Heimilisritið - 01.07.1951, Síða 28
angri sínu, þegar hún kom um
borð. Mary og Bill höfðu komið
öllu svo prýðilega fyrir . .. þau
ætluðu í langferð og voru svo
vel búin vistum, að þau þurftu
ekeki í land fyrr en þau lysti.
Doris dáðist að skútunni, sem
var hin viðfelldnasta í alla staði,
með fallegum klefum og þægi-
legum legustólum. Ivlefi Mary
var stærstur ... þar héldu þau
sig, þegar ekki var gott veður.
Doris uppgötvaði dag einn, sér
til mikillar undrunar, skamm-
byssu, sem lá á borði Mary.
„Það er „Benni“,“ sagði Bill
hlæjandi. „Mary er smeyk við
að vera alein heima, og þetta
var eitt af því fyrsta, sem hún
bað mig um. Hún vildi endilega
hafa hana með sér um borð. Hún
heldur líklega, að sjóræningjar
muni ráðast á okkur!“
„Er hún hlaðin?“ spurði Niko-
las. „Þetta er nokkuð hættulegt
leikfang“.
„Auðvitað er hún hlaðin“,
svaraði Mary, hálfgröm yfir, að
þau skyldu hlæja að ótta henn-
ar. „Hvaða gagn ætti maður að
hafa af skammbyssu annars?“
Fyrstu dagana var allt un-
aðslegt. Sólin skein, og þau gátu
dvalið ofanþilja í baðfötum ...
á kvöldin nutu þau svalans í
stórum legustólunum.
Mary og Bill voru enn svo
nýgift, að' þau vildu gjarnan
vera ein út af fyrri sig, og Niko-
las og Doris urðu því að láta
sér nægja hvort annað.
Doris var tekin að hugsa um
það. Hún fann, að Nikolas gæti
aldrei orðið henni annað né
meira en nr. tvö. Hraustlegt og
hreinskilnislegt andlit Denis
skyggði ætíð á, þegar hún reyndi
að telja sér trú um, að hún elsk-
aði Nikolas. En þótti henni samt
vænt um Nikolas? Hann var
alltaf svo kurteis og hugulsam-
ur við' hana, og hún þráði að
giftast og eignast eigið heimili.
Kvöld eitt, er þau lágu og
móktu í legustólunum, laut
Nikolas allt í einu niður að
henni og kyssti hana. Hann kall-
aði liana öllum blíðústu nöfnum
og var svo góður og ástríkur, að
hún skammaðist sín fyrir að
vera ekki ánægð.
Hún hallaði sér að honum og
sagði:
„Það verður gaman að segja
Bill og Mary fréttirnar“.
Hann bað hana innilega að
minnast ekki á það' ... hann
sagði, að þau skyldu njóta ham-
ingju sinnar í ró og næði, þau
gætu sagt frá því, þegar ferðinni
væri lokið.
Doris varð fyrir vonbrigðum,
hún hafði hlakkað til að segja
Mary, að hún myndi einnig
brátt giftast, en hún lét að bón
Nikolas, því honum virtist það
26
HEIMILISRITIÐ