Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.12.2011, Síða 20

Fréttatíminn - 02.12.2011, Síða 20
„Full ástæða er til þess að skoða hvort munur er á bið kynjanna eft- ir aðgerðum á Landspítalanum og ég hvet til þess,“ segir Sigurður Guðmundsson, forseti fræðasviðs heilbrigðisvísinda við Háskóla Ís- lands og fyrrum landlæknir. „Það er í sjálfu sér ekki mikið vanda- mál að gera það út frá gögnum landlæknisembættisins.“ Sigurður rýndi í biðlista og skrifaði grein í Læknablaðið fyrir níu árum ásamt þeim Matthíasi Halldórssyni aðstoðarlandlækni og Steinunni Þórðardóttur hjá embættinu. Þar kom fram að í mörgum tilfellum væri verulegur og marktækur munur á lengd bið- tíma eftir aldri og kyni sjúklinga. Konur biðu lengur eftir því að komast á Reykjalund. Þær biðu einnig lengur eftir þjónustu háls- , nef- og eyrnalækna svo dæmi séu nefnd. Karlar biðu hins vegar lengur eftir aðgerðum á almennri skurðdeild. „Þetta var eina deildin þar sem karlar biðu marktækt lengur en kon- ur,“ segir í greininni. Einnig sást munur eftir aldri. Sigurður segir hættu á því að hópum sé mis- munað eftir aldri, kyni og jafnvel kynþætti þegar heil- brigðisþjónustan á í vand- ræðum vegna niðurskurðar, manneklu eða plássleysis. „Við höfum einnig meiri tilhneigingu til að skera niður þar sem vanda- málin eru langvarandi og til að vernda bráða- þjónustuna.“ - gag ar, en 99 slíkar voru gerðar þar í fyrra. Lítill samdráttur hefur orðið á gallsteinaaðgerðum eftir samein- ingu spítalanna því þeim hefur fjölg- að á Landspítalanum og eru aðeins átta færri en til samans á spítulunum tveimur miðað við fyrstu níu mán- uðina. 395 hafa gengist undir slíka. Hins vegar hefur aðgerðum á augasteinum fækkað um ríflega 660 frá því í fyrra. Aðgerðunum hefur því fækkað um 57 prósent milli ára. Litlu færri voru gerðar á St. Jósefs- spítala einum allt síðasta ár en sam- drátturinn mælist nú. Biðin hefur einnig lengst úr þrjátíu vikum í 51, eða tæpt ár. Geir Gunnlaugsson, landlæknir, segir að embættið bíði eftir nýjum tölum til að sjá hvort Landspítalinn hafi náð betri tökum á þjónustunni sem St. Jósefsspítali bauð áður upp á. Hann gefur árið og bíður næstu talna en segir vel fylgst með þróun- inni. „Það er verið að endurskipuleggja starfsemina og við eigum eftir að sjá hvernig þetta kemur til með að jafn- ast út. Það er ekki nóg að líta einu sinni á svona tölur heldur þarf að skoða þetta til lengri tíma. Nýjustu tölurnar taka til september, ágúst og júlí. Þarna eru sumarleyfismán- uðir og fleira. Það er þó ástæða til að fylgjast með þessu,“ segir hann. Ekki er þó ljóst hvort biðin styttist það sem eftir er af árinu. Bið eftir til dæmis legnámsaðgerðum er tvöfalt lengri en í júní eða 12 vikur. Leg- námsaðgerðum hefur þó ekki fækk- að ógurlega. Leg hefur verið numið brott úr 201 konu á Landspítalanum fyrstu níu mánuði ársins, miðað við 227 konur sem gengust undir brottnám legs fyrstu níu mánuðina í fyrra. Aðgerðunum hefur fækkað um tæp 12 prósent. Fé fylgdi ekki verkum Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, segir að vitað hafi verið að það tæki sinn tíma að sameina spítalana; sortera, hreyfa á milli og sameina biðlista. „Alltaf hikstar eitthvað við rót í kerfinu,“ segir hann. „Ég verð að segja að eins og búið er að draga saman í heilbrigðiskerfinu er undra- vert að biðlistar séu ekki lengri. “ Hann segir rúmum hafa fjölgað á kvennadeildinni á árinu. Og hluti deildarinnar hafi verið opnaður um helgar. „Mér finnst hafa tekist vel til að mörgu leyti. Sameiningin hefur gengið vel og betur en við þorðum að vona, en það er spurning um afleiðingar og hvort fé hafi fylgt verkum? Ég held að það sé algerlega augljóst að svo hafi ekki verið,“ segir Björn. „Fyrir árið 2008, frekar en 2009, var sjúkrasvið St. Jósefsspítala rekið fyrir rúman milljarð. Þegar við tókum við verkinu var okkur úthlutað 480 milljónum fyrir ellefu mánuði. Stjórnvöld gerðu góð kaup þegar við tókum þetta að okkur sem einhvers konar hagræðingu. Við fengum of lítið til þess að geta gert allt það sem við gerðum áður. En það var ekki meira til skiptanna. Þetta er sú staðreynd sem við vinnum við í heilbrigðiskerfinu í dag.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Bíða konur lengur en karlar? Fyrrum landlæknir vill að biðlistarnir verði kannaðir Sigurður Guðmunds- son, forseti fræðasviðs heilbrigðis­ vísinda HÍ. Landspítalinn styttir bið eftir brjóstaminnkun úr fjórum árum í tvö. Konur bíða í tvö ár eftir minni brjóstum Hvergi er bið eftir aðgerðum á spítölum landsins eins löng og biðin eftir brjóstaminnkun. 61 kona beið í júní eftir slíkri aðgerð á Landspítalanum og þarf hver að bíða í 104 vikur að jafnaði, eða tvö ár, eftir aðgerð. Biðlistinn hefur staðið í stað frá júní. Um þriðjungi færri eru þó á biðlistanum nú en á sama tíma fyrir ári og biðin hefur heldur betur styst, því í fyrra var biðin að meðaltali 217 vikur eða fjögur ár. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að af mörgum ástæðum hafi brjóstaminnkunar­ aðgerðir ekki verið framarlega á forgangslistum. „Þessi langa bið hefur verið í hátt í tíu ár.“ Hann segir styttingu biðlistans ekki vegna þess hve margar hafi komist í aðgerð. „Við höfum tekið til á biðlistanum og séð hverjar eru í raun tilbúnar í aðgerð,“ segir hann og vísar í að ekki séu allar tilbúnar í aðgerð, hafi til dæmis ekki grennst eins og þær þurfi. Búið er að gera 49 brjósta­ minnkunaraðgerðir á heil­ brigðisstofnunum landsins; alls 27 á Landspítalanum og 17 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands og fimm á Akureyri. - gag Aðgerðum á Landspítala hefur fækkað um hundruð. Mynd/Inger Bókaútgáfan Opna - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - sími 578 9080 - www.opna.is Stórfenglegar minningamyndir Með þjóðinni á Þingvöllum Þingvellir – Þjóðgarður og heimsminjar er alhliða ferðahandbók. Hér er fjallað um sögu staðarins, þinghald og búskap, mótun landsins og náttúrufar. Áhersla er lögð á að opna þjóðgarðinn fyrir gönguglöðum ferðalöngum með vönduðum leiðarlýsingum, auk þess sem sérstakt gönguleiðakort fylgir bókinni. Sigrúnu Helgadóttur er einkar lagið að lýsa íslenskum náttúru- perlum og opna fyrir löndum sínum. Virðing hennar fyrir landinu og gæðum þess litar allt sem hún skrifar. Sigrún fékk Fræðiritaverðlaun Hagþenkis 2009 fyrir bók sína um Jökulsárgljúfur, sem jafnframt var sú fyrsta í ritröðinni Friðlýst svæði á Íslandi. Hannes er einstakur sögumaður, þekktur fyrir orðauðgi og stílfimi. Minningamyndirnar sem hann bregður upp fyrir lesendur sína eru skýrar, trúverðugar og fallegar – helga sér bólstað í minni þess sem les. Skáldið Hannes Pétursson tekur sér stöðu á Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók og skyggnist yfir svið bernsku sinnar norður í Skagafirði, rifjar upp mannlífið á Króknum, sumrin frammi í sveit, vegagerð á stríðs- árunum og dregur upp minnisstæðar myndir af samferðamönnum í listilega smíðuðum frásögnum. Hér er lýst miklum breytingartímum sem mótuðu ungan Skagfirðing en umturnuðu einnig landinu öllu, heiminum öllum. 20 fréttaskýring Helgin 2.­4. desember 2011
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.