Heimilisritið - 01.07.1951, Page 45
Hvað dreymdi þig
í nótt?
Ýtarlegar drawna?~áðningar
FAÐMLÖG. — Dreymi þig að þú sért að faðma að þér einhvern ættingja
eða vin, boðar það svik einhvers. Venjulega er það fyrir óheppileg-
um ástum eða óhappi í einhverri mynd, ef karlmann dreymir að
hann faðmi stúlku, eða öfugt ef stúlku dreymir faðmlög við karl-
mann, einkum ef um ógifta er að ræða. Sumir telja þetta þó vera
góðs viti, ef sá eða sú, sem mann dreymir, eru ekki nákomin dreym-
andanum, og sé viðkomandi ókunnug(ur) boði það ferðalag. Faðma
óvin snn í draumi boðar oft veikindi.
FÁLKI á flugi táknar oft ótryggan vin. Ef fálkinn sveimar yfir þér í
draumnum, máttu vita að þú átt óvini, sem þér er vissast að gæta
varhygð við, því að þeir era skynugir og bragðvísir.
FALL. — Ef þig dreymir að þú sért að falla eða detta, einkum úr tré, boð-
ar það tjón, ýmist stöðumissir, eignamissir eða jafnvel missir heim-
ilisins. Detta í sjó og komast upp úr aftur er fyrir gleði, en að kom-
ast ekki upp úr, er fyrir peningum, en sjómönnum stundum fyrir
feigð. (Sjá Hrap).
FALLBYSSA. — Dreymi þig að þú heyrir hleypt af fallbyssu eru fram-
undan þér ýmsir erfiðleikar.
FANGELSI. — Dreymi þig, að þú sért í fangelsi muntu öðlast aukið
frelsi og aukna gleði í lífinu. Oftast boðar það ferðalag eða frídaga,
sem þú nýtur mjög vel. Sumir telja það tákna, að þú verðir að
sætta þig við viðkynningu manna, sem þú vilt helzt vera laus við.
FÁNI. — Dreymi þig að þú berir eða veifir fána, er það merki þess, að
þú átt bráðlega fyllilega skilið að þér sé óskað til hamingju. Að
draga fána á stöng boðar upphefð og velgengni. Sjá blaktandi fána
við stöng: góð tíðindi eða nýja og betri atvinnu. Svartur fáni er lík-
fáni.
FARANGUR. — Dreymi mann að hann þurfi að gæta mikjls farangurs,
sem hann á sjálfur, boðar það áhyggjur og fjárhagsörðugleika.
FARÞEGI. — Dreymi þig að þú sért farþegi í hraðfara áætlunarbíl, munu
framtíðarhorfur þínar vera góðar; verri ef farartækið er hægfara.
v-_________________________________________________________________________J
HEIMILISRITIÐ
43