Fréttatíminn - 02.12.2011, Qupperneq 38
Hann getur
dregið upp
mynd með
einni pensil-
stroku og
sumar setn-
ingar hans
sitja lengi eftir
í huganum.
É g hef lengi vitað að ýmis djásn úr penna Braga væru að finna hingað og þangað á gulnandi
blöðum og í tímaritum,“ segir Hrafn.
„Bragi er nefnilega ekki bara einhver
besti sögumaður sem ég hef kynnst,
hann er líka stílsnillingur, en það
fer hreint ekki alltaf saman,“ segir
Hrafn og bætir við að sumar frásagnir
Braga, mannlýsingar og minningar-
greinar eigi heima í úrvalsdeild ís-
lenskra bókmennta.
„Mér þótti tímabært og verðugt
verkefni að safna saman skrifum
frænda míns og gefa út á bók ásamt
DVD-diski þar sem Bragi sjálfur er lif-
andi kominn með sín dásamlegu inn-
slög í Kiljunni.“
Bragi hefur verið með í Kiljunni
frá upphafi þannig að af nógu var að
taka þegar ráðist var í að velja efni á
DVD-diskinn en þar talar Bragi meðal
annars um Elías Mar, Ástu Sigurðar-
dóttur, Harald Hamar, Jökul Jakobs-
son og Marilyn Monroe.
Menningarverðmæti í kolli Braga
Egill Helgason, sem segja má að hafi
kynnt Braga fyrir alþjóð, er á sama
máli og Hrafn en í tölu sem Egill hélt
í útgáfuhófi bókarinnar sagði hann
það flokkast undir varðveislu menn-
ingarverðmæta að halda sögum Braga
til haga. Egill lét þess einnig getið að
þegar Bragi birtist fyrst í Kiljunni hafi
ýmsir menningarsnobbarar fitjað upp
á trýnið en Bragi hafi hins vegar um-
svifalaust slegið í gegn.
„Bragi gaf mér algjörlega frjálsar
hendur, enda var honum síst í mun að
troða sér í bók,“ segir Hrafn. „Hann
benti mér á eitt og annað, enda hefur
hann skrifað margt á löngum ferli.
Bragi varð kornungur blaðamaður á
Vikunni 1959 og skrifaði þá frábærar
nærmyndir af þekktum Íslendingum.
Sum af þeim nöfnum eru nú gleymsku
orpin, en allt var þetta fólk sem setti
svip á samtíðina og mannlíf á Ís-
landi. Þetta eru ákaflega fróðlegir
og skemmtilegir þættir og hreint
ótrúlega vel skrifaðir. Svo er í bókinni
óborganleg úttekt sem Bragi skrif-
aði á sínum tíma um Halldór Kiljan
Laxness og lýsing hans á mannlífinu
við Laugaveg 11, sem var frægasta
kaffihús Reykjavíkur upp úr miðri
síðustu öld. Sá kafli er heilt perlusafn,
þar er sagt frá glæponum og skáldum
og hommeríi og allskyns kúnstugum
karakterum.“
Fremst í bókinni er viðtal Árna
Þórarinssonar við Braga sem birtist
í Morgunblaðinu árið 2006 en síðan
tekur Bragi yfir sviðið með gömlum
nærmyndum sínum af þekktum Íslend-
ingum. Þriðji og síðasti hluti bókarinn-
ar geymir svo minningargreinar sem
Bragi hefur skrifað um samferðarfólk
sitt, vini og ástvini. „Á því sviði á hann
sér engan líkan. Hann getur dregið
upp mynd með einni pensilstroku, og
sumar setningar hans sitja lengi eftir
í huganum,“ segir Hrafn sem hefur
undanfarið plægt sig í gegnum gömul
Morgunblöð og valið minningargrein-
ar eftir frænda sinn í bókina.
„Hann skrifar hlýlega og hispurs-
laust, alltaf fundvís á hið sérstæða og
kímilega, en er fyrst og fremst ein-
hver mesti sálkönnuður sem ég hef
komist í kynni við. Ég held að ein af
skýringunum á því hvað Bragi er góð-
ur sögumaður og mikill mannþekkj-
ari sé einfaldlega sú að hann kann
að hlusta. Meirihluti fólks er alltaf að
bíða eftir því að komast að í samræð-
um. Ekki Bragi. Hann hlustar, setur
í samhengi, leggur á minnið, dregur
ályktanir og spyr af áhuga.“
Hrafn segir það hafa verið forrétt-
indi að eiga slíkan móðurbróður. „Og
geta setið við fótskör hans í fjölskyldu-
boðum á annarri öld, heimsótt hann
í búðina í áratugi og hringt í hann
þegar ég hef þurft að vita eitthvað. Í
mínum augum var Bragi ekki bara
með skemmtilegustu mönnum lands-
ins, heldur líka alfræðingur. Hann
er húmoristi án hliðstæðu og hlífir
engum á sinn yfirmáta elskulega hátt,
síst sjálfum sér.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Elskulegur húmoristi sem hlífir engum
Dýrmætur vinur
„Bragi er einn stórkostlegasti persónu-
leiki sem ég hef hitt á ævinni, æðislegur
húmoristi og þú veist aldrei á hverju þú átt
von frá honum,“ segir Halldóra Ingimars-
dóttir, dagskrárgerðarmaður í Kiljunni,
sem hefur skiljanlega verið tíður gestur í
bókabúðinni hjá Braga. „Hann kemur sífellt á
óvart og getur verið skemmtilega dónalegur
sem betur fer! Hann tekur alltaf vel á móti
okkur vinkonunum í Kiljunni og er orðinn
okkur dýrmætur og góður vinur og við
hreinlega bara elskum hann Braga! Það er
alltaf tilhlökkun að koma í búðina til hans í
upptökur og knúsa hann í kaf.“
Fastur liður eins og forsetinn
Bragi er kominn í flokk þeirra sem Jóhannes
Kristjánsson, eftirherma, stælir á sinn ein-
staka hátt en Jóhannes segist hafa brugðist
við og bætt Braga í safnið eftir að hann sló
í gegn í Kiljunni. „Já. Ég er bara með hann
fastan hjá mér og er búinn að vera með
hann í tvö ár. Bara alveg frá því að hann
varð svona heimsfrægur í Kiljunni,“ segir
Jóhannes.
„Hann er einn af okkar allra bestu karakt-
erunum og ég sá strax að þarna var einhver
matur og að eitthvað gott héngi á spýtunni
eins og sagt er. Hann er ekki venjulegur og
er bara orðinn fastur liður eins og forsetinn
og er eitt af stóru númerunum hjá mér. Hann
er mjög sérstakur maður og gott að túlka
hann. Hann er líka afskaplega skemmtilegur
og hefur mikið skemmtigildi og við getum
sagt að hann sé kominn í góðan félagsskap
með öllum þessum sérstöku persónum,“
segir Jóhannes sem hefur ekki síst sérhæft
sig í að herma eftir Ólafi Ragnari Grímssyni
og Guðna Ágústssyni.
Fornbókaverslun Braga Kristjónssonar hefur í áratugi verið fastur samkomustaður fólks úr öllum kimum samfélagsins. Þar koma saman innan
um gamlar skruddur og fágæta dýrgripi skáld, glæpamenn, ráðherrar og Bobby Fischer á meðan hann var og hét. Allir eru jafnir hjá Braga sem
býður í nefið og skemmtir gestum og viðskiptavinum með leiftrandi sagnagáfu sinni. Bragi varð svo fastur gestur á heimilum fjölda landsmanna
eftir að Egill Helgason fékk hann til þess að ljúka hverjum Kiljuþætti með stuttum innslögum úr bókabúðinni þar sem Bragi talar um bækur, fólk
og segir krassandi sögur úr menningarlífi þjóðarinnar. Vinsældir Braga urðu til þess að frændi hans, Hrafn Jökulsson, réðst í að safna saman
greinum eftir sagnameistarann sem komnar eru út í bókinni Sómamenn og fleira fólk.
Bragi á kafi í fróðleik í fornbókabúðinni sinni en álíka magn fróðleiks rúmast líklega í kolli hans og nú er brot af því besta komið út á bók. Ljósmynd Hari.
38 bækur Helgin 2.-4. desember 2011