Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.12.2011, Blaðsíða 78

Fréttatíminn - 02.12.2011, Blaðsíða 78
George Miller, leikstjóri Mad Max þrennunnar, hefur hug á því að gera nýjan þríleik um þessa fornfrægu hetju óbyggða Ástralíu. Hann stefnir að því að hefja tökur á Mad Max: Fury Road með Tom Hardy (Inception) í hlutverki Max og að honum til halds og trausts verði Charlize Theron. Gangi allt að óskum vill Miller halda áfram og er með tilbúið handrit að mynd númer tvö: Mad Max: Furiosa, og langt kominn með handrit þriðju myndarinnar. Gibson stimplaði sig inn af krafti í byrjun ferils síns í hlutverki vegalög- reglunnar Mad Max sem hét Max Rockatansky áður en hann missti vitið, hætti sem laganna vörður og gerðist kviðdómari, dómari og böðull í mál- um glæpahyskis í auðnum Ástralíu. Miller gerði fyrstu myndina árið 1979 fyrir frekar lítinn pening. Hún var sígild eftir-dómsdagsmynd þar sem siðmenningin er hruninn til grunna og skríll veður uppi. Max Roc- katansky er lögregla í þessari lögleysu en þegar besti vinur hans, eiginkona og barn eru drepinn af drullusokkum missir Max vitið og fer brjálaður í svörtu leðri um þjóðvegina með afsagaða haglabyssu og sallar niður glæpahyskið. Miller og Gibson héldu áfram með sögu Max árið 1981 í Mad Max: The Road Warrior og settu endapunktinn árið 1985 með Mad Max: Beyond Thunderdome. 78 bíó Helgin 2.-4. desember 2011 B litz er þriðja spennusaga rithöfundar-ins Kens Bruen sem er kvikmynduð. Í fyrra léku Colin Farrell, Keira Knig- htley og hörkutólið Ray Winstone í London Boulevard sem var gerð eftir bók Bruens og nú er röðin komið að Statham í Blitz. Hann er hér í hlutverki Tom Brant, hörkunagla í lög- reglunni í suðausturhluta London þar sem ýmislegt gengur á. Brant þessi tekur glæpa- lýðinn engum vettlingatökum og á það til að missa stjórn á skapi sínu og berja grunaða í klessu ef svo ber undir. Þetta er ekkert sérlega vel liðið hjá yfirmönnum hans en hins vegar verður ekki af Brant tekið að hann nær árangri í starfi. Brant hefur í mörg horn að líta og sinnir ýmsu öðru en að berja á glæpamönnum. Hann er til dæmis lögreglukonunni Elizabet Falls innan handar en hún stefnir á stöðu- hækkun þrátt fyrir að vera nýkomin úr með- ferð en hún ánetjaðist fíkniefnum á meðan hún starfaði undir fölsku flaggi í undirheim- um. Ekki er nóg með að Brant þurfi að hafa áhyggjur af þessum eina vinnufélaga sínum því skyndilega skýtur raðmorðingi upp koll- inum í London sem hefur þann leiða ósið að myrða einungis lögreglumenn. Morðinginn kallar sig Blitz og kemur skilaboðum sínum áleiðis í gegnum blaðamanninn Harold Dunlop, sem David Morrisey, (Basic Instinct 2, State of Play sjónvarpsþættirnir) leikur. Morðinginn upplýsir Dunlop meðal annars um að hann ætli sér að stúta átta lögreglu- mönnum áður en yfir lýkur. Þegar lögreglan fær traustar vísbendingar um hver morðinginn sé er hörkutólinu Brant falið að stjórna rannsókninni og hafa hendur í hári hans. Enda nógu ákveðinn og óvandur að meðölum til þess að geta upprætt ófétið. Rannsóknin reynist þó andskotanum erfiðari þar sem Blitz er háll sem áll og á einkar auð- velt með að snúa taflinu sér í hag þannig að Brant endar í bráðri lífshættu. Jason Statham stimplaði sig kröftuglega inn í Guy Richie-myndunum Lock, Stock and Two Smoking Barrels og Snatch á árunum 1998 og 2000. Síðan þá hefur hann haldið sig meira í Bandaríkjunum og tryggt sig í sessi sem harðhaus númer eitt með myndaflokk- unum Transporter, Krank og nú síðast The Expendables. Tökur standa nú yfir á The Expendables 2 en í fyrri myndinni hélt Stat- ham sínu í félagsskap forvera sinna í meist- araflokki; Sylvester Stallone, Bruce Willis, Arnold Schwarzenegger og Dolph Lundgren. Síðasta mynd Stathams, Killer Elite, gerðist að hluta til í Bretlandi en nú tekur hann slag- inn í sinni gömlu heimaborg, London, og ætti því varla að misstíga sig frekar en fyrr daginn en það má hann eiga að þótt myndirnar hans geti reynst æði misgóðar þá klikkar Statham sjálfur ekki og stendur alltaf fyrir sínu. Stat- ham verður svo aftur á alþjóðlegum slóðum í Safe, sinni fyrstu mynd á næsta ári, en þar leikur hann fyrrum ofurnjósnara sem tekur að sér tvíþætt verkefni: Að bjarga kínverskri stúlku sem kínverska mafían hefur rænt og snúa síðan á rússnesku mafíuna, spillta emb- ættismenn í New York og kínversku mafíuna. Þetta mun hann sjálfsagt klára án þess að blása úr nös.  Blitz löggumorðingi í london Breski leikarinn Jason Statham hefur á undanförnum árum fest sig rækilega í sessi sem grjótharðasti gaurinn í spennu- og hasarmyndum sem keyra fyrst og fremst á hraða, ofbeldi og ísköldum töffaraskap. Og það verður ekki af manninum tekið að svalur er hann. Hann gekk vasklega fram í bíó ásamt Robert De Niro gegn Clive Owen í mynd Sigurjóns Sighvatssonar, Killer Elite, og nú er hann mættur aftur til leiks og að þessu sinni á heima- velli þar sem hann eltist við geðbilaðan raðmorðingja í fæðingarborg sinni, London. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó Statham á heimavelli Jason Statham er kominn heim og eltist við óðan raðmorðingja sem drepur aðeins lögreglu- menn í Blitz.  Frumsýndar Þrívíddarteiknimyndin Arthur Cristmas segir frá Jólasveininum, eiginkonu hans, sonum þeirra tveimur, Steve og Arthur og Jólasveina afa. Jólasveininn er að ljúka sinni sjötugustu hringferð um heiminn með gjafir til góðra barna en því hefur hann sinnt af stakri prýði í sjötíu ár. Eldri sonurinn, Steve, getur ekki beðið eftir því að fá að taka við af föður sínum og verða Jólasveinninn. Hann stjórnar gjafadreif- ingunni á meðan yngir bróðirinn, Arthur, tekur á móti pósti frá börnum úr öllum heimshornum. Álfunum í þjónustu Jólasveinsins og Steve finnst Arthur þvælast fyrir frekar en hitt en örlögin haga því þó þannig til að það kemur óvænt í hlut Arthurs að bjarga jólunum og þá sýnir hann hvað í honum býr. Hugh Laurie, Joan Cusack, Laura Linney, Michael Palin, Jim Broadbent, Bill Nighy, Imelda Staunton, James McAvoy og Eva Longoria tala fyrir helstu persónur þessarar ævintýralegu jólamyndar þar sem skyggnst er bak við tjöldin og upplýst hvernig Jólasveinninn nýtir sér hátækni til þess að koma öllum gjöfum á réttan stað í tæka tíð. Fjölskyldudrama Jólasveinsins Hjem til jul Bíó Paradís frumsýnir þessa þvottekta jólamynd sem er ljúfsár og fyndin en hún gerist í norskum smábæ. Þar fer verka- maðurinn Paul til læknis og rekur raunasögu sína en læknirinn hefur sjálfur áhyggjur af hjónabandi sínu og fjármálum. Annars staðar er eldri maður að útbúa trúarathöfn, miðaldra hjón í leit að ástríðunni, strákur sem er yfirgengilega ástfanginn af nágranna sínum sem er múslimatrúar og ungt par sem lendir í því að bíll þeirra bilar þegar konan er í miðjum hríðum.  Frumsýndar A Good Old Fashion Orgy Gamanmynd sem fjallar um partí-ljónið Eric sem um árabil hefur haldið hress partí í húsi föður síns. Þegar karlinn ákveður að selja húsið renna tvær grímur á samkvæmisljónin þar sem allt stefnir í að allt partístand fái við söluna sviplegan endi. Eric ákveður að halda eitt partí enn og ætlar heldur betur að toppa allt sem hann hefur áður gert með því að slá upp allsherjar kynsvalli. Vinirnir taka hug- mynd hans frekar fálega til að byrja með en sannfæringarkraftur Erics er mikill og allt stefnir í eitt fjörugasta kynsvall allra tíma. Það eina sem getur komið í veg fyrir það er að fasteignasalinn nái að selja húsið áður en ringulreiðin hefst. Rann- sóknin reynist þó and- skotanum erfiðari þar sem Blitz er háll sem áll. Aðrir miðlar: IImdb: 6.2, Rotten Tomatoes: 46%, Metacritic: - Yngri sonur Jólasveinsins er ekki allur þar sem hann er séður og þegar á reynir getur hann bjargað jólunum.  klassískur krimmi taka þrjú Scarface nýrrar aldar Sá mæti leikstjóri Howard Hawks leikstýrði árið 1932 glæpamyndinni Scarface sem fjallaði um uppgang og fall ítalsks rudda í undirheimum Chicago á bannárunum með skýrum vísunum í feril hins alræmda Al Capone. Brian DePalma tók blóðugan og magnaðan snúning á sömu sögu árið 1983 í Scarface með Al Pacino í brjáluðum ham í hlutverki kúbverska flóttamannsins Tony Montana sem sölsar undir sig fíkniefnamarkaðinn á Miami með ofbeldi og morðum. Með Pacino í fremstu víglínu voru Michelle Pfeiffer og F. Murray Abrahams en sjálfur Oliver Stone skrifaði handritið sem var allt löðrandi í blótsyrðum og ruddaskap. Framleiðendur DePalma-myndar- innar virðast telja þessa klassísku krimmasögu eiga erindi við vora tíma og hafa ráðið handritshöfundinn David Ayer (Training Day, The Fast and the Furious) til þess að laga söguna að nýjum tímum og dubba Scarface upp fyrir 21. öldina. Al Pacino var stórkost- legur í hlut- verki sínu í Scarface 1983.  george miller kominn á Fornar slóðir Mad Max til í aðra þrennu Mel Gibson var grjótharður í Mad Max en er sjálfsagt orðinn full gamall og jafnvel ærulaus til þess að endurtaka rulluna þannig að Tom Hardy, sem er á hraðri uppleið, tekur við haglabyss- unni. Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.