Heimilisritið - 01.07.1951, Síða 47
FERSKJA. — Draumur varðandi nýja og Jiroskaða fcrskju, boðar góða
heilsu og áhyggjuleysi.
um kringumstæðum tengjast fjölskyldu hans.
FERJA. ■— Draumur um ferju táknar leyndarmál í lífi þíuu. Þú munt eiga
leynileg stcfnumót og dulda gleði, sem þínir nánustu vita lítið cða
ekkert um.
FERMING. — Drcymi þig að Jiað sé vcrið að ferma J)ig, boðar jiað þér
óvænta peninga og gleði.
FIÐLA. — Ef mann dreymir að hann sjái fiðlu, er það oftast fyrir
hryggð. Fleyra í fiðlu: hamingja og glaðværð. Spila sjálfur á fiðlu:
áhættusamt ævintýri, sem endar allvel; sumir segja að það boði heim-
ilisánægju. Dansa eftir fiðluleik: auðsæld og hamingja.
FÍFILL. — Ef þig dreymir fífil í túni mun einhver kunningi þinn leita
til þín um hjálp. Ef þú ert ástfangin(n) er hætt við að sá eða sú,
scm þú clskar, sé þér ekki trúýr). Sjá fíflabreiðu táknar óvini, sem
reyna að gera þér mizka.
FlFL. — Þessi draumur er dreymandanum aðvörun um, að láta ekki aðra
traðka á sér né lítillækka sig. Þeir sem afla sér virðingar verða betur
settir en liinir.
FÍKJA. — Dreymi þig að þú sért að éta fíkjur muntu fá óvænta gjöf cða
fá langþráða ósk uppfyllta. Að dreyma gráfíkjur er fyrir gleði.
FILABEIN. — Dreymi ásfangna persónu fílabein, mun hamingja, fegurð
og gleði ríkja á ævibraut hennar. Yfirleitt boðar fílabcin { draumi allt
hið bezta, sem maður getur óskað sér.
FÍLL. — Ef þig dreymir fíl, skaltu athuga önnur atvik draumsins. Ef
þau eru óheillaboðar, dregur fíllinn mjög úr ógæfunni, því að hann
er fyrir mjög góðu í draumi. Það er sama hvaða erfiðleikar kunna
að steðja að hjá þér, þú munt yfirvinna þá, og heilsufar þitt verður
ávallt gott. Þó eru einstaka, sem telja, að það boði manni lífsháska
að sjá fíl í draumi.
FIMLEIKAMAÐUR. — Ef mann dreymir fimleikamann, skyldi hann
vera varkár, einkum í verkum, því að slys vofir yfir. Þú ert sennilega
ekki heldur á réttri hillu í lífinu.
FINGUR. — Dreymi mann, að hann hafi misst fingur af hendi sér, er það
fyrir því, að hann á ekki eins trausta vini og hann hélt. Finnist
honum fingurnir vera fleiri en fimm, er það fyrir vinsældum og
virðingu. Það er hinsvegar fyrir tjóni að dreyma fingur sína meidda.
FINGURBJORG. — Ef þig dreymir fingurbjörg skaltu taka það sem að-
vörun um að vera ekki svona metnaðarfull(ur). Sé fingurbjörgin á
réttum fingri í draumnum, munu næstu mánuðir verða þér giftu-
drjúgir. Dreymi þig þú missir fingurbjörg á gólfið, muntu þurfa að
bíða og þreyja miklu lengur en þú vonaðir, en finnirðu hana ekki
aftur getur það táknað atvinnuleysi o. fl.
K________________________________________________________________________/
HEIMILISRITIÐ
45