Fréttatíminn - 02.12.2011, Qupperneq 10
10 fréttir Helgin 2.-4. desember 2011
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Bókaforlög hagnast
Kópavogur fær
tvo milljarða
að láni
Kópavogsbær þarf að taka
tæplega tvo milljarða að
láni frá Lánasjóði íslenskra
sveitafélaga. Samþykkt
var í bæjarráði að fela Guðrúnu Pálsdóttur
bæjarstjóra fullt umboð til að skrifa undir
lánið sem er í tveimur hlutum. Annars
vegar er um að ræða lán upp á 1260
milljónir en það fer í að endurfjármagna
gamalt lán frá Lánasjóðnum sem er á
gjalddaga nú í desember.
Hitt lánið er upp á fimm
milljónir evra og er
það tekið til að fjár-
magna framkvæmdir
við leikskóla, skóla
og hjúkrunarheimili.
Tekjur sveitar-
félagsins eru
lagðar fram til
tryggingar lán-
unum. -óhþ
S jálfstæðisflokkurinn tapaði 110 millj-ónum á síðasta ári.
Samfylkingin tapaði 6,8
milljónum á síðasta ári
samkvæmt útdrætti úr sam-
stæðureikningi flokkana sem
birtur er á vef Ríkisendur-
skoðunar. Vinstri hreyfingin
- grænt framboð, hinn ríkis-
stjórnarflokkurinn, skilaði
hins vegar hagnaði upp á 14,3
milljónir. Búið er að birta
þrjá af fjórum ársreikningum
fjögurra stærstu flokkanna
á Alþingi á vef Ríkisendur-
skoðunar jafnvel þótt lög geri
ráð fyrir að stjórnmálasamtök
skili inn ársreikningum til
embættisins fyrir 1. október
ár hvert. Eins og Fréttatím-
inn greindi frá í síðustu viku
hafa sjálfstæðismenn skilað
inn ársreikningi til Ríkisend-
urskoðunar en Framsóknar-
flokkurinn hefur ekki enn
skilað inn sínum reikningi.
Sjálfstæðisflokkurinn tap-
aði 110 milljónum.Greiðslur
frá ríkinu lækkuðu um sextíu
milljónir á milli ára. Staða
flokksins var sterk í árslok
2009: Eigið fé var 465 millj-
ónir og skuldir um 216 millj-
Fimm af sex stærstu bókaforlögum landsins skiluðu hagn-
aði á árinu 2010 samkvæmt ársreikningum þeirra. Þar
fór fremst í flokki Forlagið, með Arnald Indriðason
innan sinna raða, sem skilaði 112 milljóna króna
hagnaði. Uppheimar, sem gefa meðal annars út
Ævar Örn Jósepsson, Gyrði Elíasson og krimma-
höfundana Jo Nesbö og Camillu Låckberg, skiluðu
9,4 milljónum í hagnað og Sögur útgáfa, hvers
stjarna er Óttar M. Norðfjörð, skilaði 7,9 milljónum
í hagnað. Bjartur/Veröld, með Yrsu Sigurðardóttur
innanborðs, skilaði þriggja milljóna króna hagnaði
og BF-útgáfa, með Gillz og Tobbu í farar-
broddi, skilaði 676 þúsund króna hagnaði.
Bókaútgáfan Salka tapaði hins vegar
12,3 milljónum á síðasta ári. -óhþ
FaSteignir glæSihýSi til leigu
Bakkabræður leigja út lúxusvillu við Tjörnina
Tjarnargata 35, sem áður hýsti hluta
af skrifstofustarfsemi fjárfestinga-
félagsins Exista, hefur verið auglýst
til leigu. Húsið, sem stendur við
Tjörnina og er eitt það allra glæsileg-
asta í miðbænum, er 396 fermetrar
að stærð og var byggt árið 1913. Það
hefur nánast verið endurnýjað frá
grunni með vönduðum innréttingum
og tækjum. Húsið er í eigu félags-
ins Tjarnargötu 35 ehf. Það félag er
í eigu Korks ehf sem er svo aftur í
eigu GT One Trust og GT Two Trust.
Eftir því sem næst verður komist
er GT One Trust, hvers varnarþing
er í Bretlandi, í eigu Lýðs Guð-
mundssonar en GT Two Trust í eigu
bróður hans Ágústs. Þeir bræður
voru stærstu hluthafar Existu áður
en kröfuhafar tóku félagið yfir árið
2009.
Ekki ætti að væsa um væntanlega
leigjendur á Tjarnargötunni en sam-
kvæmt upplýsingum Fréttatímans er
vínkjallari af flottustu gerð á neðstu
hæð og þykir húsið henta sérstak-
lega vel undir hvers kyns móttökur.
Bakkabræðurnir Ágúst og Lýður ætla að
leigja út Tjarnargötu 35. Ljósmyndir/Hari
Stjórnmál Fjármál StjórnmálaFlokka
Sjálfstæðisflokkur
tapar 110 milljónum
ónir og jukust um 139 milljónir
á milli ára.
Tap Samfylkingarinnar á
síðasta ári er þriðja árið af
síðustu fjórum sem flokkurinn
er rekinn með tapi. Árið 2009
var 27,4 milljóna króna tap á
rekstri Samfylkingarinnar,
58,5 milljóna króna hagnaður
varð árið 2008 en tapið árið
2007 nam 89,7 milljónir. Eigið
fé var í árslok 2010 23,6 millj-
ónir en skuldir námu um 110
milljónum.
Staða Vinstri grænna er
eilítið verri. Flokkurinn hefur
verið rekinn með hagnaði þrjú
af síðustu fjórum árum. Árið
2009 var 38,6 milljóna króna
tap. Skuldir voru 103 milljónir
í árslok 2010 og eigið fé hans
var neikvætt um 39 milljónir.
Staða Framsóknar er verst.
Flokkurinn hefur ekki skilað
inn ársreikningi fyrir árið
2010 en tapaði samtals 158,9
milljónum á þremur árum þar
á undan. Skuldirnar námu í
árslok 2009 um 252 milljón-
um og eigið fé var neikvætt
um 118 milljónir.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin skiluðu tapi á síðasta ári, Vinstri hreyfingin - grænt
framboð skilaði hagnaði en er með neikvætt eigið fé líkt og Framsóknarflokkurinn.
Jói Fel með 12
millur í hagnað
Bakaranum landsþekkta Jóhannesi
Felixsyni,
betur
þekkt-
ur
sem Jói
Fel, gekk allt í
haginn á árinu
2010. Félag hans,
Hjá Jóa Fel – brauð
og kökulist ehf,
skilaði rétt rúmlega
tólf milljóna króna
hagnaði á árinu
og stendur sterkt
í árslok 2010.
Eigið fé þess er 48
milljónir og gat
sjónvarpsstjarn-
an greitt sér
þriggja milljóna
króna arð á
árinu. -óhþ
Guðrún Páldóttir
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu Intiga til prufu í vikutíma
Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun
heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður
skýrara en þú hefur áður upplifað.
Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum!
*Í flokki bak við eyra heyrnartækja
sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Heyrnartækni kynnir ...
Minnstu heyrnartæki í heimi*