Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Qupperneq 54

Fréttatíminn - 21.04.2011, Qupperneq 54
54 tíska Helgin 21.-24. apríl 2011 Okkar eigin sumartíska Sumartískan í ár er skemmtilegri en nokkru sinni fyrr. Litadýrðin blindar mann með skærum, áberandi litum og allt virðist vera leyfilegt. Svörtu fötin fá vonandi að fjúka með skammdegismyrkrinu og litríki sumarfatnaðurinn ná fótfestu með hækk- andi sól. Breytilegur sumarfatnaður er þó ekki eins algengur hér á landi og annars staðar í heiminum; við þurfum sífellt að hafa varann á. Því gengur lítið fyrir okkur Íslendinga að fylgjast með heitu sumartískunni sem þekkt- ustu hönnuðir heims senda frá sér. Íslenska veðráttan býður ekki upp á slíkt. Hlýralausir kjólar, stuttbuxur og stuttir jakkar eru ekki beint sniðnir fyrir okkar veður. Við þurfum því sjálf að skapa okkar eigin stíl með inn- blástur til hins vestræna heims; litríkar sokkabuxur undir kjólana, regnkápur og jafnvel ullarpeysur í allri sinni litadýrð ef vindurinn og kuldinn nær til okkar. Þótt við eigum ekki jafn heitt og sólríkt sumar og aðrir Evrópubúar þýðir það ekki að við getum ekki notið sumarsins eins vel. Við eigum okkar hefðir og venjur, fylgjum okkar tísku og njótum þess til hins ýtrasta. Plönum stórar útilegur þar sem útilegubúnaðurinn, hlýju fötin og góða skapið eru með í för og njótum sólar- innar sem aldrei sest. Þetta eigum við Ís- lendingar, ólíkt öðrum Evrópubúum. Diljá Hilmarsdóttir er tvítug Kvennaskólamær og stefnir á að útskrifast í vor. Hún er einnig mikill dansari og er nýútskrifuð úr Danslistaskóla JSB „Ég klæðist öllu því sem mér finnst flott; aðal- lega dökkum fötum og þá helst svörtu. Á það til að detta smá í gothara-týpuna en reyni þó að hafa takmörk fyrir því. Leikkonan Taylor Momsen finnst mér svakalega töff og lít mikið upp til hennar. Stundum gengur hún þó of langt í gothara-stílnum en þegar hún gerir það ekki er hún alltaf flott. Fötin sem ég klæðist kaupi ég mest í útlöndum; þá helst í Monki og Urban Outfitters. Svo hérna heima eru uppáhalds búðirnar mínar Topshop og Einvera sem eru mjög flottar. Þegar kemur að fatainnblæstri skoða ég mjög mikið tískublogg og síður eins og lookbook.nu. Svo finnst mér alltaf gaman að skoða tískutímarit eins og Vogue, það er þegar ég tími að fjárfesta í slíku.“ Dett stundum í gothara-gírinn 5 dagar dress Áhugaverð herferð Marcs Jacobs Tískufrömuðurinn Marc Jakobs hefur gefið út pólitíska yfirlýsingu með því að hefja sölu á stuttermabolum sem ætlað er að styðja baráttuna fyrir því að samkynhneigðir hljóti samþykki í samfélaginu. Bolirnir skarta tveimur samkynhneigðum konum, barni og textanum: „Ég borga skattana mína, ég krefst réttar míns.“ Þeir verða seldir víða um Ameríku og á vefverslunum á 4.000 krónur íslenskar og mun allur ágóði renna til mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Jacobs segir að allir eigi rétt á að gifta sig og það sé rangt af samfélaginu að útiloka ákveðna minnihlutahópa. Kardashian-systur virðast vera ofurkon- ur nútímans og taka að sér öll verkefni sem gefast. Í vik- unni sögðu þær frá því á samskiptavefn- um Twitter að þær ættu í leynilegum samningaviðræðum við naglafyrir- tækið OPI. Þær segjast vera með naglalakk fyrirtæk- isins á heilanum og ekki geta beðið eftir að fá að hanna sína eigin línu. OPI, sem er þekkt fyrir að fá frægt fólk í auglýs- ingaherferðir sínar, vill ekkert gefa upp og segir allt vera á byrjunarstigi. Syst- urnar eru þó á öðru máli og hafa gefið út þá yfirlýsingu að boltinn sé farinn að rúlla hratt og allt muni gerast á næstu mánuðum. tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Snyrtivörufyrirtækið Mac hefur sett í sölu nýja snyrtivörulínu fyrir páskana sem nefnist Quite Cute. Þetta er stelpuleg lína sem inniheldur fallegar og öðruvísi vörur. Litirnir á snyrtivör- unum eru einkennandi fyrir páskatímabilið, fallegir pastellitir sem virka vel. Línan inniheldur naglalakk, augnskugga, varalit, maskara og kinnalit og er mikið lagt í umbúðirnar. Línan minnir helst á snyrtivörurnar sem maður notaði þegar maður var barn, ýktir en flottir. Hún er væntanleg til landsins á næstu dögum í verslanir Mac í Smáralind og Kringlunni. Páskalína frá Mac Ofurkonur nútímans vinna með OPI Þriðjudagur Skór: Din Sko Buxur: Next Bolur: Topshop Jakki: H&M Kragi: Mömmuhönnun Mánudagur Skór: Din Sko Buxur: Topshop Samfella: Einvera Jakki: Gamall Diesel-gallajakki Eyrnalokkar: Agnes Björt Miðvikudagur Skór: Kronkron Sokkabuxur: Krull Kjóll: Next Jakki: Kolaportið Húfa: Topshop Föstudagur Skór: Einvera Buxur: Topshop Peysa: Einvera Skyrta: Rokk og rósir Slaufa: Kormákur og Skjöldur Fimmtudagur Skór: Einvera Leggings: Topshop Skyrta: Topshop Hattur: Spúútnik Byrjendanámskeið hefst allar freka ri upplýsin gar má fin na á www .mjolnir.is eða í síma 534 4455 • 692 44 55 2. maí Sk ránin g á mjol nir@ mjoln ir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.