
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
stjórnmálafræðingur og rithöfundur,
er eigandi einnar framsæknustu og
öflugustu bókaútgáfu landsins, BF-út-
gáfu sem hefur gefið út undir merkjum
Bókafélagsins. Útgáfan keypti einnig
nýlega Almenna bókafélagið. Félag
Hannesar, Öld ehf, er skráður eigandi
bókaútgáfunnar. BF-útgáfa hefur á
undanförnum tveimur árum gefið út
mikla og stóra doðranta eftir Hannes
sjálfan: Tilvitnanabókina Kjarna máls-
ins upp á 992 síður í fyrra og bókina
um íslenska kommúnista í ár. Útgáfa á bókum eigandans Hannesar hefur
þó verið fjármögnuð, að því er virðist, með metsölubókum Egils „Gillz“
Einarssonar sem hefur hreinlega mokað út tveimur lífstílsbókum sínum en
sú þriðja, Heilræði Gillz, er nýlega komin út. -óhþ
2 fréttir Helgin 2.-4. desember 2011