Fréttatíminn - 02.12.2011, Blaðsíða 80
Helgin 2.-4. desember 201180 tíska
Í úganskri
naglasnyrtingu
Ekki er hægt að segja að ég sé mikil pjattirófa í
mér: Ég hef ekki farið í klippingu í tvö ár, ég læt
ekki sérfræðing lita og plokka á mér augabrún-
irnar og hef hingað til haldið mig frá naglasér-
fræðingum. Ég er vön að sjá um þetta sjálf. En
eitthvað dró mig þó á snyrtistofu í höfuðborg
Úganda á dögunum og þar fékk ég mína fyrstu
naglasnyrtingu, bæði á höndum og fótum.
Snyrtingin kostaði mig tæpar 200
íslenskar krónur og var þetta hin
mesta dekurmeðferð. Innfæddur
maður sá um mig og vann hann
vinnuna sína vel. Ég hef greini-
lega vanmetið þessa snyrtingu.
Hann byrjaði að að nudda á mér
fæturna og var hæfni hans í þeim efnum
upp á tíu. Svo kremaði hann lappirnar og
henti mér við svo búið í notalegt fótabað.
Meðan ég naut mín í fótabaðinu fylgdist ég
með rúmlega tuttugu kvenmönnum á öllum
aldri gera sig til fyrir brúðkaup. Sú yngsta var
ekki eldri en átta ára, stífmáluð í fallegum kjól,
líkt og restin af brúðarmeyjunum. Mikil gleði og
hamingja ríkti á þessari stofu og var gaman að
fá að taka þátt í þessum undirbúningi.
Klukkutíma síðar gekk ég ánægð út af stofunni
með neglurnar rauðlakkaðar á fingrum og tám.
Svo hamingjusöm var ég með nýju neglurnar að
hinn innfæddi snyrtifræðingur hlaut ríkulegt
þjórfé að launum áður en ég hélt mína leið.
Kannski höfða allar þessar dekurmeðferðir til
mín þegar allt kemur til alls.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Er þessi gallabuxna týpa
Gróa Sigurðardóttir er 21 árs
og stundar undirbúningsnám í
almennri hönnun í Tækniskólanum
fyrir frekara hönnunarnám erlendis.
Með skólanum vinnur hún á Grill-
markaðinum.
„Ég myndi segja að stíllinn minn
væri venjulegur en samt rokkara-
legur og töff. Ég kaupi mest fötin mín
erlendis og eru uppáhaldsbúðirnar
mínar Urban Outfitters, Topshop og
River Island. Hérna heima versla ég
ekki mikið en er Kultur og Sautján
eru mikið í uppáhaldi. Innblástur tísk-
unnar fæ ég allstaðar frá og skoða
ég mikið tískublogg og tískublöð eins
og Teen Vogue, Gamour og Elle. Mér
finnst líka mjög gaman að fylgjast
með fatastíl stjarnanna eins og
Siennu Miller sem er alltaf í flottum
fötum og Olsen systrunum sem eru
alltaf í stórum flottum skyrtum eða
peysum við gallabuxur. Ég er einmitt
þessi gallabuxna týpa.“
5
dagar
dress
Rihanna kynnir nýja fatalínu
Söngkonan Rihanna vinnur nú hörðum
höndum að sinni fyrstu fatalínu í samvinnu
við tískurisann Emporio Armani en hann
sérhæfir sig í nærfata- og gallabuxnahönn-
un. Rihanna hefur verið andlit fyrirtækisins
í nokkra mánuði og segist vera þakklát
fyrir þetta tækifæri sem Armani hefur veitt
henni. Línan, sem mun bera nafnið R, er
heldur rokkaraleg og samanstendur af
sex ólíkum flíkum; tveimur stutt-
ermabolum, leðurjakka, nær-
fatasetti og tveimur ólíkum
gallabuxum. Teikningar
línunnar hafa verið verið
kynntar og virðist vera
sem söngkonan hafi
teiknað sig sjálfa í
nýju fötunum.
Önnur lína frá Vercase fyrir
H&M væntanleg
Versace línunni fyrir H&M hefur
verið tekið opnum örmum um heim
allan og selst gríðarlega vel. Hefur
söluvefurinn eBay slegið öll met í
sölu á þessum fötum. Upphaflega
var gefin út tilkynning þess efnis að fötin væru
framleidd í takmörkuðu upplagi og kepptust tísku-
aðdáendur við að kaupa flíkurnar sem þeir héldu
að væru þær síðustu til sölu. Annað hefur þó komið
á daginn og er nú framleitt til að anna eftirspurn.
Donatella Versace hefur lýst yfir ánægju sinni
með samstarfið við H&M og segir hún að önnur
lína sé væntanleg frá henni í febrúar; vorlína 2012. Í
kjölfarið kynnti hún skissur sem eru til grundvallar
hönnuninni og þar má sjá að ávaxtamynstur er
vinsælt og fjólublái liturinn ríkjandi.
Kosnaðarsamt kvöld
fyrir Victoria’s Secret
Allt var lagt undir þegar hin árlega nærfatasýning
Victoria’s Secret var haldin 9. nóvember síðastliðinn
í New York. Þrjátíu og sex fyrirsætur gengu niður
sýningarpallinn í 69 ólíkum búningum sem voru
hannaðir af Todd Thomas. Á þriðjudaginn síðasta,
þremur vikum eftir stóra
kvöldið, var sýningunni
sjónvarpað í 180 löndum
og var aðeins kostn-
aður fyrirtækisins við
þá útsendingu rúmlega
einn og hálfur milljarður
íslenska króna.
Þrátt fyrir þessa
svimandi upphæð hafði
fyrirtækið þó efni á að
borga fyrirsætunum og
skemmtikröftunum laun
fyrir vinnu sína og kostn-
aður fyrirtækisins því
samfara var rúmur hálfur
milljarður. Þetta var svo
sannarlega kostnaðar-
samt kvöld.
Þriðjudagur
Skór: All Saints
Buxur: Topshop
Skyrta: Topshop
Peysa: Urban Outfitter
Mánudagur
Skór: Urban Outfitter
Buxur: Urban Outfitter
Bolur: Topshop
Jakki: Topshop
Miðvikudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Buxur: Toshop
Jakki: Urban Outfitters
Bolur: GAP
Hálsmen: Nostsalgia
Fimmtudagur
Skór: Kultur
Buxur: Zara
Skyrta: All Saints
Loðvesti: Kultur
Föstudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Pils: Topshop
Bolur: Topshop
Jakki: H&M
Stykki: Gina Tricot
www.kolors.is
Gerðar úr sælgætisbréfum, tímaritum,
dagblöðum, strikamerkjum o.fl.
Fyrir hverja selda tösku er plantað tré
Fair Trade framleiðsla
Jólagjöfin í ár !!
Umhverfisvænar og flottar töskur
Varist eftirlíkingar!
Töskurnar fást einnig í:
- Duty Free Fashion Store Fríhöfninni
- Hrím Akureyri
- Póley Vestmannaeyjum
Frí heimsending!