Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 14
J ens Hjartarson réðist á fjölmargar ungar konur á síðasta ári, ári sem hjá honum einkenndist af fíkniefnaneyslu
og ofbeldi. Hann er 33ja ára gamall en um
gekkst mikið af mun yngra fólki, bæði stelp
um og strákum. Ein af stúlkunum sem hann
hefur verið dæmdur fyrir að ráðast á segir
í samtali við Fréttatímann að hann hafi sótt
í að hanga með ungum stelpum, boðist til
að skutla þeim um allan bæ og keypt handa
þeim sígarettur. Þetta voru brotnar stelpur
sem sumar vissu af ofbeldisfullri fortíð Jens
en trúðu því að hann myndi ekki koma jafn
illa fram við þær.
Fyrrverandi unnusta Jens fékk nálgunar
bann á hann þann 15. október 2012. Þá hafði
hún á undanförnum tíu mánuðum ítrekað
þurft að kalla til lögreglu og leita sér læknis
aðstoðar eftir að hann réðist á hana. Í byrj
un febrúar óskaði hún eftir að lögregla fjar
lægði hann af heimili sínu og í lok febrúar
var hann handtekinn heima hjá henni eftir
að eyðileggja húsgögn og tæki. Það sama
var uppi á teningnum í byrjun ágúst þegar
hún kallaði til lögreglu eftir að hann eyði
lagði sjónvarp, stofuborð og rúðu heima hjá
henni. Í lok ágúst mætti Jens síðan óboðinn
á heimili hennar. Jens var ekki dæmdur
fyrir brot gegn fyrrverandi unnustu sinni.
Jens Hjartarson var fyrir tíu árum dæmd
ur í sjö ára fangelsi fyrir ófyrirleitna líkams
árás og tilraun til manndráps. Alls réðist
hann á þrjá menn vopnaður hnífi. Ástæðan
voru samskipti mannanna við unnustu Jens,
þá sömu og framan er getið.
„Þegiðu krakki“
Daginn sem hún fékk nálgunarbann á hann
réðist Jens á aðra konu sem hann bjó hjá um
hríð. Hann gerði tilraun til að kyrkja hana,
kýldi hana í andlitið og hélt áfram að sparka
í hana eftir að hún féll í gólfið. Hún missti
meðvitund en þegar hún komst aftur til
meðvitundar fór hún að hlúa að tveggja ára
dóttur sinni. Jens sló konuna þar sem hún
hélt á barninu og fór barnið að gráta. Föt
barnsins lituðust af blóði móðurinnar, hún
lét það á rúmið og ætlaði að skipta um föt á
telpunni. Jens öskraði þá: „Þegiðu krakki!,“
gerði sig líklegan til að ráðast á barnið en
móðirin gekk fyrir og fékk í bakið hnefa
högg sem ætlað var barninu.
Barði hana meðvitundarlausa
Tveimur mánuðum fyrr, 20. ágúst, gerðist
Jens sekur um hrottafengna nauðgun á
enn annarri ungri konu. Hún hafði farið út
að hitta vin sinn sem vildi hitta Jens. Unga
konan hafði heyrt sögur af Jens og vildi
síður hitta hann en af varð að þau sóttu
hann. Til ósættis milli Jens og vinar hennar
kom heima hjá henni og á endanum um var
hún ein eftir með honum. Eftir árangurs
lausa tilraun hans til að útvega sér meira
amfetamín réðist hann skyndilega á hana
og nauðgaði henni hrottalega.
Enn ein árásin átti sér stað 29. október
þegar Jens réðist með ofbeldi á 17 ára
stúlku sem bað hann að biðja sig afsök
unar á að kalla sig öllum illum nöfnum.
Jens er kunningi föður stúlkunnar og var í
heimsókn hjá henni. Jens var þá órólegur í
leit að kveikjara. Stúlkan sagðist vera með
kveikjara en vildi ekki láta hann af hendi
fyrr en Jens bæði sig afsökunar á þeim illu
nöfnum sem hann kallaði hana. Jens snög
greiddist þá og sló hana í höfuðið þannig
að hún missti meðvitund um tíma. Þegar
hún rankaði við sér reyndi hún að fá hann
út úr íbúðinni en hann þá ýtt henni ofan í
Dómsmál Þekktur ofbelDismaður gekk laus mánuðum saman
Stöðvaður allt of seint
Fjórir mánuðir
liðu frá því Jens
Hjartarson nauðg-
aði ungri konu
á hrottafenginn
hátt þar til hann
var úrskurðaður
í gæsluvarðhald.
Á því tímabili
hafði hann beitt
þrjár aðrar ungar
konur alvarlegu
ofbeldi og fyrr-
verandi unn-
usta hans fengið
nálgunarbann á
hann. Jens var
nýverið dæmdur
í átta ára fangelsi
fyrir brot sín.
Föt barns-
ins lituðust
af blóði
móður-
innar, hún
lét það á
rúmið og
ætlaði að
skipta um
föt á telp-
unni.
sturtubotn og þrýst fast að hálsi hennar svo
áverkar hlutust af.
Dró hníf undan koddanum
Síðust í þessari árásahrinu var líkamsárás
Jens á átján ára stúlku á gistiheimili á
Snorrabraut þann 13. desember. Stúlkunni
hafði hann kynnst þegar þau voru bæði inni
á meðferðarstofnun og hún búið hjá honum
í nokkra daga eftir að hún kom þaðan út.
Jens vændi stúlkuna um að hafa verið að
fikta í símanum sínum og réðist á hana.
Hún missti meðvitund við barsmíðarnar
en rankaði við sér þegar Jens var enn að
berja hana. Þá kæfði hann hana nánast í
rúminu, dró eldhúshníf undan koddanum,
lagði að hálsi hennar og spurði hvort hún
væri tilbúin að deyja. Eigandi gistiheimilis
ins og nágrannar heyrðu til þeirra þar sem
stúlkan hrópaði: „Nei, ekki gera þetta. Ég
skal gera hvað sem er.“ Þeir kölluðu til lög
reglu sem handtók Jens. Stúlkan var stór
slösuð, í miklu áfalli og leitaði sér aðstoðar
á geðdeild.
Í framhaldi af þessu fór lögregla fram á
gæsluvarðhald yfir Jens sem Hæstiréttur
staðfesti síðan þann 17. desember. Ákærur
gegn Jens vegna þessara mála voru gefnar
út í janúar.
Rótin, félag um málefni kvenna með
áfengis og fíknivanda, hefur sent landlækni
erindi um öryggi kvenna á meðferðarstöð
um í framhaldi af þessari síðustu árás. Þar
er þess krafist að skapaðar verði aðstæður í
heilbrigðiskerfinu til að konur geti leitað sér
meðferðar við alkóhólisma án þess að eiga á
hættu að lenda í klóm ofbeldismanna.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ekki forsendur fyrir síbrotagæslu
„Ég tel að ekki hafi verið brugð
ist of seint við,“ segir Karl Ingi
Vilbergsson, aðstoðarsaksókn
ari og sviðsstjóri á ákærusviði
lögreglunnar, spurður hvort
lögreglan hafi of seint tekið
Jens Hjartarson úr umferð.
Þrátt fyrir hrottafengna nauðg
un í ágústmánuði segir Karl
Ingi að lögreglan hafi ekki haft
forsendur til að óska eftir því að
Jens yrði hnepptur í varðhald.
„Menn hafa ekki verið teknir
úr umferð fyrir viðlíka brot,“
segir hann. Karl Ingi bendir á
að brotamenn hafi verið settir
í gæsluvarðhald á grundvelli
almannahagsmuna vegna
nauðgunar á almannafæri en
málin séu erfiðari þegar um er
að ræða nauðgun í heimahúsi.
Þá er og oftar en ekki um að
ræða orð gegn orði og sönn
unarstaðan því erfið. Skilyrði
fyrir almannagæslu er að uppi
sé sterkur grunur um sekt sak
bornings. Það kom því ekki til
álita í þessu máli að óska eftir
slíku,“ segir hann.
Þá bendir Karl Ingi á að
nánast sé óþekkt að menn séu
settir í síbrotagæslu vegna of
beldisbrota. „Ég man ekki eftir
þannig máli,“ segir hann. „Skil
yrði fyrir að fá mann í síbrota
gæslu er að allar líkur séu á að
hann haldi áfram afbrotum. Til
þess þurfum við að hafa röð af
afbrotum, eitt eða tvo fullnægja
ekki þessum skilyrðum,“ segir
hann.
Það var síðan þegar síðasta
árás Jens átti sér stað, um
miðjan desember, sem lög
reglan hafði nægjanleg gögn í
höndunum til að óska eftir varð
haldi. Héraðsdómur samþykkti
varðhald. Hæstiréttur staðfesti
þann úrskurð. Ákærur gegn
Jens voru gefnar út í janúar og
hann dæmdur 13. apríl 2013.
-eh
Afbrotaferill Jens
frá því hann nauðgar ungri konu og þar til
hann er handtekinn
20. ágúst - Nauðgun
15. október - Nálgunarbann
15. október - Árás á móður með barn
29. október - Árás á dóttur kunningja síns
13. desember - Árás á meðferðarfélaga
14 fréttir Helgin 26.-28. apríl 2013