Heimilisritið - 01.06.1952, Qupperneq 17
um fremur en vatn á gæs? Það
breytti engu í baráttu hans. Því
barátta var það,. og allir fylgd-
ust með henni af eftirvæntingu.
Jeremy kom þeim á óvart; hann
var vanur að senda þeirri
stúlku, er honum leizt bezt á þá
stundina, blóm og bréf svo lítið
bar á. En í þetta sinn leyndi
hann engu.
En þó var Lintí þeim meira
undrunarefni. Hún endursendi
bóm hans og reif bréfin ólesin.
Hún neitaði að fara út með hon-
um, og honum heppnaðist aldrei
að vera einn með henni í fimm
mínútur.
Þar kom þó um síðir, að forlög-
in virtust ætla að vera Jeremy
hiðholl. Lintí hafði farið ein út
í langa gönguför, og Jeremy
greip tækifærið.
En þrátt fyrir allt hefði hon-
um sennilega ekkert orðið á-
gengt, ef svo hefði ekki viljað
til, að Lintí fékk hælsæri af nýj-
um skóm, sem hún var í.
Það leið ekki á löngu þar til
Jeremy ók að hlið hennar og
stanzaði. Lintí leit einu sinni á
hann og h41t svo áfram. Jeremy
elti.
Svo stanzaði Lintí, og Jeremy
gerði eins.
„Nú skal ég segja yður nokk-
uð,“ sagði hún. „Þetta er að
verða óþolandi. Ég hef reynt að
gera yður skiljanlegt, að ég vil
ekki sjá yður, en þér látið eins
og þér vitið það ekki. Má ég
segja yður í eitt skipti fyrir öll,
að ég vil ekkert hafa saman við
yður sælda.“
„Þér hafið meiðzt á fæti, er
það ekki?“ spurði hann, rétt
eins og hann hefði ekki heyrt
eitt orð af því, sem hún sagði.
Lintí stappaði niður fætinum
án þess að hugsa út í það. Hún
fann sárt til og barmaði sér. í
næstu andrá var Jeremy kom-
inn út úr bílnum og lyfti henni
inn í hann.
„Það er nú út af fyrir sig, þó
þér getið ekki þolað mig,“ sagði
hann svo strangt, að Lintí fannst
hún aftur vera orðin skóla-
stelpa. „En þér hegðið yður
barnalega. Takið af yður skóinn,
svo skal ég aka yður heim.“
„Ég þakka,“ sagði Lintí hæ-
versklega.
„Ég verð að aka krók með yð-
ur, því ég get ekki snúið á þess-
um mjóa vegi,“ sagði hann og
ók af stað.
Svo töluðust þau ekki við, og
héldu áfram eftir mjóum skóg-
arstígnum.
„Er ekki fallegt héma?“
spurði Jeremy skyndilega.
„Jú, það hefur mér alltaf
fundizt," samsinnti Lintí.
Hann kinkaði kolli og stöðv-
JÚNÍ, 1952
15