Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 58
58 ferðir Helgin 26.-28. apríl 2013
Bandaríkin Hápunktar HöfuðBorgarinnar
Íslendingaslóðir í Kanada
Við fetum í fótspor Íslendinga sem
fluttu forðum daga vestur til Ameríku
í von um betra líf í nýjum heimi. Í
ferðinni gefast ótal tækifæri til að hitta
fólk af íslenskum ættum.
Sumar 11
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
31. júlí - 10. ágúst
Verð: 259.200 kr.
á mann í tvíbýli.
Fararstjórar: Margrét Björgvinsdóttir
& Ragnheiður Kjærnested
Skyndibitinn
Pylsa í brauði með chili con carne sósu yfir er réttur hússins á
Ben´s Chilli Bowl (1213 U street NW), bæjarins bestu í Wash-
ington. Obama forseti hefur mætt á svæðið til að smakka og
Bill Crosby er fastagestur. Stuttan spöl frá þinghúsinu á Capi-
tol Hill er ósvikin hamborgarabúlla sem kallast Good Stutt
Eatery (303 Pennsylvania Avenue) og mun forsetafrúin hafa
sérstakar mætur á þeim stað. Út um alla borg eru vagnar sem
selja alls kyns fljótlega og frumlega rétti og það er því um að
gera að prófa ef lyktin er lokkandi og biðröðin löng.
Söfnin
Það kostar ekki krónu inn á Smithsonian söfnin jafnvel þó
þar megi finna ótrúlegt magn af dýrgripum og fróðleik. Þau
eru talin vera með þeim merkari í heiminum. Ellefu af þeim
söfnum sem tilheyra Smithsonian eru í nágrenni við Natio-
nal Mall og þau eru flest opin alla daga ársins nema jóladag.
Safnverðir í Washington fá því ekki frí á mánudögum líkt og
kollegar þeirra víða annars staðar.
Verslanirnar
Það er meiri upplifun í því fólgin fyrir ferðamann að fara
í búðaráp í miðborg en í risavaxinni kringlu í úthverfi. Í
Washington eru nokkur góð verslunarhverfi innan borgar-
markanna þar sem finna má sérverslanir og útibú þekktustu
vörumerkjanna. Í nágrenni við Hvíta húsið, n.t.t. á breiðgöt-
um F og G á milli sjöunda og þrettánda strætis eru nokkrar
stórverslanir og í Georgetown, háskólahverfinu, er einnig
mikið úrval og ein lítil kringla. Metró gengur út í Pentagon
City verslunarmiðstöðina og svo er Tyson Corner Center,
sjötta stærsta kringla Bandaríkjanna, ekki svo langt frá
Washington.
14. strætið
Hringiðja næturlífsins í Washington er á 14 stræti Logan
Circle hverfisins. Þar opna nýir veitingastaðir og barir jafnt
og þétt úrvalið er fjölbreytt. Á Birch and Barley (nr. 1337) er
bjórinn í aðalhlutverki. Þannig geti matargestir pantað sér
mismunandi öl fyrir hvern rétt. Á Cork bar (nr. 1720) má fá
ljúffengan tartar og umtöluðustu franskar borginnar með
vínglasinu. Hanastélin á leynibarnum Gibson (nr. 2009) eru
framúrskarandi og það er því þess virði að banka á ómerkta
hurðina og athuga hvort dyravörðurinn vilji hleypa manni inn.
Kennileitin
Hvíta húsið er klárlega þekktasta hús Bandaríkjanna. Þetta
aðsetur forseta landsins er í norðurhluta National Mall al-
menningsgarðsins og þar má finna minnisvarða látinna
hermanna, forseta og þjóðhetja ásamt þinghúsinu og Smit-
hsonian söfnunum. Það tekur um 2-3 tíma að rölta á milli
allra þessara þekktu mannvirkja. Það er líka tilvalið að leigja
borgarhjól og hjóla í rólegheitum á svæðinu því þar er bílaum-
ferð takmörkuð.
Kristján Sigurjónsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Kristján Sigurjónsson heldur úti ferðavefnum Túristi.is og þar
má lesa meira tengt ferðalögum til Washington.
Fimm ástæður til
heimsækja Washington
Síðustu sjö ár hefur höfuðborg Bandaríkjanna verið sá staður vestanhafs sem flestir hafa flutt til.
Ferðamannastraumurinn þangað hefur líka aukist enda sífellt fleiri sem hafa áttað sig á því að
borgin er langt frá því að vera litlaus diplómatabær. Hér eru nokkrir af hápunktum borgarinnar,
hver á sínu sviði.
Afreksfólk öræfanna
Æviferill Fjalla-Eyvindar og Höllu
Nýtt fræðslurit FÍ
Fæst í öllum helstu bókabúðum og á skrifstofu FÍ
SKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!
FerðaFélag Íslands | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 568 2533 | Fax: 568 2535 | Netfang: fi@fi.is
Í nýjasta fræðsluriti FÍ er um
fjöllunar efnið æviferill þeirra Fjalla
Eyvindar og Höllu. Það hlýtur að
vekja aðdáun enn í dag, hvernig
Eyvindur og Halla gátu bjargað sér
uppi á öræfum á þeim árum þegar
harðindi og hörmungar geisuðu um
byggðir landsins og mörg hundruð
manna fóru á vergang í byggð og
dóu úr hungri. Fróðlegt er fyrir
fjalla garpa nútímans að setja sig
í spor Eyvindar og Höllu og keppa
við þau á jafnréttisgrundvelli, hvað
klæðnað og allan útbúnað snertir til
dvalar á fjöllum.
www.fi.is
Margrét Tryggvadóttir
Saman getum við
farið í öflugar
aðgerðir í þágu
heimilana