Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 60
60 bílar Helgin 26.-28. apríl 2013
Suzuki Stærri og betur búinn
SX4 með nýrri gerð aldrifs
Sýning Fjögur þúSund mannS Skoðuðu vöðvabíla
Mustang GT 2005
kosinn fallegasti bíllinn
DODGE Viper v-10. Árgerð
1995, ekinn 16 Þ.KM, bensín,
beinskiptur. Draumur allra
karlmanna. Verð 6.900.000.
Rnr.113137.
AUDI A6 new quattro. Árgerð
2007, ekinn 80 Þ.KM, bensín,
sjálfskiptur. Verð 4.990.
Umboðsbíll gríðalega fallegur
bíll Rnr.311101.
Opið mánud til fös 10 til 18
ATH. Opið á fimmtud. til kl. 21
laugard frá 12 til 15
lokað á sunnud
Sími 567 2277 • www.nyja.is
Titilinn hlaut
Ford Mustang
GT 2005. Gísli
Árnason,
eigandi bílsins,
breytti bílnum
sjálfur í „Boss
302“ útlit.
Ljósmynd/Síða
Brimborgar
Ford Mustang GT 2005 var kosinn fallegasti
bíllinn á Ford Mustang sýningunni sem var
haldin í Ford salnum síðastliðinn laugardag.
Á síðu Brimborgar kemur fram að frábærlega
hafi tekist til en um fjögur þúsund manns
lögðu leið sína í salinn til að skoða glæsilegt
úrval þessara vöðvabíla.
Á sýningunni gafst gestum kostur á að kjósa
fallegasta bílinn. Titilinn hlaut Ford Must-
ang GT 2005. Gísli Árnason, eigandi bílsins,
breytti bílnum sjálfur í „Boss 302“ útlit. Gísli,
sem er bílamálari, málaði bílinn sjálfur í Ford
Focus lit, þriggja laga „Electic Orange“ lit.
„Gísli gerir breytingarnar eftir sínu eigin
höfði og er ekki endilega að leitast við að
hafa upprunalegt útlit eins og ef Ford hefði
smíðað bílinn. Felgurnar undir bílnum
eru krómaðar 20 tommu FR500 útlit sem
gerir bílinn enn eftirtektarverðari. Vélin
á bílnum hefur aðeins verið hresst við en
hún er um 320 hestöfl,“ segir enn fremur á
síðunni.
Á næsta ári fagnar Ford Mustang 50 ára
afmæli sínu og af því tilefni verður öllu
tjaldað til. Stefnan er að hafa þá sýningu
enn glæsilegri og veglegri.
Rúbínrauður hugmyndajeppi Citroën
Hugmyndajeppinn Citroën Wild Rubis verður frumsýndur á bílasýningunni í
Shanghai nú í apríllok. Honum hefur verið lýst þannig, að því er fram kemur á síðu
Brimborgar, umboðsaðila Citroën, að hann sé jafn villtur og hann er fágaður.
Rubi stendur fyrir litinn sem einkennir bílinn, rúbínrauður. Liturinn breytist eftir
því hvernig birtan fellur á bílinn.
Liturinn er rúbínrauður og breytist eftir því hvernig birtan fellur á bílinn.
Hyundai
Santa Fe. Í
bílnum er
197 hestafla
dísilvél og
sex þrepa
sjálfskipting.
Hyundai öFlugur FjórHjóladriFSbíll
Santa Fe er álitlegur kostur
Hinn fjórhjóladrifni Hyundai Santa
Fe er vinsæll og bílablaðamenn
á Íslandi kusu hann jeppa ársins
2013. Bíllinn er því álitlegur kostur
og hentar vel við íslenskar að-
stæður.
„Santa Fe er með nýja spar-
neytna 197 hestafla dísilvél sem
togar 437 Nm við 2000 snúninga
á mínútu og er því með öflugri vél
en er í mörgum stærri jeppum en
eyðsla í blönduðum akstri er þó
einungis 6,7 lítrar/100 km. með
sjálfskiptingu. Santa Fe er með
6 þrepa sjálfskiptingu, sjálfvirka
tölvustýrða stöðugleikastýringu
og spólvörn, leðurinnréttingu
með rafstýrðum sætum, sóllúgu,
Bluetooth símabúnað, glæsileg
hljómtæki, aksturstölvu, tvískipta
miðstöð með lofthreinsibúnaði,
álfelgur og síðast en ekki síst
hefur hann rými sem fullnægir
kröfuhörðum kaupendum,“ segir
á síðu Hyundai, en umboðið er
með sýningarsal að Kauptúni 1 í
Garðabæ.
Hyundai Santa Fe fæst í þremur
útfærslum, Comfort sem kostar
7.650 þúsund, Style sem kostar
8.350 þúsund og Premium sem
kostar 8.950 þúsund.
Fimm ára verksmiðjuábyrgð er á
Santa Fe, eins og öðrum Hyundai
bílum. Akstur er ótakmarkaður út
ábyrgðartímabilið.
S uzuki SX4 var fyrst sýndur sem hugmyndabíllinn S-Cross á bílasýningunni í
Frakklandi í fyrra. Nú er hann klár
til framleiðslu, nýr frá grunni og
var frumsýndur á bílasýningunni í
Genf. „Suzuki ætlar sér stóra hluti
í hinum vinsæla C-stærðarflokki.
Þess vegna er nýr SX4 hannaður
með það fyrir augum að vera í for-
ystu innan stærðarflokksins bæði
hvað varðar innanrými og lítinn út-
blástur, að því er fram kemur í til-
kynningu umboðsins; Suzuki Bíla.
Bíllinn kemur í sölu í Evrópu
næsta haust. Hann verður boð-
inn með tveimur gerðum véla,
bensínvél og dísilvél með sama
1,6 lítra slagrýminu. Bensínvélin
verður boðin með fimm gíra bein-
skiptingu en dísilbíllinn fær sex
gíra beinskiptingu. Þá verður SX4
einnig fáanlegur með CVT sjálf-
skiptingu.
„SX4 hefur, eins og nafnið gefur
til kynna, drif á öllum hjólum.
Aldrifskerfið kallast AllGrip. Það
er með fjórum mismunandi still-
ingum sem ökumaður getur valið
um, allt eftir vegaðstæðum hverju
sinni og eigin óskum.
Nýr SX4 er talsvert stærri en
bíllinn sem hann leysir af hólmi.
Fyrri gerðin var 4.135 mm á lengd
og 1.755 mm á breidd en nýi bíll-
inn er 4.300 mm á lengd og 1.765
mm á breidd. Þá fer hjólhafið úr
2.500 mm í 2.600 mm sem gerir
það að verkum að farangursrýmið
eykst úr 270 lítrum í heila 430
lítra. Þetta þýðir að farangursrými
í nýjum SX4 er eitt hið mesta í
bílum í C-stærðarflokki.
Hönnun á innanrými SX4 tekur
mið af þægindum á lengri ferðum.
Þá verður hann fáanlegur með
glerþaki með tvöfaldri, opnanlegri
sóllúgu.“
Hönnun á innan-
rými SX4 tekur
mið af þægindum
á lengri ferðum.
Suzuki SX4,
nýr frá grunni.
Bíllinn er stærri
og betur búinn
er forverinn.
Suzuki ætlar sér stóra hluti í hinum vinsæla C- stærðarflokki