Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 8
Dagný Hulda
Erlendsdóttir
dagnyhulda@
frettatiminn.is
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
Fæst einnig fjórhjóladrifinn
Caddy* kostar aðeins frá
3.090.000 kr.
(2.642.151 kr. án vsk)
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Saman getum við
tryggt arð af
auðlindum og haldið
þeim í þjóðareigu
V ið byrjum á því að opna fyrir 35 nemendur og erum í samstarfi við gistihúsin
á svæðinu þar sem heimavistin
verður. Þannig getum við nýtt
það sem er til staðar og styrkt
núverandi rekstur fyrirtækja,“
segir Björt Sigfinnsdóttir, einn
aðstandenda Lungaskólans. Aðal-
bækistöðvar Lungaskólans verða
í félagsheimili Seyðisfjarðar en
starfsemin verður meðal annars
í samstarfi við Listaháskólann,
Seyðisfjarðarbæ, Kaospilot skólann
í Árósum í Danmörku, Skaftfell og
Tækniminjasafnið á Seyðisfirði, svo
margir koma að verkefninu.
Afsprengi Listahátíðar
unga fólksins
Að sögn Bjartar þróaðist hug-
myndin um skólann í framhaldi af
LungA, Listahátíð unga fólksins,
sem haldin hefur verið árlega frá
árinu 2000 og verið vel sótt af ungu
fólki alls staðar að úr heiminum.
Menntun Afsprengi LungA hátíðArinnAr
Stofna lýðháskóla á Seyðisfirði
Lýðháskóli mun taka til starfa á Seyðisfirði í byrjun næsta árs.
Kennslan verður byggð á hinni klassísku lýðháskóla hugmynda-
fræði Grundtvig frá miðri 19. öld þar sem áhersla er lögð á að
örva vitsmunalíf nemenda og þeir undirbúnir fyrir lífið. Auk þess
sækir skólinn innblástur í LungA hátíðina og Kaospilot skólann í
Árósum í Danmörku. Mikill stuðningur ríkir í samfélaginu.
Nemendur Lungaskólans munu
geta valið um að stunda nám í eina
eða tvær annir og verður kennslan
þannig upp byggð að nemendur
ljúka fimm námskeiðum á önn og
hvert námskeið stendur yfir í tvær
til þrjár vikur. „Haldin verða nám-
skeið með listamönnum sem eru
að fást við spennandi hluti sem
koma til með að dvelja í styttri tíma
á Seyðisfirði. Þar sem námskeiðin
verða stutt verður auðveldara að fá
stærri listamenn, alls staðar að úr
heiminum, til að koma,“ segir Björt.
Einnig verður boðið upp á fyrirlestra
og minni námskeið.
Á hinum Norðurlöndunum er rík
hefð fyrir starfsemi lýðháskóla en
Lungaskólinn verður sá eini sinnar
tegundar á Íslandi. Aðstandendur
skólans sjá fyrir sér að stofnun skól-
ans muni laða ungt fólk til Seyðis-
fjarðar og auðga þannig mannlíf í
bænum. Námið er bæði ætlað þeim
sem hyggja á frekara listnám og
öðrum – aðalatriðið er að fólk sé
fullt lærdómslöngunar og opið fyrir
óvæntum áskorunum. Skólinn er
ætlaður fólki átján ára og eldra.
Vinna með sjálfsmyndina
Að sögn Bjartar byggist hug-
myndafræði Lungaskólans á því að
menntun sé þróun. „Fyrir okkur er
menntun ekki aðeins þróun á hæfi-
leikum og akademískri þekkingu
heldur líka þróun manneskjunnar
sem heildar. Því þykir okkur svo
mikilvægt að vinna með sjálfsmynd
nemenda og þann kraft sem innra með þeim býr.
Sá kraftur er grunnurinn að öllu því sem við fram-
kvæmum. Þessi kraftur snýst líka um að fólk geti
látið hugmyndir sínar verða að veruleika. Markmiðið
er að verkefni nemenda Lungaskólans hjálpi þeim að
kynnast sjálfum sér betur og þekkja veikleika sína
og styrkleika."
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans,
lunga.is
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
„...menntun
er ekki að-
eins þróun á
hæfileikum
og akadem-
ískri þekk-
ingu heldur
líka þróun
menneskj-
unnar sem
heildar. Því
þykir okkur
svo mikil-
vægt að
vinna með
sjálfsmynd
nemenda og
þann kraft
sem innra
með þeim
býr.“
Björt Sigfinnsdóttir undirbýr nú, ásamt fleiri, stofnun
Lungaskólans á Seyðisfirði. Fyrstu nemendurnir hefja nám
í byrjun næsta árs. Ljósmynd/Hari
sAMningur innAnríkisráðuneytið
Rauði krossinn veitir hælisleitendum aðstoð
Samningur milli innan-
ríkisráðuneytisins og Rauða
krossins um aðstoð og
þjónustu við hælisleitendur
var undirritaður í vikunni, að
því er fram kemur á vef ráðu-
neytisins. Samningurinn
hljóðar upp á þrjár milljónir
og gildir til næstu áramóta
en þá er stefnt að endur-
skoðun hans. Samningurinn
er liður í átaksverkefni sem
ríkisstjórnin efndi til í mars
síðastliðnum vegna aukins
fjölda hælisleitenda.
Samningurinn felur í sér
að Rauði krossinn veiti hælis-
leitendum aðstoð og þjón-
ustu. Sú aðstoð felst meðal
annars í hlutlausri og óháðri
hagsmunagæslu, reglulegu
samráði og samstarfi við
stjórnvöld, viðtalstímum,
heimsóknarþjónustu, fataút-
hlutun, félagsstarfi og fleira.
Fjöldi hælisumsókna jókst
um 66% á milli áranna 2011
og 2012. Frá áramótum hefur
81 sótt um hæli á Íslandi.
Vegna þessarar aukningar
hefur málsmeðferðartími
lengst. Í mars síðastliðnum
efndi ríkisstjórnin til tíma-
bundins átaks til að stytta
málsmeðferðartíma hælis-
umsókna og tryggja búsetu
og aðbúnað hælisleitenda.
Ráðinn hefur verið verkefna-
stjóri yfir átakinu og starfs-
mönnum fjölgað tímabundið
hjá innanríkisráðuneyti og
Útlendingastofnun. Samn-
ingurinn er liður í því átaki.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Samningurinn er liður í
átaksverkefni sem ríkis-
stjórnin efndi til í mars
síðastliðnum vegna aukins
fjölda hælisleitenda.
8 fréttir Helgin 26.-28. apríl 2013