Heimilisritið - 01.07.1951, Síða 39
JENNY brosti til unga, háa
maxmsins síns. Þau urðu sam-
ferða í sólskininu til vinnu sinn-
ar. Hún elskaði rautt hárið á
honum og freknótta nefið. Augu
hans voru eins og bláir logar,
þegar eitthvað hrærði hann eða
æsti, og Jenny vissi, hvað hann
hugsaði, áður en hann sagði það.
„Ef til vill væri það samt
bezt, að Wirt Aaamson segði þér
upp strax“, sagði hann dauflega.
„Ég skal finna einhver ráð, það
sver ég. Einn góðan veðurdag
skaltu ekki þurfa að vinna fram-
ar, frú Holmes. Og börn þín og
barnabörn--------“
„Þegiðu, bjáninn þinn“, sagði
Jenny hlæjandi. „Mér þykir
gaman að vinna. Eg skal hringja
til þín, strax þegar hann hefur
kveðið upp dóminn“.
Og svo skildu þau og fóru sitt
til hvors starfs.
WIRT Adamson sagði „góð-
an daginn“ fremur stuttaralega,
þegar Jennv kom inn. Hún beið
með öndina í hálsinum, eftir því,
sem hann ætlaði að segja. Hann
ræskti sig og lét sem hann væri
önnum kafinn.
„Hvað viðvíkur einkamálefn-
um yðar“, sagði hann þurrlega,
„er bezt að þér skipið þeim á
þann hátt, sem þér töluðuð um
í gær“.
Þrátt fyrir þurrlega og af-
undna framkomu hans, langaði
Jenny mest til að faðma hann
að sér.
„Þúsund þakkir, Adamson“,
sagði Jenny lágt. „Ég — ég —
þér skuluð ekki þurfa að' sjá eft-
ir þessu“.
„Látið Minnie Areher eftir
eins mikið af starfi yðar og þér
getið“, hélt hann kuldalega á-
fram, „og hafið auga með henni.
Það er sannarlega koirdnn tími
til að hún sýni, að hún eigi kaup
sitt skilið. Jæja, svo skulum við
snúa okkur að bréfunum“.
Jenny Holmes var Ijóst, að
það var á móti vilja hans, að
hún fékk að vera áfram, en það
gat hún ekki verið að fást um.
Það var henni fyrir öllu að fá
að lialda áfram vinnunni.
Sá næsti, sem hún varð að láta
vita um barnið, var Minnie
Archer. Hún var yndisleg, lítil
og ljóshærð stúlka með fjólublá
augu.
„Ó, guð!“ stundi Minnie. „En
hvað það’ er spennandi“. Og svo
þaut hún af stað — eins og
Jenny hafði búizt við — til að
segja fréttina um allt húsið.
Það var hvíslað og pískrað
um ástand Jenny. Það voru ein-
mitt þess konar truflanir, sem
Wirt Adamson hafði svo mikla
óbeit á. Jenny féll það illa sjálfri,
en hún sagði við sjálfa sig:
„Þil ert ehki sú fyrsta, sem
HEIMILISRITIÐ
37