Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 21

Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 21
seeglasgow.is Áhyggjulaust líf á frábærum börum og veitingastöðum. Náðu frítt í Glasgow appið kr19.800 aðra leið með sköttum og gjöldum 1974-8 Geir Hallgrímsson D+B 1978-9 Ólafur Jóhannesson B+A+G 1979-80 Benedikt Gröndal A 1980-83 Gunnar Thoroddsen D+B+G 1983-7 Steingrímur Hermannsson D+B 1987-8 Þorsteinn Pálsson D+A+B 1988-89 Steingrímur Hermannsson B+A+G+Borg 1989-91 Steingrímur Hermannsson B+A+G+Borg 1991-5 Davíð Oddsson D+A 1995-9 Davíð Oddsson D+B 1999-03 Davíð Oddsson D+B 2003-4 Davíð Oddsson D+B 2004-6 Halldór Ásgrímsson B+D 2006-7 Geir Haarde D+B 2007-9 Geir Haarde D+S Forsætisráðherrar Frá árinu 1974 aðhald í rekstri hins opinbera og lækka skuldir ríkissjóðs án þess þó að geta þess hvar verði að sýna slíkt aðhald. Þegar talað erum aðhald í rekstri ríkisins er þó gott að hafa í huga að um 40 prósent af fjárlögum 2013 rennur til velferð- arráðuneytis í heilbrigðis- og vel- ferðarmál. Um 12 prósent rennur til menntamálaráðuneytis og um 15 prósent fara beint í vaxtagjöld. Þessi þrír liðir eru 2/3 hluti fjárlaga og í því stærðarsamhengi hefur það lítið að segja að loka einu sendiráði eða svo. Þá eru báðir flokkar sam- mála um mikilvægi þess að afnema gjaldeyrishöftin, þó þannig að það trufli ekki efnahagslegan stöðug- leika landsins, hvorki til skamms né til lengri tíma. Báðir flokkar hafa talað á þeim nótum að mikilvægt sé að semja við kröfuhafa gömlu bankanna þannig að þeir gefi eftir hluta af krónueignum sínum og að þær eignir verði eftir hér á landi. Fram- sóknarflokkurinn vill að þær eignir verði notaðar til að leiðrétta verð- tryggð húsnæðislán og í kjölfarið að verðtrygging nýrra neytenda- lána verði afnumin. Á þessu sviði gæti reynst erfitt fyrir flokkana að semja. Sjálfstæðisflokkurinn vill nota skattkerfið til að verðlauna þá sem greiða af veðlánum sínum og lækka þannig höfuðstól lána og auka valkost á óverðtryggðum lánum þannig að verðtrygging verði ekki almenn regla. Það þarf ekki að reynast erfitt að semja um afnám verðtryggingar, þar sem lántakendur kjósa nú fremur að taka óverðtryggð lán en þau verð- tryggðu. Hvað varðar leiðréttingar á verðtryggðum húsnæðislánum, sem hefur verið eitt helsta kosn- ingamál Framsóknarflokksins, hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið mjög neikvæður og hefur ekki talið loforðið framkvæmanlegt. Á þessu gæti því steytt í stjórnarmyndunar- viðræðum. Í auðlinda- og umhverfismálum eru flokkarnir sammála um að endurskoða nýgerða rammaáætlun um vernd og orkunýtingu land- svæða þar sem fylgja þurfi áliti sérfræðinga og draga til baka „póli- tíkina“ sem fulltrúar flokkana segja að hafi ráðið að lokum. Við þetta gætu svæði í biðflokkum komist í virkjunarflokka. Framsóknar- flokkurinn segist vilja auðlinda- ákvæði í stjórnarskrá og að lagt verði á auðlindagjald af nýtingu auðlinda. Hvorugur flokkurinn virtist mjög áhugasamur um breyt- ingar á stjórnarskrá á nýliðnu þingi og verða breytingar á stjórnarskrá varla framarlega á forgangslista. Auðlindagjald er ekki meðal álykt- ana Sjálfstæðisflokksins, en fyrir þeim er fordæmi og því gæti Sjálf- stæðisflokkurinn mögulega sæst á slíkt gjald. Hornsteinn utanríkismála slíkrar ríkisstjórn yrði að hætta viðræðum við ESB, reyna að tryggja hags- muni Íslands á norðurslóðum og að halda áfram þátttöku í NATO. Framhald á næstu síðu úttekt 21 Helgin 26.-28. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.