Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.12.2011, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 02.12.2011, Blaðsíða 8
Sextíu og þrír hætta hjá Íslandsbanka OECD reiknar með hóflegum hagvexti Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, reiknar með því að hagvöxtur hér á landi verði hóflegur næstu ár. Spáir stofnunin því að hagvöxturinn verði 2,4 prósent á næsta ári og einnig 2,4 prósent árið 2013. Þess er vænst að hagvöxtur verði drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu einkaaðila, meðal annars í orkufrekum iðnaði. Reiknar stofnunin með því að einkaneysla vaxi um 3,1 prósent árið 2012, að sami vöxtur verði 2013, að fjárfesting vaxi um 14,2 prósent á næsta ári og 4,1 prósent árið 2013. Spáð er heldur hraðari hagvexti hér á næsta ári en í flestum aðildarríkjum en spáð er 1,6 prósent hag- vexti í þeim á næsta ári og 2,3 prósent árið 2013. Að mati OECD verður atvinnuleysi hérlendis 6,1 prósent á næsta ári og 5,3 prósent árið 2013. Stofnunin spáir því að verðbólgan hér hjaðni, verði að meðaltali 4,1 prósent á næsta ári og 2,8 prósent árið 2013. - jh Hvammstangi og Borð- eyri í eina sæng? Kosningar um sameiningu sveitarfélag- anna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra fara fram laugardaginn 3. desember. Kjörstaðir verða bæði á Hvammstanga og á Borðeyri, að því er fram kemur í tilkynningu innanríkisráðuneytisins. Sameining sveitarfélaganna tveggja hefur verið til umfjöllunar undanfarin misseri. Í Húnaþingi vestra eru liðlega 1.100 íbúar en um 100 manns búa í Bæjarhreppi. Haldnir hafa verið fundir með íbúum beggja sveitarfélaganna til að fjalla um fyrir- hugaða sameiningu og fyrir liggur skýrsla um áhrif sameiningar. -jh Styrkur vegna jólaljósa í Borgarnesi Meðal sparnaðaraðgerða sveitarfélagsins Borgarbyggðar þetta árið var að spara uppsetningu og rekstur jólaljósa við götur í Borgarnesi. Með því átti að spara um eina milljón króna. Óánægju hefur gætt vegna þessa í röðum íbúa og ekki síst verslunar- eigenda sem þótti bær án jólaljósa ekki skapa réttu stemninguna, að því er Skessu- horn greinir frá. Farsæl málalok liggja hins vegar fyrir þar sem 10-15 fyrirtæki tóku höndum saman og styrktu sveitarfélagið til að setja upp jólaljós eins og verið hefur um árabil. Þá kom Rarik einnig til móts við fyrirtækin og sveitarsjóð og lækkaði gjald fyrir uppsetningu skreytinganna. Allir hafa því, segir Skessuhorn, tekið gleði sína að nýju í vel upplýstu Borgarnesi. - jh Alls var 42 starfsmönnum var sagt upp af Íslandsbanka í kjölfar sameiningar bank- ans og Byrs, 16 körlum og 26 konum. Auk þess var gengið frá starfslokum 21 starfs- manns þar sem hluti fer á eftirlaun en aðrir hætta að eigin ósk. Þá verða tímabundnir samningar ekki endurnýjaðir. Fram hefur komið að um tveir þriðju þeirra 42 sem sagt var upp hafi verið starfsmenn Byrs. Í tilkynningu bankans, fyrr í vikunni, segir að um óhjákvæmilegar hagræðingaraðgerðir hafi verið að ræða. Veitt er ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn við atvinnuleit auk þess sem boðið verður upp á sálfræðiað- stoð fyrir þá sem þess óska. - jh  MedicAlert UM fiMM þúsUnd MerkisberAr hérlendis Lífsnauðsynlegar upp- lýsingar á svipstundu MedicAlert-merki geta skipt sköpum um upplýsingagjöf fyrir þá sem koma að sjúklingi í neyð, hvort heldur er hér eða ytra, hvenær sem er sólarhringsins. MedicAlert eru alþjóðleg öryggis- samtök en rekin hér undir verndarvæng og með stuðningi Lionshreyfingarinnar. U m fimm þúsund merkis-berar eru hér á landi með MedicAlert-merki um úln- lið eða háls með neyðarnúmeri og upplýsingum um sjúkdóm sinn. Þegar læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraflutningamenn, lögregluþjón- ar eða aðrir koma að sjúklingi í neyð geta þeir með aðstoð MedicAlert fengið lífsnauðsynlegar upplýsingar á svipstundu en þær geta gert út- slagið um gang mála í meðferð við- komandi sjúklings. Auk sjúkdóma er skrá yfir ofnæmi fyrir ákveðnum lyfjum eða matvælum og lyfja- og hjálpartækjanotkun. MedicAlert eru alþjóðleg ör- yggissamtök, rekin án ágóða, sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðarstundu. Samtökin eru rekin í þágu almennings til að þjónusta þá sem eru með einhverja sjúkdóma sem þeir gætu þurft að láta vita af ef eitthvað kemur fyrir þá á almanna- færi. MedicAlert á Íslandi er sjálfs- eignarstofnun sem stofnuð var 1985 fyrir tilstilli Lionshreyfingarinnar hér á landi og er rekin undir vernd- arvæng hennar. Stofnunin starfar með leyfi MedicAlert Foundation International sem stofnuð var í Kali- forníu árið 1956. Höfuðstöðvarnar þjóna milljónum merkisbera í meira en fjörutíu löndum. Um er að ræða þríþætt kerfi: Merki úr málmi, plastspjald með ákveðnum upplýsingum auk tölvu- skrár. Merkið er borið um háls eða úlnlið. Plastspjaldið, sem er í kreditkortastærð fyrir veski, er með fyllri upplýsingum. Í tölvuskrá eru síðan upplýsingar í vörslu slysa- og bráðadeildar Landspítalans. Þar er gjaldfrjáls vaktþjónusta allan sólar- hringinn fyrir neyðarnúmer Me- dicAlert. Á merkið eru skráð þrjú atriði: Símanúmer vaktstöðvar á Ís- landi, sem hringja má í alls staðar að úr heiminum án endurgjalds. Sjúkdómsgreining eða áríðandi upplýsingar um viðkomandi og persónunúmer sem veitir aðgang að upplýsingum á tölvuskrá slysa- og bráðadeildar. Neyðarlínan er í samvinnu við MedicAlert á Íslandi. Allar upplýsingar á vaktstöð eru trúnaðarmál og aðeins veittar þeim sem hefur MedicAlert-númer merk- isberans. Aðildarfélög á Íslandi eru, auk Lionshreyfingarinnar: Blæðara- félag Íslands, Gigtarfélag Íslands, Hjartaheill – landssamtök hjarta- sjúklinga, Lauf – landssamtök áhugamanna um flogaveiki, Míg- rensamtökin, SÍBS, Samtök syk- ursjúkra, Sjálfsbjörg og Félag að- standenda Alzheimers-sjúklinga á Íslandi. Lúðvík Andreasson tók við sem formaður MedicAlert á Íslandi í apríl síðastliðnum. Hann leggur áherslu á gildi merkisins hvar sem er í heiminum og það á öllum tím- um sólarhringsins. Lúðvík segir að þegar starf Lionsklúbbanna hefjist á haustin skipi hver og einn klúbb- ur sérstakan MedicAlert-fulltrúa en á landinu öllu eru yfir 80 Lions- klúbbar. Þessir fulltrúar sjá til þess að dreifa bæklingum og umsókn- areyðublöðum á hverja heilsugæslu- stöð, lyfjabúð og sjúklingamóttöku. Rekstur MedicAlert hefur verið í járnum undanfarin ár en fjöldi Lionsklúbba hefur styrkt samtökin með fjárframlögum. Árgjöld merk- isbera, sem tekin voru upp fyrir nokkrum árum, létta reksturinn en ýmsir eru undanþegnir þeim, börn að 18 ára aldri og ævifélagar sem fengu merki fyrir samþykkt um árgjöld. Auk Lionsklúbba styrkja Actavis og MP Banki MedicAlert. Lúðvík segir Actavis vera fyrsta fyrirtækið sem gert hafi samning við samtökin til þriggja ára og greiði 200 þúsund krónur á ári. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Lúðvík Andreasson, formaður MecicAlert á Íslandi. Ljósmynd Hari. Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is Fjárfestu í sjóði til efri áranna Þú greiðir ekki fjármagnstekjuskatt fyrr en við sölu eigna í sjóði 50% afsláttur af söluþóknun sjóða fram til 16. desember Hagkvæm og fagleg eignastýring Hátt vægi ríkistryggðra eigna Svava í 17 í end- urfjármögnun Tískuvöruverslanarisinn NTC, sem rekur meðal annars verslanir undir nafni Gallerí 17 og er í eigu Svövu Johansen, betur þekktrar sem Svövu í 17, hagnaðist um 21 milljón á síðasta ári. Félagið er þó enn gífurlega skuldsett. Skuldir þess nema um 1,7 milljarði og er eigið fé þess neikvætt um 484 milljónir umfram eignir. Eftir því sem fram kemur í ársreikningi NTC fyrir árið 2010 stendur félagið í viðræðum við viðskiptabanka sinn um endurfjármögnun lána auk þess sem félagið stendur í stappi við sama banka um uppgjör á framvirkum gjaldeyrissamningum. -óhþ Bankinn afskrif- ar 320 milljónir Föt og skór ehf, sem rekur meðal annars Herragarðinn og Hugo Boss-verslanir í Kringlunni og Smáralind, stendur í fjár- hagslegri endurskipulagningu þessa dagana. Samkvæmt ársreikn- ingi félagsins fyrir árið 2010 var eigið félagsins neikvætt um 488 milljónir. Samkvæmt sama ársreikningi felst endur- skipulagningin í því að bankinn afskrifar 320 milljónir af skuldum félagsins, félagið tekur tvö ný lán upp á 240 milljónir annars vegar og 120 milljónir hins vegar og fær 40 milljóna króna yfirdrátt. Ljóst er þó að taka þarf til í rekstri búðanna því rekstrartap varð bæði árin 2010 og 2009. -óhþ Hættulegir Sprota-brúsar í umferð Landsbankinn biður alla viðskipta- vini sína sem sótt hafa sér Sprota- drykkjarbrúsa að skila þeim vegna slysahættu fyrir börn. Dæmi eru um að tappi brúsans hafi losnað þegar barn drakk úr brúsanum og lét einn viðskiptavinur bankann vita af því. Eva Sigrún Óskars- dóttir, sérfræðingur á öryggissviði Neytenda- stofu, segist ekki hafa heyrt af álíka dæmum vegna drykkjarbrúsa. Ekki sé heldur að sjá að slíkt hafi að undanförnu komið upp í Evrópu. Bankinn hefur sent forráða- mönnum barna í viðskiptum bréf, beðist velvirðingar og þess óskað að viðskiptavinir fargi brúsum eða skili þeim í næsta útibú. - gag  leiðrétting Heyrnartækni Í síðasta tölublaði Frétta- tímans misritaðist nafn fyrirtækisins Heyrnartækni í kynningargreininni „Heims- ins minnstu heyrnartæki skila notendum skjótum árangri“, vantaði þar eitt n í seinni hluta nafnsins. Leið- réttist það hér með. 8 fréttir Helgin 2.-4. desember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.