Heimilisritið - 01.03.1951, Side 40
Hugh Bartöri sagði nokkur orð
í róandi tón, og raddimar hurfu
út í buskann. Lettie skildi að
Hugh væri að fylgja gesti sín-
um til c|yra, og hún gat ekki
hamið forvitni sína, en stóð upp
til þess að sjá hver gesturinn
væri. Hún sá bara að hann var
hár og kraftalegur og með rauð-
leitt andlit og grátt hár.
Þegar Hugh Barton kom inn
aftur, gat hann auðveldlega séð
á andlitssvip hennar, að hún
hafði heyrt eitthvað af samtal-
inu.
„Þetta var einn vina minna,
Jack Chambers, sýslumaðurinn
héma í héraðinu.“
„Já, ég gat ekki komizt hjá
að heyra, að hann varaði yður
við einhverjum glæpamönnum!“
„Svona, svona ... Glæpamönn-
um er nú ef til vill fullmikið
sagt ... þótt þessir tveir náung-
ar hafi verið nokkra mánuði í
steininum fyrir uppþot og ó-
eirðir ...“
„Voruð það þér, sem fenguð
mennina handtekna?“
„Já ...!“
„Og nú hafa þeir hótað að
hefna sín!“ hrópaði Lettie ótta-
slegin.
„Já, þeir hafa í hyggju að
brenna kofann ofan af mér!
Þeir hafa heitið því, að mér
skuli verða velgt ...“
„Ó, nei!“ hvíslaði Lettie löm-
uð af skelfingu. „Það er hræði-
legt ... Þér eigið það á hættu
að allt springi í loft upp ...
Dynamitið ...“
„Já, alveg rétt ... Dynamitið
... því hafði ég gleymt!“
„Þetta er vissulega hræðilegt!
Hugsið aðeins um hættuna, sem
þér leggið yður í! Hættu, sem
U
Lettie þagnaði í miðri setn-
ingu við að koma auga á það
tillit, sem Hugh sendi henni.
„Æ, afsakið!“ tautaði hún.
„Ég haga mér víst heimsku-
lega!“
„Nei, þér gefið aðeins tilfinn-
ingum yðar lausan tauminn!“
sagði Hugh og gekk einu skrefi
nær.
„Tilfinningum?11 stamaði Let-
tie.
„Já, tilfinningum yðar til við-
skiptavinar yðar, auðvitað!11
svaraði Hugh. „Viðskiptavinar,
hvers velferð þér berið fyrir
brjósti, og sem hættir ofurlítið
á að verða sprengdur í loft upp
með dynamiti.11
„Þér viðurkennið þá sjálfur,
að það sé hætta á ferðum?“
„Hættan er alltaf fyrir hendi!
Ef óþokkarnir koma í nótt, þá
er jú möguleiki á því, að þeim
heppnist að eyðileggja húsið ...
en í mig ná þeir ekki ... Ég
verð hérna nefnilega ekki. Og
ráðskonan mín hefur frí frá því
38
HEIMILISRITIÐ