Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.12.2011, Síða 32

Fréttatíminn - 02.12.2011, Síða 32
R udi Gutendorf, 85 ára gamall þýskur þjálfari sem lagði úlpuna á hilluna fyrir átta árum, er að öllum líkind- um sá þjálfari í heiminum sem hefur lagt flestar mílur að baki á þjálfaraferlinum. Á þeim ferli, sem spannaði 48 ár, þjálfaði Gutendorf 39 lands- og félagslið í 29 löndum og flutti sig 37 sinnum á milli landa. Síðasta starf hans var sem landsliðsþjálfari Samoa-eyja árið 2003 en eyjaskeggjar þar komust í fréttirnar í síðustu viku fyrir að vinna sinn fyrsta sigur frá upp- hafi, gegn Tonga, 2-1. Það kemur líklega fáum á óvart að Gutendorf þjálfaði einnig Tonga árið 1981. Gutendorf átti heldur óspenn- andi feril sem leikmaður með TuS Neuendorf. Hann lagði skóna á hilluna árið 1953 og hóf að mennta sig sem þjálfari undir handleiðslu Sepp Herberger, sem var þá landsliðsþjálfari Vestur-Þýska- lands. Hann fékk þjálfaragráðuna árið 1954 og ári seinna hófst ótrúlegur þjálfaraferil Gutendorfs, sem tók hann til 29 landa og sex heimsálfa. Fyrstu tvö þjálfaraverkefni Gutendorfs voru í Sviss, fyrst með Blue Stars Zürich í eitt ár og þá tóku sex ár með FC Luzern við. Árið 1961 skellti Gutendorf sér til Túnis og stýrði þar US Monastir. Fyrsta landsliðsþjálfarastarf hans, en þau áttu eftir að verða nokkur, kom á borð hans árið 1968 þegar hann tók við Bermúda með milli- lendingum frá Túnis í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Eftir stutt stopp á Bermúda tóku við þrjú ár hjá Gutendorf í heimalandinu áður en hann lagði undir sig Suður-Am- eríku í fjögur ár. Þar stýrði hann félagsliði í Perú og landsliðum Chile, Bólivíu og Venesúela. Eftir þrjú ár í Þýskalandi og á Spáni hélt hann til Kyrrahafsins þar sem hann tók að sér að þjálfa landslið Trinidad og Tóbagó, Gre- nada og Antigua og Barbuda, öll á sama árinu sem var 1976. Honum tókst reyndar líka að skottast til Afríku á því sama ári til að stýra landsliði Botswana. Eftir ár heima með Stuttgart var komið því að Gutendorf legði undir sig nýja heimsálfu, Eyja- álfu í það sinn. Hann tók við liði Ástrala árið 1979 og stýrði þeim til ársins 1981. Og á því ári var Gutendorf algerlega ofvirkur og hreinsaði upp þjálfarastöðurnar í Eyjahafinu og nærliggjandi álfum: Hann stýrði Nýju Kaledóníu, Fiji, Nepal, Tonga og Tansaníu – sex lið í þremur heimsálfum á einu ári verður að teljast tilkomumikið. Eftir álag ársins 1981 fór Gu- tendorf aftur heim, stýrði Herthu hluta úr ári 1984 og pakkaði þá enn í ferðatöskurnar – að þessu sinni tók við ferðalag í lengri kantinum. Fyrsta stopp var Sao Tomé og Principe. Eftir nokkra mánuði þar fór hann til Japan og stýrði Yomiuri SC til ársins 1985. Þá stökk okkar maður til Ghana þar sem hann var í ár áður en tók við þremur landsliðum á þremur árum; Nepal og Fiji, sem hann hafði stjórnað áður og Kína árið 1988. Sama ár tók Gutendorf við U-23 ára landsliði Írans en dugði ekki út árið. Þaðan fór hann til Kína, Simbabve, Mauritius og Rúanda áður en hann endaði ferilinn hjá áðurnefndu stórveldi í knattspyrnuheiminum, Samoa- eyjum. Gutendorf verður ekki minnst vegna árangursins sem hann náði en enginn var duglegri að ferðast til að starfa við þjálfun fótboltaliða. oskar@frettatiminn.is Löndin sem Rudi Gutendorf hefur þjálfað í: Evrópa Sviss, Þýskaland, Spánn Norður-Ameríka Banda- ríkin, Trinidad og Tobago, Grenada, Antigua og Barbúda, Bermúda Suður-Ameríka Chile, Perú, Bólivía, Venesúela Afríka Botswana, Tansanía, Sao Tomé og Principe, Ghana, Simbabve, Rúanda, Mauritius, Túnis Eyjaálfa Ástralía, Fiji, Tonga, Nýja Kaledónía, Samoa Asía Nepal, Japan, Kína, Íran. Þjálfaði í 29 löndum á 48 árum Þýski knattspyrnuþjálfarinn Rudi Gutendorf hefur sennilega rakað inn fleiri vildarpunktum á flugferðum en flestir aðrir knattspyrnuþjálfarar. Á 48 ára þjálfaraferli flutti hann sig 37 sinnum á milli landa og þjálfaði í öllum heimsálfum nema Suðurskautslandinu. Geutendorf sést hér á æfingu með leikmönnum Rúanda árið 1999. Nordic Photos/Getty Images Rudi Gutendorf var mikill karakter. Nordic Photos/Getty Images Fallegt og fræðandi! Með myndum og nöfnum á yfir 200 ávaxta-, græmetis- og kryddtegundum, baunum, hnetum og berjum – bæði vel þekktum og framandi. Skemmtilegt að skoða fyrir unga sem aldna. Eldhúsdagatalið 2012 Pantanir og nánari upplýsingar á www.jola.is Veggskraut fyrir alla sem elska falleg eldhús! 32 fótbolti Helgin 2.-4. desember 2011
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.