Fréttatíminn - 02.12.2011, Qupperneq 44
rétt, þannig að síðasta daginn sat hann
uppi með íþróttatösku fulla af mat.
„Ég spurði hvort ég gæti ekki gefið
einhverjum þetta og konan sem var með
mér sagðist nú halda það. Síðasta stoppið
okkar væri á barnaspítala, þar sem ég
myndi færa börnunum pokana með hnet-
unum og sætindunum. Þegar við komum
inn áttuðum við okkur á að þetta var ekki
spítali, heldur líknardeild. Endastöð fyrir
börnin sem búið var að reyna allt annað til
að hjálpa. Þarna var í hverju einasta rúmi
barn á síðustu stoppistöð lífsins og með
þeim mæður sem fylgdu þeim síðustu
andartökin. Upplifunin var átakanlegri en
orð fá lýst. Þegar mæðurnar sáu mig taka
hneturnar og rúsínurnar upp úr íþrótta-
töskunni, skipti engum togum að þær
mynduðu hring í kringum mig og byrjuðu
að klappa, syngja og stappa. Í landinu er
til sérstakur söngur og dans sem táknar
þakklæti. Atvikið snerti mig djúpt. Jafnvel
við þessar aðstæður gátu þær tjáð þakk-
læti sitt með svona innilegum hætti.“
En þótt ótrúlegt megi virðast segir Páll
Óskar að stærsta sjokkið hafi í raun ekki
komið fyrr en hann var kominn aftur til
Evrópu. Þá fyrst hafi hann gert sér grein
fyrir þeirri hyldýpisgjá sem skilur að fólk í
ólíkum heimshlutum.
Sjokk á Heathrow
„Maður er ótrúlega svalur við aðstæð-
urnar sjálfar. Ótrúlegt hvað maður þolir að
horfa upp á mikla eymd. En eins og með
áföll almennt, þá koma afleiðingarnar ekki
strax fram. Ég get ekki gleymt ákveðnu
atviki frá flugvellinum í London. Þar var
ég nákvæmlega tólf tímum eftir að mæð-
urnar á líknardeildinni höfðu sungið fagn-
aðar- og þakklætissöngva til mín fyrir að
gefa börnunum þeirra rúsínur og hnetur.
Við vorum á leiðinni heim, en þurftum að
bíða töluvert á flugvellinum eftir vélinni
til Íslands. Ég fann mér þess vegna kaffi-
hús á efri hæðinni á Heathrow. Ég fór í
röðina og þegar komið var að mér bað ég
um kaffi latte, en sagðist vilja 10 prósent
kaffi og 90 prósent mjólk. Það yrði að vera
þannig. Spurði svo hvort salatið sem ég
var að kaupa væri ekki örugglega lífrænt
og hvort gulrótarkakan væri bökuð á
staðnum, eða væri eitthvað aðkeypt dót úr
bakaríi úti í bæ. Í miðri ræðunni leit ég á
klukkuna og allt í einu var eins og ég væri
sleginn með pönnu í andlitið. Klukkan var
nákvæmlega það sama og á líknardeild-
inni í Sierra Leone, sléttum tólf tímum
áður. Á einu augabragði rann upp fyrir
mér hvers konar óendanleg heimtufrekja
þetta væri. Hvað var ég að hugsa? Þetta
eina atvik situr í mér og mun vonandi gera
það að verkum að ég mun aldrei aftur
kvarta undan smámunum af þessum toga.
Við áttum okkur ekki á því hversu for-
dekruð við erum og höfum það gríðarlega
gott. Gjáin milli okkar og þeirra er svo
djúp að það er erfitt að koma orðum að því.
Okkur ber skylda til að minnka bilið. Það
getum við meðal annars gert með því að
gerast heimsforeldrar hjá UNICEF. Eftir
að hafa séð deyjandi börn sem ekki hafa
aðgang að hreinu vatni, óléttar konur með
HIV og fleira og fleira, veit ég að ég ætla
aldrei að kvarta yfir þeim örlögum að hafa
fæðst á Íslandi.“
Sjónvarpsútsending vegna Dags rauða
nefsins verður á Stöð 2 þann 9. desember.
Þar verður meðal annars hægt að sjá af-
rakstur ferðar Páls Óskars til Síerra Leóne.
Páll Óskar Hjálmtýsson er
einn allra vinsælasti tónlistar-
maður Íslands. Hann hefði
helst þurft að klóna sig undan-
farin ár að eigin sögn, svo
þétt hefur dagskráin verið.
Páll Óskar var að gefa út DVD
og geisladisk með tónleikum
sínum með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. Það seldist upp
á tónleikana með Páli og
Sinfóníunni á augabragði og
færri komust að en vildu. Þess
vegna var ákveðið að ráðast
í að gera DVD disk með tón-
leikunum. Fjöldi myndavéla
var notaður til að ná sérstak-
lega mörgum sjónarhornum
og Páll Óskar segist hafa notið
þess í botn að fá að vera eins
konar leikstjóri.
„Þetta er upptaka af tón-
leikum með Sinfóníunni frá
því í sumar og það var allt
gert til þess að þetta myndi
hljóma og „lúkka“ sem best.
Þetta er stærsta verkefni sem
ég hef komið nálægt hvað
mannfjölda varðar og ég er
gríðarlega stoltur af útkom-
unni. Ég vann náið með öllum
sem komu að upptökunni;
hljóðfæraleikurum, mynda-
tökumönnum, hljóðmönnum,
ljósafólki, uppsetjurum, bún-
ingahönnuðum og leikmynda-
hönnuðum. Það stóðu sig allir
eins og hetjur og ekki einn
einasti maður á staðnum steig
feilspor. Það voru allir í sínu
allra besta formi á þessum
tónleikum. Mér fannst þetta
ofboðslega skemmtilegt og
ég sé fyrir mér að ég eigi eftir
að færa mig meira á bak við
myndavélarnar í framtíðinni.
Jafnvel leikstýra bíómynd.“
Páll Óskar bregður sér í ólík
hlutverk frá degi til dags og
syngur bæði popp og klassík,
auk þess að vera einn eftir-
sóttasti plötusnúður landsins,
þekktur fyrir Eurovision-
partý, Halloween-veislur og
fleira.
„Ég myndi aldrei geta fest
mig við eitthvað eitt. Þá fengi
ég örugglega mjög fljótt leið
og myndi ekki endast lengi í
þessum bransa. Lykillinn að
því að endurnýja sig og hafa
gaman að hlutunum er að fá
að breyta til.“
Það vekur athygli mína að
allt í kringum þetta viðtal fer
beint í dagbókina hjá okkar
manni, þannig að það liggur
beint við að spyrja hann út í
agann og skipulagið í daglegu
lífi.
„Ég er búinn að koma mér
upp mjög ströngum vinnu-
reglum. Ég verð að horfa á
þetta eins og atvinnumað-
ur. Ef það eru tónleikar til
dæmis fer dagurinn allur í að
undirbúa þá. Rétt eins og hjá
atvinnumönnum í íþróttum ef
það er leikur að kvöldi. Eins
verð ég að halda ákveðnum
atriðum í lagi ef ég á að geta
komið fram svona oft og verið
í jafnvægi. Átta tíma svefn,
sæmilega hollt matarræði,
regluleg hreyfing og gott
skipulag er mér algjörlega
lífsnauðsynlegt. Svo byrja ég
alla daga á að segja upphátt:
„Já!“ Þannig býð ég daginn
velkominn og fer inn í hann
með rétt viðhorf. Ef ég myndi
byrja daginn á að segja:
„Helvítis-djöfulsins-andskot-
ans,“ væri sá tónninn settur.
Svo verð ég líka að treysta því
og trúa að það sem ég geri
sé mjög gott. Mér verða að
finnast lögin mín æðisleg ef
dæmið á að ganga upp. Lögin
og textarnir verða að vera í
lagi. Þú getur verið æðislega
hæfileikaríkur og flottur, en ef
lögin eru ekki í lagi mun ekk-
ert gerast. En ef að fólk fær
einhvern tíma leið á mér hef
ég engar áhyggjur, því það er
margt sem ég á eftir að gera
í lífinu. Mig langar til dæmis
mikið til að semja handrit og
vera á bak við myndavélarnar
í hvaða mynd sem það er. Mér
fannst til dæmis æðislegt að
hafa yfirumsjón með verk-
efninu með Sinfóníunni. Ég er
pródúsent í eðli mínu.“
Páll Óskar „Ég er búinn að koma
mér upp mjög ströngum vinnu-
reglum. Ég verð að horfa á þetta
eins og atvinnumaður.“ Ljósmynd/
Hari
Kemur til greina að leikstýra bíómynd
Fólkið sem Páll Óskar hitti var fallegt að utan
og innan.
arionbanki.is – 444 7000
Þingvallavatn
Þingvallavatn er stærsta náttúrulega stöðuvatn Íslands og er 83,7
km2 að atarmáli. Þar sem Þingvallavatn er dýpst er það 114 m og er
dýpsti punkturinn u.þ.b. 13m undir sjávarmáli.Vatnið er hið órða
dýpsta á landinu. Mest af vatninu kemur beint úr uppsprettum og
því er aðeins lítill hluti þess úr ám. Þó renna árnar Villingavatnsá,
Ölfusvatnsá og Öxará í Þingvallavatn. Úr vatninu rennur Sogið en
það er stærsta lindá á Íslandi.
Hvaða sjóður hentar þér?
Lykillinn að góðum árangri í árfestingum er að gera sér grein fyrir árfest-
ingarmarkmiðum og velja hentugar ávöxtunarleiðir.
Arion banki býður úrval sjóða, bæði verðtryggða, óverðtryggða, langa og
stutta, sjóði sem árfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og öðrum
ármálagerningum.
Leitaðu til okkar og við aðstoðum þig við að nna hvað hentar þér og
þínum markmiðum.
Hvað skiptir þig máli?
Sjóðir
44 viðtal Helgin 2.-4. desember 2011