Dagfari - 01.11.2006, Qupperneq 13

Dagfari - 01.11.2006, Qupperneq 13
Blómin ■ ánifti - ritfregn Sænsk/bandaríska skáldkonan Edita Morris sendi árið 1959 frá sér bókina The Flowers of Hiroshima, sem gefin var út af Máli og menningu fjórum árum síðar í þýðingu Þórarins Guðnasonar undir heitinu Blómin í ánni. Skáldsaga þessi fjallar að verulegu leyti um eftirköst kjarnorkuárásarinnar á Hiroshima og varð til að opna augu margra fyrir hörmungum kjarnorkus- tríðs. Fregnir af sprengjunni og afleiðingum hennar höfðu verið ritskoðaðar á Vesturlöndum, t.a.m. liðu margir áratugir áður en ljósmyndir sem banda- ríski herinn lét taka í borgarrústunum komu fyrir almenningssjónir. Við gerð bókarinnar hafði Edita Morris til hliðsjónar frásagnir sonar hennar Ivans, sem starfaði á vegum leyniþjónustu flotans og heimsótti Hiroshima skömmu eftir sprenginguna. Halldór Laxness skrifaði formála að íslenskri þýðingu bókarinnar 1963 og rifjaði meðal annars upp persónuleg kynni sín af Morris-hjónunum, sem höfðu heimsótt hann að Gljúfrasteini. Blómin í ánni voru um árabil ófáan- leg, en nýverið gaf norðlenska bókaútgáfan Tindur hana út á nýjan leik. Til viðbótar við formála Halldórs Laxness er í þeirri útgáfu bætt við ávarpi því sem Guðmundur Georgsson læknir flutti í Tjarnarsal Ráðhússins þann 9. ágúst 2005 á fundi friðarhreyfinganna. Limrur eftir Þorstein Valdimarsson Samvizka Hún Snotra er móðir að Snató, Hvimleiði Hann Ami er ófarinn heim. En Snató er undan Plató. Hann er skelfilegt svín, En þó skammast hann sín níð’r í skott, ef við köllum hann Nató. Allir amast við gestinum þeim. En það er metnaður Ama, að engum sé sama um Ama um gjörvallan heim. Hreingerningarþanki Það er svipað um hernámið hér og horngiýtis rykið hjá mér: Það seiglast að falla, það svínar út alla — og sést ekki fyrr en það fer. Lögfræðiskrifstofa Ingólfsstræti 5, 4. hæð, sími 562-2024 Dagfari • nóvember2006 13

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.