Heimilisritið - 01.07.1951, Síða 31
ÁSTLAUST HJÓNABAND
Sp.: Kæra Eva. Ég hef verið gift í
sjö ár, eignast tvö efnileg börn og fal-
legt heimili — ætti yfirleitt ekki að
þurfa að kvarta — en mér finnst mað-
urinn minn hafa meiri áhuga á starfi
sínu en einkalífi okkar. Hjónaband okk-
ar er orðið eitthvað svo ástlaust. Get ég
gert nokkuð til þess að ráða bót á þessu?
GuSrún.
Sv.: Ræddu við manninn þinn ,um
þá hættu, sem þú teljir vera á því, að
hjónaband ykkar sé að verða að vana-
sambúð, og að þið verðið að reyna að
finna eitthvert ráð til þess að örfa og
efla ást ykkar, því að starf og peningar
og það sem fæst fyrir peninga getur
ekki komið í stað kærleika og hjartayls.
Myndi hann ekki fallast á að fara í
ferðalag með þér, eða lyfta sér eitthvað
upp ásamt þér, kvöld og kvöld. Þegar
hjón hafa verið gift um nokkra ára bil,
koma oft fyrir mánuðir eða ár, sem
þau verða þreytt á hvoru öðru, en sem
betur fer lagast það oftast. Reyndu t.d.
að finna einhver áhugamál, sem þið get-
ið sinnt sameiginlega. Ef þið leggizt á
eitt við að gera sambúð ykkar tilbreyt-
ingarríkari og innilegri, munið þið ef-
laust komast yfir þessa erfiðleika.
FITNAR - HEFUR ÓHREINA HÚÐ
Sp.: Kæra Eva. Ég er alltaf að þyngj-
ast og finnst ég alltaf eitthvað svo xlla
„upplögð." Auk þess hef ég óhreina
húð. Hvað á ég að gera? — Svava
Sv.: Gættu þess, að meltingin sé á-
vallt í lagi, og nauðsynlegt er fyrir þig
að ganga úti daglega eða iðka einhverja
útiíþrótt. í öðru lagi skaltu forðast að
borða feitmeti, t. d. feitt kjöt eða feitar
sósur; ennfremur er óhollt fyrir þig að
reykja mjkið eða drekka sterkt kaffi,
te eða áfengi. Hreinsaðu húðina á
hverju kvöldi, annað hvort með spíritus-
blöndu eða með því að nudda hreins-
unarkremi inn í húðina, láta það bíða
þangað til það er vel bráðnað og þurrka
það svo burt með hreinum baðmullar-
hnoðra. Á eftir, þegar ryk og óhreinindi
dagsins eru í burtu, er gott að baða
húðina upp úr mildri upphristri brenni-
steinsblöndu með litlum baðmullar-
hnoðrum. Á morgnana er húðin svo
þvegin úr heitu og köldu vatni. Einnig
er gott að taka vikulega gufuböð. Þá
hefurðu andlitið yfir sjóðheitu vatni,
og má breiða handklæði yfir höfuðið,
til þess að gufan hverfi ekki burtu of
fljótt. Að því loknu skaltu þrýsta
stærstu húðormunum út milli naglana
á þumalfingrunum, en liafðu þá dálitla
hreina baðmull um þær. Svo baðarðu
andlitið á eftir upp úr ísköldu vatni.
Ef þessar ráðleggingar verða þér ekki
að gagni, skaltu fara til læknis, enda
hafa húðsjúkdómalæknar nú orðið ýms
fljótvirk, nýtízku lyf, til þess að lækna
óhreina húð.
í sambandi við það, að þú segist
vera þreytt og illa upplögð, skal ég
gefa þér gott resept. Skerðu stóran lauk
í smátt og sjóddu hann í hálftíma í
HEIMILISRITIÐ
29