Heimilisritið - 01.06.1945, Side 49
landi 1 dag. Svo segir í andríkri
tilkynningu frá utanríkisráðju-
neytinu í dag: „Bandamenn vilja
ekki vernda smáþjóðirnar frá
því að dragast inn í ófriðinn, en
Þjóðverjar sporna við því“.
Berlín, 18. apríl 1940.
Joe Harsch kominn aftur frá
Kaupmannahöfn með þokkalega
sögu. Hann segir, að um kvöldið
8. apríl hafi Danakonungur ver-
ið eitthvað órólegur út af fregn-
um, sem bárust þá um daginn,
stefndi sendiherra Þjóðverja á
fund sinn og bað hann um ör-
yggisyfirlýsingu.. Sendiherrann
sór konungi þess dýran eið, að
Hitler hefði enga innrás í Dan-
mörku í huga, og kviksögur þær,
sem gengju milli manna, væru
aðeins „Bretalýgi“. Sannleik-
urinn var sá, að á sömu stundu
lágu fyrir akkerum á höfninni
nokkur þýzk kolaskip, sem kom-
ið höfðu fyrir tveim dögum, og
þetta var sendiherranum vel
kunnugt. Eins yar hann sann-
fróður um það, að þýzkir her-
flokkar lágu þar í leyni undir
þiljum.
Næsta morgun í dögun var
hlerum svipt af lestum skipanna
og þýzku hermennirnir hlupu
upp. — Konungshöllin stendur
skammt frá höfninni. Fylking-
ar nazista gengu upp götuna til
hallarinnar. Danir, sem voru að
hjóla til vinnu sinnar, ætluðu
ekki að trúa eigin augum. Ýms-
ir sögðu síðar, að þeir hefðu
haldið að verið væri að filma
einKvern þátt í kvikmynd. Þeg-
ar Þjóðverjar nálguðust höllina,
hóf lífvörður konungs þó skot-
hríð. Þjóðverjar skutu á móti.
Þegar konungur heyrði skot-
hríðina, segi.r Joe, sendi kon-
ungur aðstoðarforingja út til
varðanna og bað þá í herrans
nafni að hætta skothríðinni.
Foringinn þaut út, veifaði í á-
kafa hvítum vasaklút og skipaði
að hætta að skjóta. Þjóðverjar
voru þakklátir fyrir þessa að-
stoð og umkringdu höllina í
snatri.
Á meðan þessu fór fram, var
dönskum verkamönnum, sem
fóru um götuna á hjólum sín-
um, skipað að fara aðra leið og
koma ekki nærri höllinni. Sum-
ir þeirra voru ekki nógu fljótir
að skilja Þjóðverja. Þá var skot-
ið á þá og tólf menn drepnir.
Særðir sjórtenn og hermenn,
sem komust af er Blucher sökk,
eru að koma, og hafa allir
hræðileg brunasár á hálsi og
andliti. Svo virðist, sem logandi
olíuflóð hafi streymt út, er skip-
ið sökk. Margir, sem á sundi
voru, brunnu til bana. Ég býst
við, að margir hafi drukknað
hálfsteiktir af eldinum. Þokka-
legur dauðdagi.
HEIMILISRITIÐ
47