Heimilisritið - 01.06.1951, Page 39

Heimilisritið - 01.06.1951, Page 39
Leslie fann Daphne í hinum venjulega aðdáendahópi sínum. LESLIE ruddi sér ótrauðlega braut; hann vissi, að hann hafði litla leðurpunginn í brjóstvasan- um, og við það óx honum ás- megin. Hingað til hafði hann alltaf verið hálf ragur, þegar hann nálgaðist hana; Daphne var svo fögur, og hún var jú dóttir húsbóndans-------! I dag var þetta allt öðru vísi. Hann var þrunginn sjálfstrausti! Hann þurfti aðeins að sýna henni töfragripinn, og þá yrði það hún, er myndi biðja hans. Og hann hafð'i í hyggju að sýna henni gripinn eins fljótt og mögulegt væri. „Þér dansið þennan dans lík- lega við mig, ungfrú Daphne?“ Þetta hljómaði fremur sem skip- itn en spurning. Hann tók hik- laust undir arm henni og dró hana með sér út á gólfið, áður en henni gafst tóm til að svara, og áður en ungi maðurinn, sem stóð við hliðina á henni, gat komið alvarlegum athugasemd- um að. Hann fékk að'eins tæki- færi til þess að segja, að honum þætti það leitt, en ungfrú Daphne hefði lofað . . . ! Leslie brosti vingjarnlega til hans. Vesalingurinn — hann átti víst engan töfragrip. I fram- tíðinni myndi hann verða að láta sér nægja að dást að Daphne úr hæfilegri fjarlægð — alveg eins og Leslie sjálfur hafði gert hingað til —! „Mér virðist svo sem þér sé- uð full frakkir!“ sagði Daphne og leit undrandi á hann. Allt til þessa hafði hann verið yfir sig kurteis og hræddur við að skap- rauna öðrum eða vera öðrum til fyrirstöðu. „Finnst yður það!“ svaraði Leslie kæruleysislega. „Tja, ég veit annars ekki! Hvers vegna skjdduð þér vera að' eyða tím- anum með þessum náungum, þeir meina hvort sem er ekkert með því —“ „Gjörið þér það!“ Hann hikaði stundarkorn með að svara. Kjarkurinn var að bila, en hann minntist þá allt í einu hins nýunna sjálfstrausts síns. „Hér er heitt. Við skulum fara út á þilfarið“. Daphne varð sér til mikillar skelfingar ljóst, að hann leitaði yfirleitt ekki álits hennar. Hing- að' til hafði hann gætt þess vand- lega að kynna sér skoðanir hennar um hvað eina, og farið nákvæmlega eftir þeim. Nú ýtti hann henni tafarlaust á undan sér upp stigann. „Já, en ég vil miklu heldur dansa“. „Þér skuluð sannarlega fá að dansa, á eftir!“ Hann leiddi hana HEIMILISRITIÐ 37

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.