Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 38
Í ríki Al Thani
É
Ég leit fyrir tilviljun út um gluggann á
flugvélinni og sá þá pálmana sérkenni-
legu, landfyllingarnar sem gerðar hafa
verið í Dúbaí. Þær eru dæmi um brjál-
æðislega hugmynd sem varð að veru-
leika, þegar peningar voru taldir nægir
og byggt var á færustu sérfræðingum frá
Belgíu og Hollandi, þar sem menn hafa
náð hvað lengst í gerð sjóvarnargarða.
Upphaflega hugmyndin var að lengja
strandlengju Dúbaí um 520 kílómetra,
með lúxushúsnæði við sjávarsíðuna,
glæsihótelum og afþreyingarstöðum af
öllu tagi. Sumt er komið í gagnið, annað
ekki en Dúbaí fór illa út úr fjármálakrepp-
unni. Framkvæmdir við pálmana stór-
brotnu hafa því tafist en upphaflega stóð
til að ljúka þessum framkvæmdum á 10-
15 árum en grjótflutningar út í Persa-
flóann hófust árið 2001.
Við hjónin vorum á leið til Kaupmanna-
hafnar frá Katmandu í Nepal, með milli-
lendingu í furstadæminu Katar við Persa-
flóa, það löngu stoppi þó í höfuðborginni
Doha að tími átti að vera til þess að fá
vegabréfsáritun inn í landið og dvelja þar
dagpart. Töf á fluginu frá Katmandu setti
þó strik í reikninginn en nægur tími var
samt til þess að skreppa í bæinn. Fimm
tíma flug er frá Katmandu til Doha og
óhætt er að segja að þar stigi maður inn
í allt annan heim. Ríkidæmið lekur bein-
línis af þessu olíuríki sem er á nesi sem
skagar út í Persaflóann. Ekki er það stórt,
Ísland er um það bil tíu sinnum stærra en
Katarar eru svipað margir og Íslendingar
– en íbúar landsins hins vegar til muna
fleiri. Leigubílstjórinn sem keyrði okkur í
bæinn sagði að þeir væru 1,7-1,8 milljónir.
Viðbótin er innflutt vinnuafl frá nálægum
Arabaríkjum, Indlandi, Nepal, Pakistan,
Sri Lanka, Filippseyjum og fleiri ríkjum.
Bílstjórinn sem keyrði okkur frá flugvell-
inum var frá Túnis, sá sem ók okkur til
baka var frá Nepal. Katarar eru því yfir-
stétt í eigin landi, ríkasta landi í heimi
samkvæmt lista Forbes. Hvorki meira né
minna en 94 prósent af vinnuafli landsins
er aðkeypt.
Katar á ekki landamæri að öðru landi
en Sádi-Arabíu en skammt undan strönd-
um þess er eyríkið Bahrein. Áður en olía
og gas fannst í jarðlögum Katar voru fisk-
veiðar og perluleit helstu atvinnugreinar.
Landið var undir breskum yfirráðum
til 1971 en Al Thani fjölskyldan hefur
verið ráðandi í landinu frá miðri 19. öld.
Emírinn þar er Hamad bin Khalifa Al
Thani. Al Thani nafnið tengist íslenskri
viðskiptasögu, eins og margir þekkja, en
frændi emírsins, Mohammed bin Kha-
lifa Al Thani, kom við sögu Kaupþings
á síðustu dögum fyrir fall bankans er
hann keypti milljarðahlut í honum. Það
mál er fyrir dómstólum hér en sérstakur
saksóknari telur að um sýndarviðskipti
hafi verið að ræða. Það er önnur saga og
ótend heimsókn okkar til Katar.
Við og önnur hjón í ferðahópi okkar
spurðum leigubílstjórann einfaldlega
hvort hann tæki dollara og hvort hann
vildi skutla okkur í miðbæinn. Hann vildi
dollarana og brunaði með okkur áleiðis
að háhýsahverfi miðborgar Doha þar
sem hvert húsið er öðru glæsilegra um
leið og hann fræddi okkur um risavaxna
verslunarmiðstöð sem vert væri að skoða.
Taldi sennilega að við ættum fleiri dollara
en raunin var og er kannski vanur að aka
slíku fólki. Við þekktum ekkert til í Doha
en spurðum þó, þegar við nálguðumst
skýjakljúfana, hvort ekki væri gamlan
miðbæ að finna. Hann hélt það nú og
sneri þegar frá glitrandi háhýsunum að
lægri byggð, nær flugvellinum. Það var
vel valið – við vorum ekki svikin af hinum
gamla miðbæ Doha. Þar var dásamlegt að
rölta um innan um smáverslanir og mark-
aðstorg af öllu tagi auk veitingastaða sem
buðu upp á alls konar lystisemdir. Minn
betri helmingur stóðst ekki mátið og
splæsti í teppi. Prútt frúarinnar á þessum
arabíska markaði tókst eftir atvikum.
Þótt konur hafi öðlast nokkurn rétt í
Katar, meðal annars kosningarétt árið
1999, eiga þær enn langt í jafnræðisland.
Arabísku karlarnir gengu um í hvítum
kuflum en konur í þeirra fylgdarliði voru
svartklæddar frá toppi til táar með hulin
andlit, stundum nokkrar með einum hvít-
klæddum. Þeir bönduðu frá sér forvitnum
Kópavogsbúum sem vildu mynda hjörð-
ina. Alls staðar sat fólk á veitingastöðum
og reykti vatnspípur, einkum karlar en þó
slæðingur af konum.
Við fjögur sem fórum saman í bæinn
fundum okkur góðan veitingastað og
pöntuðum forvitnilega rétti, í nokkurri
óvissu þó, eins og stundum gerist þar
sem maður þekkir sig ekki. Ég lét vaða
á lambakjöt, þóttist vita að Arabar væru
þar á heimavelli. Mér brá nokkuð þegar
þjónninn kom með diskinn. Þar virtist í
fyrstu aðeins vera viskustykki en reynd-
ist, þegar að var gáð, pönnukaka. Undir
henni var prýðilegur lambaréttur, krydd-
aður með einhverju sem ég kann ekki
skil á. Ekki þýddi að biðja um áfengan
drykk með ljúfmetinu. Það er bannað.
Vatn eða gos varð það að vera – eða vatns-
pípa sem við létum eiga sig.
Nepalinn sem ók okkur aftur á flugvöll-
inn ræddi líka um Katarana og aðflutta
vinnuaflið, ekki síður en bílstjórinn frá
Túnis. Það var aðeins tónn í báðum gagn-
vart yfirstéttinni, Katörunum sjálfum,
sem borga ekki einu sinni tekjuskatt – og
vita varla ekki aura sinna tal.
Katar verður væntanlega meira í frétt-
um þegar nálgast árið 2022. Þá verður
heimsmeistarakeppnin í fótbolta haldin
þar. Einhvers staðar heyrði ég að fótbolta-
vellirnir, sem þeir ætla að byggja fyrir
hátíðina miklu, verði kældir – og veitir
víst ekki af. Hitinn er nálægt 40 stigum í
maí og september og vel yfir 40 gráðum
sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst.
En Al Thani, það er að segja emírinn
en ekki Kaupþingsfrændinn, á víst fyrir
slíkum smámunum.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
38 viðhorf Helgin 26.-28. apríl 2013
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
GLÆNÝTT
FRÁ
UMBRA
Gerum hús að heimili
TEKK COMPANY og HABITAT
Kauptúni | Sími 564 4400
www.habitat.is | Vefverslun á www.tekk.is
Opið mán.–lau. kl. 11-18 og sun. kl. 13-18
MANTRA
veggskraut
6.700 kr.
CONCEAL
ósýnilega hillan
small 2.900 kr.
large 3.900 kr.
ULove
myndarammi
3.900 kr.
BIRDIE
3 snagar í pk.
4.500 kr.
Gísli Tryggvason
Saman getum við
tryggt arð af
auðlindum og haldið
þeim í þjóðareigu