Heimilisritið - 01.06.1945, Blaðsíða 21
Glæsilegustu listaverk
Forngrikkja
ÞAÐ ER enginn vafi á því, að
hinar stórfelldu byggingar Akr-
opolis í Aþenu, voru Periklesi
að þakka framar öllum öðrum.
Hann var af góðum ættum. —
Faðir hans hafði barist við Sala-
mis. En að Perikles komst svo
hátt sem stjórnmálamaður var
vafalaust hans eigin hæfileikum
að þakka.
Perikles þekkti þýðingu þess
að láta lýðnum í té nægar
skemmtanir. Plutark sagði að
það hefði verið ósk Periklesar
og áform, að hinn menntunar-
litli lýður slyppi ekki við að
leggja sinn hluta fram til al-
menningsþarfa. Og skemmtanir
voru ekki veittar án þess að
menn legðu fram krafta sína í
J>águ ríkisins.
Sjóðir voru myndaðir til þess
að standa straum af hinum
mikla kostnaði við byggingar
hins opinbera.
Parthenon (hið mikla must-
«ri) var einkum reist yfir gull-
og fílabeinslíkneskið af gyðj-
unni Aþenu. Sagt er að 44 talent-
ur gulls (1150 kg.) hafi farið í
myndastyttu þessa. Erfitt er að
gera samanburð á þessari fjár-
hæð og núverandi gildi peninga.
Þó er álitið að þessi upphæð
muni nema um það bil sex millj-
ónum dollara, með núverandi
gildi í Bandaríkjunum.
Þetta var mikil upphæð, mið-
að við þá tíma, er Perikles var
uppi.
Phidas var yfirsmiður líkn-
eskisins af Aþenu. Hann er
álitinn mesti myndhöggvari, sem
heimurinn hefur nokkurn tíma
átt. Líkneskið var 45 f^ta hátt.
Allir þeir hlutir þess, er vöðva
og hold áttu að tákna, voru gerð-
ir úr fílabeini. Hinir hlutar þess
voru gerðir úr gulli.
Perikles kvað ekki ólíklegt að
það myndi tekið og notað í neyð.
Og það varð löngu síðar.
Pausanías hefur lýst líkneski
þessu hinu mikla, og hefur lýs-
ing hans geymst. Líkneskið stóð
á fótstalli úr marmara. Á fót-
stallinum voru lágmyndir úr
sögu Grikkja, eða af frægum
persónum. Og sagt er að þar
hafi verið mynd af Phidasi.
DO
HEIMILISRITIÐ