Fréttatíminn - 02.12.2011, Blaðsíða 72
72 matur Helgin 2.-4. desember 2011
Fersk vanilla og rjómi
Auðvelt er að búa til eigin rjómaís og nota sem eftirrétt með jólamatnum.
Engin þörf er á að
sjóða hráefnin í potti,
heldur er þeim hrært
saman í þremur skálum
og blandað svo varlega
saman áður en allt er
sett í frysti.
Heimalagaður jólaís
Heimalagaður rjómaís með hindberjasósu er frískelgur eftirréttir á jólaborðið.
Jólasnafs Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
Þrír góðir
hátíðarsnafsar
Snafsinn er engin undantekn-
ing þegar hátíðarbúningurinn
er annars vegar. Í Danmörku
eru snafsar ómissandi
hluti af jólastemningunni í
„julefrukost“ enda eru Danirnir
miklir ákavítismeistarar. Ís-
lendingar eru ekki komnir
alveg jafn langt en þó fáum við
á markað á hverju ári nokkra
hátíðarsnafsa. Í ár er það
Brennivín Jólasnafs 2011 sem
er hátíðarútgáfa Brennivínsins
í grænu flöskunum og
einnig er komið í vínbúðirnar
Álaborgar Jólaákavíti 2011 frá
frændum vorum í Danmörku.
Snafsar eru skemmtilegir með
jólahlaðborðinu, sérstaklega
síldinni.
Brennivín
Jólasnafs 2011
40%
70 cl 4.999 kr.
Þetta er hátíðarútgáfa
hins klassíska íslenska
Brennivíns frá
Ölgerðinni. Það er
fölgult á lit og, eins
og Brennivínið, með
miklu kúmenbragði.
Það er samt mildara
með meiri sætu
en venjulegt
brennivín og
nægan hita til að
ylja kroppnum
í frosthörkum
desembermán-
aðar. Fínasti
snafs á góðu
verði.
Aalborg
Juleakvavit 2011
47%
70 cl 7.899 kr.
Þetta er þrítugasta árið sem
Álaborgar Ákavíti sendir frá
sér jólaútgáfu af þeirra vin-
sæla ákavíti. Það er litlaust,
kúmenkryddað og áfengis-
ríkt með sín 47% en samt
mjúkt og heitt
með stingandi
eftirbragði.
Flott ákavíti
sem er jafn
ómissandi
í danska
“julefru-
kostinn”
eins og
Tuborg
jólabjórinn.
Aalborg Jubi-
læums Akvavit
42%
70 cl 5.698 kr.
Þetta ákavíti frá Álaborgar
Ákavíti er reyndar ekki
árstíðarbundið
eins og hin tvö en
stendur engu að
síður vel fyrir sínu
þegar jólahlað-
borðið er annars
vegar. Það er
skemmtilega
kryddað með
góðri fyllingu og
fínu eftirbragði.
Flott ákavíti og
ódýrari kostur
en jólaútgáfan.
Jólaís
Hráefni:
5 eggjarauður
5 eggjahvítur
1/2 lítri rjómi
75 - 100 g flórsykur (fer
eftir því hversu sætur
ísinn á að vera)
1-2 vanillustangir
Aðferð:
1. Þeytið saman eggja-
rauður og flórsykrur
uns þykk og þétt
froða myndast. Þá
eru vanillustang-
irnar klofnar og
skafið innanúr lengj-
unum og blandað
saman við eggin og
sykurinn. Öllu hrært
saman. Þarna er
einnig hægt að bæta
við súkkulaðibitum
eða Daimkúlum svo
dæmi séu nefnd.
2. Eggjahvíturnar eru
þeyttar í skál.
3. Rjóminn er þeyttur í
skál, en gætið þess
að stífþeyta hann
ekki því þá verður
ísinn smjörkenndur.
4. Eggja- og sykur-
hrærunni er blandað
varlega saman við
rjómann. Best er að
gera það með því að
nota sleikju.
5. Að lokum er eggja-
hvítunum blandað
varlega saman við.
6. Blöndunni er hellt í
form og látin standa
í frysti þar til hún er
orðinn að ís.
Jólaís með hindberjasósu
Hindberja-
sósa
Hráefni:
4 bollar af
hindberjum
1/4 bolli sykur
1 matskeið sítrónu-
safi
Aðferð:
Setjið hindberin og
sykurinn saman í
pott og sjóðið þar
til hindberin eru
orðin að mauki
eða í um það bil
10 mínútúr. Hellið
í gegnum fína síu
til að taka fræin
frá, og blandið svo
sítrónusafa saman
við. Sósan er góð á
ís og kökur.
V
anilluís er einn
eftirlætis eftir-
réttur margra,
enda á hann
ætíð vel við eftir
góða máltíð. Hér er einföld
og góð uppskrift að vanilluís
sem nægir að gera sólarhring
áður en á að neyta hans. Ráð-
lagt er að nota ferska vanillu
því þá verður kryddbragðið
sterkara og ekki eins sætt og
ef vanilludropar eru notaðir.
Engin þörf er á að sjóða hrá-
efnin í potti, heldur er þeim
hrært saman í þremur skálum
og blandað svo varlega saman
áður en allt er sett í frysti.
JÓLAKAFFIÐ
frá Te & Kaffi
– ómissandi á aðventunni.
www.teogkaffi.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
12
98
4
Minnum á teiknisamkeppni
Skólamjólkurdagsins
fyrir 4. bekkinga
Hægt er að skila inn myndum fram að jólafríi
til Mjólkursamsölunnar, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar á www.ms.is
Mjólk er
góð!
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Gjafavörur
Ostabúðarinnar
f yr ir sælkerann